Lesbók Morgunblaðsins - 05.12.1948, Blaðsíða 10

Lesbók Morgunblaðsins - 05.12.1948, Blaðsíða 10
550 LESBÖK MORGUNBI -AÐSIN9 Gander lætur stjórnmál töluvert til sín taka líkt og aðrir menn á Ný- fundnalandi. Að þessu leyti svipar honum og þjóð hans til okkar ís- lendinga, sem alltaf erum að þvarga um stjórnmálin. „Landsmenn Nýfundnalands hafa sjerstaklega mikinn áhuga á stjórn málum um þessar mundir,“ sagði Tilley. „Þetta ketnur til af því; að undanfarið hafa staðið yfir kosn- ingar um það, hvort við vildum verða sjálfstæð þjóð, fá samveldis- aðstöðu við Kanada eða halda á- fram að vera undir Breta gefnir. Fáir eru því fylgjandi, að við höld- um áfram að vera undir Breta gefn- ir en þegar til kosninga kom um það, hvort við skyldum verða sjálf- stæð þjóð eða gerast 10 ríkið í ríkja sambandi Kanada þá skiptust menn nokkurn veginn í tvo helminga. 52,5% kjósenda greiddu atkvæði með því, að gerast hluti af Kan- ada, svo að líklegast komum við til með að ganga inn 1 kanadiska ríkjasambandið í apríl í vor.“ Sjálfstæðishreyfingin En flugvallarstjórinn Rex Tilley benti líka á að nokkrar undanfarn- ar vikur og mánuði hafi hinir svo- kölluðu Ábyrgu (the Responsib- les) haldið úti miklum áróðri á móti því að Nýfundnaland gerist hluti af Kanada. Undir forystu major Peter Cashin og útgerðar- mannsins Chesley Crosby hefur þessi stjórnmálaflokkur gengist fyrir því að safna undirskriftum undir skjal, sem krefst fulls sjálf- stæðis fyrir landið. Þeir segjast geta fengið 100 þúsund kjósendur til þess, að skrifa undir skjalið, en það er meira en 80% af öllum kjós- endum landsins. „Við íbúar Nýfundnalands erum 230 þúsundir," sagði Tilley, „en 149 þúsund manns tóku þátt í kosning- unum um örlög landsins. Ef þeir Ábyrgu geta fengið 100 þúsund manns til að skrifa undir sjálfstæð- iskröfuna, verður sennilega stofnað sjálf?tætt Nýfundnaland, þótt við höfum þegar farið fram á að gerast hluti af Kanada í apríl í vor.“ Labrador er pó'litískur hluti af Nýfundnalandi, þótt það sje hluti af ameríska meginlandinu. Þar er annar mikið notaður flugvöllur á norðurhveli, sem kallaður er Goose Bay. íbúar Nýfundnalands stunda mikið lax- og fiskveiðar við Labra- dor og þar er mikið skógarliögg. Ferðamannaland og veiði Nýfundnaland er líka töluvert mikið ferðamannaland. Þar er mik- il lax- og silungsveiði og mikið er þar af fugli og stærri dýrum svo sem hreindýrum og dádýrum, svo að markvissir menn hafa nóg að gera í Nýfundnalandi. Ganderflugvöllurinn er einar 230 mílur frá St. John, svo hann vær-i mjög einangraður, ef flugvjelarnar heldu honum ekki í sambandi við umheiminn. Á Gander er ekkert annað fólk en það, sem vinnur við völlinn. Þar eru um það bil 2000 manns núna. Þegar jeg spurði Tiiley flugvall- arstjóra hvort honum leiddist ekki á Gander sagði hann: „Nei, ekki minnstu vitund. Hjer er alltaf nóg að gera. Þótt bíóin sjeu ekki mörg (ekkert) og nætur- klúbbarnir ekki fleiri er hjer ótal margt til skemtunar. Maður getur farið út á vatn að veiða og svo get- ur maður farið inn í skóg að skjóta fugla og dýr.... og svo þegar mað- ur er orðinn leiður á því getur mað ur aftur farið að veiða.... og veiða .... og veiða....“ Ekki vissi jeg hvort hann var að gera grín að ástandinu á Gander, en víst er um það að hann talaði alvarlegri röddu og var alt annað en spotskur á svipinn. Kannske er svona gaman að veiða. ... og veiða .... og veiða.... og veiða.... Ekki er til setunnar boðið Við íslensku farþegarnir með Geysi hefðum vafalaust þáð að staldra lengur við á Gander. En ekki var til setunnar boðið eftir að búið var að gera við góða kertið í flugvjelahreyflinum, sem varð þess valdandi, að við fengum að skoða okkur svolítið um í landi, sem við hefðum sennilega aldrei haft tæki- færi til að kynnast neitt, ef það hefði ekki verið fyrir kertið góða. Eftir að 35 íslenskir flugfarþegar höfðu sest inn í Geysi og flugþern- urnar talið okkur alla eins og smala maðurinn rollurnar sínar, fóru hreyflar Geysis af stað að nýju, og undir stjórn unga og örugga flug- stjórans, Alfreðs Elíassonar, held- um við á móti nóttinni og New York í suðvestrinu. >W DESEMBER Geföu jóla glaöa tíö, geialum njólu valda siljurból og svellahlíö svæfa gjólu kalda. Eins og voga ösli köld öldusog af grœöi fagurloga litafjöld lofts um boga flæöi. 1 Láttu geisast logaflóö, Ijósa reisast falda, sólhvolf þeysa í sigurmóö seguleisu kalda. Elívogum úrgum hjá, eldaflog þar striöa, fjendur voga varla á vofurlogum ríöa. % BENEDIKT EINARSSON, Miðengi.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.