Lesbók Morgunblaðsins - 18.01.1948, Side 5
'
\
Arni Ola: Ur sögu Laugarness 2
'
HVERNIG REYKJAVÍK
LAUGARNES AFTUR
Akyeðið að selja
LAUGARNES
Þegar biskup íluttist til Reykjavík-
ur, var ákveðið að selja Laugarnes á
uppboðí, þó því að eins að ekki vrði
boðið minna en 5000 dalir í hús og
jörð. Uppboðið átti að fara fram 16.
júlí. Ekki var það auglýst í „Þjóð-
ólfi“, sem þá var eina blaðið hjer,
heldur birt með auglýsingum, sem
festar voru á hús í baenum, og þó var
það ekki gert fyr en 5. j llí. Ekki voru
uppboðsskilmálar birtir fyr en á upp-
boðsstaðnum, og voru þeir ekki síður
einkennilegir, en sú aðferð, sem höfð
var við að auglýsa uppboðið. Fyrst
átti að bjóða í alla eignina mcð stof-
unni, en síðan átti að bjóða í þetta í
þrennu lagi: stofuna sjer, landið í
Fossvogi sjer og í þriðja lagi annað
land jarðarinnar. Fannst öllum þetta
bæði furðulegt og grunsamlegt og fór
svo, að ekki var boðið meira en 3580
dalir fyrir eignina alla.
En ástæðan til þess að eignin skyldi
boðin upp í þrennu lagi mun hafa
verið sú, að bæjarstjórn Reykjavíkur
hafði áður sent stiptamtmanni bón-
arbrjej um það að kaupstaðurinn
gæti fengið keyptan hluta Laugar-
ness í Fossvogi. Var þar gott beiti-
land, sem bæjarbúum var nauðsyn á
að nota. Tæplega mun þó hafa vakað
fyrir stiptamtmanni að gcra bæjar-
stjórn greiða með þessu, eins og
seinna mun sjást, heldur mun hann
haía hugsað sem svo, að ýmsir mundu
hafa ágirnd á Fossvogi, og þess vegna
líkur til að meira yrði boðið í eignina
í þrennu lagi.
RÆJARSTJÓRN VILL KAUPA
Bæjarstjórn Reykjavíkur var nú
orðið ljóst, að bænum var lífsnauðsyn
að ná í Laugarneseignina, einkuin
vegna hinna miklu íithaga jarðarinn-
ar. Var því haldinn fundur um málið
í bæjarstjórn og samþykkt með 5:1
atkv. að bjóða 5000 dali í jörðina með
húsi, en að öðrum kosti að kaupa hús
ið og fá jörðina á leigu fyrir árlegt
gjald. Var stiptamtmanni sent þetta
tilboð með brjefi dags. 11. ágúst, en
hann ljet ekki svo lítið að svara því.
UNDIRRÓÐUR TRAMPE
Til þess að sýna hvað Trampe stipt •
amtmaður var bæjarstjórn hollur í
þessu máli, -þykir rjett að birta hjer
tvö brjef frá honum til dómsmála-
ráðuneytisins í Kaupmannahöfn.
Fyrra brjefið er dagsett 13. ágúst
1856, eða tveimur dögum eftir að bæj-
arstjórn sendir tilboð sitt. Þar segir
hann fyrst frá því að uppboð hafi
verið haldið og ekki fengist hærra
boð í eignina en 3521 rd. (það er
sennilega hcildartilboðið) og hann sjái
ekki ástæðu til að mæla mcð að því
boði verði tekið. Síðan segir hann:
„Aftur á móti leyfi jcg mjcr að
senda tilboð frá J. Pjeturssyni assess
or í landsyfirrjettinum, þar sem hann
óskar að fá jörðina Laugarnes og hús
■ið keypt fyrir 5000 rd. með sömu skil-
málum og vant er að setja við sölu
konungseigna lijer í landi. Jcg lcyíi
mjer virðingarfyllst að mæla með því,
að þessu tilboði verði tekið, því að
jeg álít, að ekki muni koma hagkvæm
ara tilboð í eignina og að jörð og hús
EIGNAÐIST
muni ekki vera hægt að leigja fyrir
það, er samsvara muni vöxtum af
þessum 5000 rd., því að nú er nauö-
synlegt að gera við þakið á húsinu
og það ásamt árlegu viðhaldi mun
fæla alla frá að taka jörðina á leigu“.
Óskar hann svo að málið sje af-
greitt hið allra fyrsta og sjer sent
samþykki með næsta skipi.
Hitt brjefið er skrifað 15. ágúst, eða
tveimur dögum seinna. Þar segir hann
frá því, að bæjarstjórn Reykjavíkur
hafi skrifað sjcr 11. ágúst og farið
þess á leit að bærinn fengi jörðina
Laugarnes á leigu gegn því at greiöa
120 ríkisdali á ári, og að fá húsið
keypt fyrir 2000 rd. með þeim kjörum
að grciða þriðjung kaupverðsins þeg-
ar í stað og gefa út vel trygð skulda-
brjeí fyrir afganginum. Segir hann
að bæjarstjórn styðji þessa umsókn
sína með því, að bæinn skorti nú til-
finnanlega haglendi, og auk þess hafi
hún gert áætlun um hvaða tekjur hún