Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 14.03.1948, Qupperneq 8

Lesbók Morgunblaðsins - 14.03.1948, Qupperneq 8
448 LESBÖK MORGUNBLAÐSINS BRAUTRYÐJANDI í atvinnulífi VESTUR á Seljaveg 9 í Reykjavík liggur gamall maður í rúminu, þrot- inn að heilsu og kröftum, enda er nú aldurinn orðinn hár, bráðum 88 ár. Hár hans er hvítt, antílitsdrættir skarpir og höfðinglegir og hendurn- ar beinaberar. Heyrn og minni er farið að bila, en sjónin er sæmileg. Hann verður að hafa ljetta til þess að geta sest upp í rúminu, en þá sjer hann út um gluggann, og þar blasir Faxaflói við með Jökulinn að baki, og sjest til allra skipa er koma til Reykja víkur og fara þaðan. Og þau eru nú bæði fleiri og stærri en á manndóms- árum hans. Þessi gamli maður heitir Gísli Finnsson. Reykvíkinga Yngri kynslóðin mun lítt kannast við nafnið, en sú var tíðin að allir Reykvíkingar þekktu Gísla Finnsson. Sú var tíðin að hann var einn af brautryðjendum hins nýa tíma hjer, einn af þeim, sem gekk fram fyrir skjöldu í sköpun nýs atvinnulífs í borginni. Eftir fyrri heimsstyrjöldina hvarf hann af landi burt og fluttist til Kaupmannahafnar. Þar var þá sonur hans, Reynir fiðluleikari, búsettur, og dvaldist Gísli þar þangað til seinni heimsstyrjöldinni var lokið. Þá voru starfskraftamir þrotnir og hann flutt ist hingað til Eyglóar dóttur sinnar. — Og gott er að vera kominn heim, segir gamli maðurinn í rúminu og Gísli Finnsson á besta skeiði. horfir út á dimmbláan sjóinn. Sveitarpiltur, sem varð brautryðjandi í höfuðstaðnum Gísli er fæddur að Brekkum á Rangárvöllum 19. október 1860 og ólst þar upp. — Mjer er það enn í minni, segir hann, þegar jeg var að sigla á trogi í bæjarlæknum á Brekkum. Það varð þó ekki forboði þess að hann yrði sjómaður, en hann átti sinn þátt í því að skapa útgerðina í Reykjavík. Rúmlega tvítugur rieðist hann til járnsmíðanáms hjá Sigurði gamla Jónssyni (Sigurði „kljensmið") í Aðal stræti 6, í Reykjavík. Þetta hús hafði frú Johanne Soffie, ekkja Guðbrands Vigfússonar (d. 1822) lyfsala í Nesi, látið byggja, en Sigurður keypti það og bygði hæð ofan á það. Á bak við hafði hann smiðju sína. Þótti Sigurður þá einhver besti járnsmiður á íslandi. Hann var mjög vandur að við sveina sína og vinnuharður nokkuð. — Við Gísla fell honum svo vel, að hann ljet námstíma hans vera styttri en annara og fekk Gísli sveinsbrjef 23. maí 1885. Þetta sama ár kvæntist Gísli heit- mey sinni Þórhönnu, dóttur Eyþórs

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.