Lesbók Morgunblaðsins - 30.11.1947, Page 5
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
353
áður en hún er fullþroska, en með því
að bera saman vöxt furunnar á Hall-
ormsstað við vöxt sömu tegundar í
Svíþjóð og Noregi, þar sem vaxtar-
hraðinn er svipaður fyrstu 40 árin,
má draga ályktanir um vöxtinn fram
í tímann.
Elstu fururnar á Hallormsstað
munu ættaðar úr Þrændalögum í Nor-
egi en aðrar, sem eru nokkuð yngri,
úr miðri Svíþjóð. Eru þær því ættað-
ar frá helst til suðlægum stöðum til
þess að vera ræktaðar hjer á landi.
Samt sem áður hefur vöxturinn verið
sambærilegur við vöxt furunnar um
miébik Skandínavíu. Hefur hann num
ið um 3 teningsmetrum á hektara ár-
lega. Sje nú miðað við viðarvöxt í
norðanverðum Noregi er mjög hóflega
áætlað að viðarvöxturinn verði 250
teningsmetrar á 100 árum.
I vetur, sem leið, var gerð áætlun á
þessum grundvelli. Kostnaður við
gróðursetningu var þá talinn kr. 3500
í stað kr. 3000, eins og hann ætti
%
að geta orðið. Reiknað var með 4%
vöxtum og vaxtavöxtum frá gróður-
setningu og 100 ár fram í tímann. Til
frádráttar kemur hagnaður af viði,
sem fellur við grisjun. Verð viðar var
áætlað kr. 200,00 á hvern tenings-
meter. Jarðleiga var ekki tekin með í
áætluninni, enda mun slíkt ástæðu-
laust. Með framangreindu verði á viði
og gróðursetningarkostnaði munu
hreinar tekjur af ræktun furu á ein-
um hektara lands nema rúmum kr.
30 þúsundum á 100 árum eða röskum
kr. 300,00 árlega.
í sambandi við þessa áætlun má
geta tvenns. SkilyrÖi til þess að rækta
skógarfuru eru ekki neitt betri á Hall-
ormsstað heldur en á fjölmörgum
öðrum stöðum í friðuðum skógum
landsins. Ennfremur hefur verð a vlði
farið hækkandi undaníarna áratugi i
hlutfalli við msrgar nauðsynjar. —
Virðist sú íiækkun halda efiam, bæði
sakir þess, að skógar eru enn að ganga
til þurrðar, og eins sakir þess, að
viður er nú notaður á æ fleiri sviðum
og til fjölmargra hluta, sem þekktust
ekki áður. Þeir fjármunir, srm varið
er til skógræktar, ættu þvi ekki að
rýrna sakir verðfalls.
Áætlun sú, sem hjer heíur verið
getið, nær aðeins til ræktunar á skóg-
arfuru. Hún er varlega gerð að öllu
leyti og má því treysta henni. Híns
vegar er erfiðara að gera sjer ljóSt,
hvaða arðs má vænta af ræktun lerkis
eða grenis sakir þess, að enn eru ekki
vaxnir upp nógu stórir lundar eða
skógar vaxnir þessum trjám. í Hall-
ormsstaðarskógi eru að vísu 193 lerki-
trje, sem eru 25 ára. Meðalhæð þeirra
er um 6 metrar og vöxturinn mun
nema röskum 3 teningsmetrum árlega
miðað við hektara lands. En það er
erfiðleikum bundið að mæla hann, af
því að trjen standa í smá þyrpingum
víðsvegar um skóginn. Samt er víst,
að lerkið vex nokkru hraðar en furan.
Greni vex einnig hraðar en fura og
þess vegna má stofnkostnaður við
gróðursetningu þessara trjátegunda
vera nokkuð hærri en við ræktun
furu án þess að arðurinn af ræktun-
inni þurfi að minnka.
l