Lesbók Morgunblaðsins - 05.12.1948, Page 7
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
•r~
547
MANNKYNIÐ í HÆTTU
Eí kjarnorkusprengja útrýmir því ekki, geta
geislanir gert það að vanskapningum
Japanskir læknar tóku fljótt eft-
ír því, að geislanirnar frá kjarna-
sprengjunum í Hiroshima og Naga-
saki, höfðu mikil áhrif á þá, sem
komust lifandi af. Og nú er það
kunnugt að þúsundir manna, sem
lifðu í þessum borgum hafa orðið
ófrjóvar. Þessu var ekki gefinn
mikill gaumur fyrst í stað, en þeg-
ar 20 verkamenn í einni kjarn-
orkustöð Breta, kröfðust skaðabóta
fyrir það að þeir væri orðnir ó-
frjóvir af geislanaáhrifum þar, þá
kiptust vísindamennirnir við Og
síðan hefir mikið verið um þetta
rætt.
Einn af helstu lífeðlisfræðing-
um heimsins, prófessor J. B. S.
Haldane, segir að ekki muni við
þetta lenda. Hann spáir því, að af-
kvæmi þeirra, sem lifa af kjarna-
sprengingu, muni verða hræðilegir
vanskapningar og ófreskjur bæði
til sálar og líkama og þegar fram
h'ða stundir muni geislaverkanir
kjarnanna geta breytt algjöriega
útliti og innræti mannkynsins.
Einn af helstu lífeðlisfræðing-
um Bandaríkjanna, prófessor H. J.
Muller, er honum samdóma. Og
hjá honum er ekki um getgátur
einar að ræða, því að hann hefir
lengi haldið uppi tilraunum um
áhrif geislandi efna á skordýr.
Hefir hann skýrt frá þessum til-
raunum sínum í „Bulletin of Atom
ic Scientists“. Hann valdi sjer á-
vaxtaflugur til rannsóknanna.
Gerði hann það vegna þess að flug
ur þessar eru svo bráðþroska, að
12 stunda gamlar eru þær kyn-
þroska. Tilraunir hans ná því til
900 ættliða af þessum flugum, en
það samsvarar því að hann hefði
rannsakað áhrif geislavirkra efna
á mannkynið um 25.000 ára skeið.
Árangurinn varð sá, að út af flug-
unum komu hinir furðulegustu
skapnaðir: flugur með þremur
vængjum, flugur með óskapleg
augu og óskaplegt vaxtarlag. Lit-
urinn var líka mjög mismunandi,
og þessi kvikindi lifðu ekki jafn
lengi og foreldrarnir.
Er þetta forboði þess, hvernig
fara muni um mannkynið? Mull-
er prófessor er ekki frá því. „Um
leið og kjarnasprengja drepur bein
línis 100.000 manna — hafa hinir,
sem lifa, orðið fyrir breytingu, sem
nægir til þess að það komi fram
á afkvæmunum í slíkum afskræm-
isskapnaði — um þúsundir ára“.
Hvernig eru áhrif geislananna?
Hvernig geta þau hjá þessari kyn-
slóð haft áhrif á óbornar kynslóð-
ir? Svarið er þetta:
Þegar egg frjóvgast í móðurlífi
sameinast þar frá föður og móður
jafnmargar eindir af því, sem
kallast „genes“ (erfðafrjó). Þegar
fóstrið þroskast þannig að frumum
fjölgar, þá helst í hverri einustu
frumu þetta sama hlutfall af
, genes“. En hvað er þá „genes“?
Eftir því sem vísindamenn vita
best, þá eru þetta mjög fjölþættar
sameindir. Hver sameind er svo
smá, að hún verður vart eygð í
bestu smásjá, en í hverri og einni
eru fólgnir hinir ýmsu eiginleikar
afkvæmisins. Sumar ráða lit augn-
anna, aðrar hárlit og gerð o. s. frv.
Þótt sameindir þessar sje óum-
breytanlegar undir venjulegum
kringumstæðum, þá geta þó orðið
á þeim gjörbreytingar ef þær verða
fyrir óvæntum áhrifum. Og slík-
um breytingum geta geislanir vald
ið. Breytingin kemur svo fram í
því, að afkvæmið verður öðru vísi,
en ella mundi verið hafa. Slíkar
breytingar hafa gerst í náttúrunni
og halda vísindamenn að þær stafi
frá geislum utan úr himingeimn-
um, og hyggja þeir‘að þar sje að
leita ástæðunnar til þess hvernig
lífið á jörðinni hefur skifst í ótal
kynkvíslir, og hverja með sínum
eiginleikum.
Þessi reynsla, sem fengist hefir
um það að breytiþróun orsakast af
áhrifum geislana, hefir vakið mik-
inn áhuga vísindamanna fyrir
þessu máli. Prófessor Muller hefir
sagt:
„Ef kjarnorkan verður ekki not-
uð til þess að útrýma mannkyn-
inu, þá verður hún áreiðanlega
notuð til friðsamlegra starfa. Og
þá verður að gera ráðstafanir í
tíma til þess að fyrirbyggja breyti-
þróun. En hvernig svo sem með
orkuna verður farið þá er aðkall-
andi að gera varúðarráðstafanir
gegn geislaefnunum. Blývarnir,
sem notaðar eru til þess að hlífa
mönnum við X-geislum, eru al-
gjörlega ófullnægjandi.
Geislanaáhrifin geta verið svo
lítil að ómögulegt sje að taka eft-
ir þeim, og þau valda ekki breyt-
ingum á mannkyninu fyr en seint