Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 14.03.1948, Qupperneq 6

Lesbók Morgunblaðsins - 14.03.1948, Qupperneq 6
44G LESBOK MORGUNBLAÐSINS ingar, eigi að eins til þess að sameina Evrópu og þau lönd, sem stjórnað er þaðan, heldur tií þess að sameina allar helstu þjóðir Evrópu, Asíu, Afríku og báðum álfuVn Ameríku. Það er ekki ný hugmynd að skapa sameinaðan heim. Hún er jafn gömul menningarþjóðunum. Að rjettu lagi getum vjer skilgreint hvað sje menn- ingarþjóð með því að segja að það er sú þjóð, sem lært hefur að viðurkenna að til sje sígild allsherjarlög um jafn- rjetti og bróðerni, lög, sem allir menn eigi að hlýða. En enda þótt hugmyndin um al- þjóðabandalag sje gömul, þá hefur hún þó aldrei komist jafn langt og nú, þegar allar þjóðir heims hafa stofnað með sjer sameiginlegt þing. Þetta verðum vjer að hafa hugfast. Þetta er fyrsta alvarlega tilraunin um að sameina allar þjóðir í eina heimsheild. Og þessa verðum vjer að gæta þegar vjer veltum fyrir oss þess- ari alvarlegu spurningu, sem nú er efst á baugi: Er heimurinn að klofna sundur í tvo hluta? Því að þá sjáum vjer einmitt að heimurinn er ekki að klofna. Hann getur ekki klofnað í tvent vegna þess að hann hefur aldrei verið ein heild. Þetta tvent er mjög sitt á hvað, að hugsa sjer að heimurinn sje að klofna í tvær andstæður, og hitt, að viður- kenna það að hann hefur aldrei verið ein heild. Það er tvent ólíkt að hugsa sjer það að vjer lifum nú í heimi, sem sje að sundrast, og hitt að viður- kenna það, að heimurinn hefur aldrei verið sameinaður. Vjer erum fyrsta kynslóð manna, sem gerir alvarlega tilraun um það. að sameina á einhvern hátt allar hin- ar sundurleitu þjóðir heimsins og reyna að finna einhvern meðalveg í andstæðum viðhorfum þeirra og sam- keppni. Ef vjer sláum þessu föstu, þá þurf- um vjer ekki að ergja oss út af því að heimurinn sje að klofna í tvo eða fleiri hluta, og að nú sje öld ógna og Walter Lippmann. i skelfinga, sundrungar og hruns. — Þvert á móti verðum vjer að viður- kenna að þetta er nýsköpunaröld. Vjer eigum því ekki að horfa með kvíða fram í tímann, eins og fyrri aldir urðu að gera, heldur horfum vjer mót nýrri dagrenning. Vjer megum ekki gleyma því, að járntjald hefur verið milli austurs og vesturs um 1000 ára skeið, og þó miklu lengur. Það var komið löngu áður en þeir Stalin og Molotov komu til sögunnar. Það var komið áður en til voru nokkur ríki, sem hjetu Bret- land, Rússland, Frakkland og Þýska- land. Það var komið áður en Ameríka fannst. Járntjaldið hefur aðskilið Austur- Evrópu og Vestur-Evrópu síðan róm- verska ríkið klofnaði í tvent með tvær höfuðborgir, aðra í Róm og hina i Miklagarði. Það hefur aðskilið Aust- ur- og Vestur-Evrópu síðan kristin- dómurinn klofnaði og skiptist í lat- nesk-kaþólska og grísk-kaþólska kirkju. Járntjaldið er ekki nýtt. Það er mjög gamalt. Þjð er eitt af elstu, djúptækustu og veigamestu atriðum mannkynssögunnar. Frá því á miðöld- um og fram á þennan dag hefur það aðskilið hinn kristna heim. Það hefur aldrei verið dregið frá. Að eins ein- staka sinnum hefur því verið lyft svo- lítið til hliðar. Ameríkumenn ætti að minnast þessa. Rússar ættu að minnast þessa. Því að fyrir þessum samherjum í stríðinu og nú þátttakendum í S.þ. liggur geisimikið vandamál. Vjer er- um að reyna^að svipta burt járntjald- inu. Vjer erum að reyna að sameina heimshluta, sem hafa verið aðskildir í þúsundir ára og þar sem þróunin hefur verið mjög ólík á þessum um- liðnu öldum. Það djúp, sem staðfest er milli kristindómsins í Austur-Evrópu og Vestur-Evrópu, er ekki hið eina, sem aðskilur þjóðirnar. Það er ekki eina djúpið, sem þarf að brúa til þess að hugsjónir mannkynsins rætist. Það er líka til nokkuð, sem heitir Múhameðsheimur. Svo er Hindúa- heimur. Svo er Kínverjaheimur. Vjer erum nú að reyna að sameina alla þessa heima í eina heild, sem aldrei hefur átt sinn líka. Þetta er í fyrsta skipti að menn viðurkenna að Evrópuþjóðir eigi ekki að stjórna Arabaríkjunum, Indlandi og Kína, heldur eigi þau að vera sjálf- stæðir aðilar í bandalagi þjóðanna. Vjer megum heldur ekki gleyma því, hve skammt er síðan að Banda- ríkin fellust á að hverfa frá einangr- unarstefnu sinni og taka þátt í sam- starfi þjóðanna. Það eru ekki fimm ár síðan að þjóð og þing í Bandaríkj- unum var að rífast um það, hvort framtíð Evrópu og Asíu kæmi Banda- ríkjunum nokkurn skapaðan hlut við. Það er því ekki nema örskammt siðan að vjer Bandaríkjamenn hölluð- umst að þeirri hugmynd að skapa ný- an heim. Vjer höfum bví margt að læra og mörgu að gleyma áður en vjer getum komið viturlega fram í því að skapa nýan heim, og áður en vjer sláum því föstu að vjer höfum reynt það, en það sje ekki hægt. ★ ENN höfum vjer tæplega byrjað á því, sem er óefað göfugasta og mesta,

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.