Lesbók Morgunblaðsins - 27.11.1949, Blaðsíða 13

Lesbók Morgunblaðsins - 27.11.1949, Blaðsíða 13
sem hafði skýlt Þjóðverjum. Sólin skein og skothríð Breta jókst um allan helming og því lauk svo að allt Ermarsund var krökt af líkum og rekaldi.“ í desember komu nýar frjettir. Maður nokkur, sem kom frá Frakk- landi til Ameríku sagði að öll sjúkrahús í París væri full af her- mönnum, sem hefði brenst hræði- lega. Þessari sögu fylgdi það, að Bretar hefði fólgið olíugeyma í sjónum en sprengt þá í loft upp þegar innrásarflotinn kom að ströndinni og síðan kveikt í olíunni með íkveikjusprengjum. — Aðrir sögðu að olíunni hefði verið veitt út á hafið og síðan kveikt í henni. Nokkru eftir nýár kom svolát- andi frjett frá hinum frjálsu Frökk um: „30.000 Þjóðverja fórust í des- embermánuði við árás á England". Bresku blöðunum var bannað að birta þessa fregn. Það var ekki gefin út nein opin- ber tilkynning um neina innrás og stjórnin mintist ekki á hana í tvö ár. Þá var það að Adams flotafor- ingi beindi þeirri fyrirspurn til for- sætisráðherrans í neðri deild breska þingsins (1943) hvort það væri satt að Þjóðverjar hefði gert innrásar- tilraun haustið 1940 eða í desember, og hvort hann gæti gefið upplýs- ingar um hvernig þeirri tilraun hefði verið hagað og hvaða árang- ur hún hefði borið. Attlee, sem þá var aðstoðarráðherra, svaraði: „Þar sem allir hafa nú nóg að gera í upplýsingaráðuneytinu, vill forsætisráðherrann ekki íþyngja þeim með því að leggja á þá slíka aukavinnu, sem það væri að gefa upplýsingar um þetta, enda telur hann það ekki rjett, því að þá mundu óvinirnir geta fengið upp- lýsingar um frjettaþjónustu vora.“ Ári seinna bar Adams enn fram sömu fyrirspurn, en Churchill fór undan í f læmingi. Enn skaut sagan upp kollinum LESBÓK MORGUNBLAÐSINS W.*’**nr ”r ' 537 haustið 1944. Þá símaði frjettaritari nokkur: „Ýmsir Belgar, sem jeg hef átt tal við, eru alveg undrandi út af því að fólk í Englandi skuli ekk- ert hafa heyrt um innrásartilraun Þjóðverja, því að hún er á allra vit- orði í Belgíu“. Og svo bætti frjetta ritarinn því við að belgisk hjúkr- unarkona hefði haft eftir helbrend- um þýskum hermanni: „Það var ógurlegt. Alt Ermarsund stóð í ljós- um loga og skothríð Breta gekk lát- laust á okkur. Það getur ekki verið verra í Víti en þar.“ í maí 1945 hitti frjettaritari mann frá Bognor í Sussex og hann kvaðst hafa horft á innrásartilraunina. — Lýstj hann því á stórkostlegan hátt hvernig orustuflugvjelar Breta og strandvirkin hefði látið skothríðina dynja á Þjóðverjum. — Og hann kvaðst hafa sjeð lík mörg hundruð Þjóðverja, sem hefði verið að velkj- ast í flæðarmálinu. Og auðvitað trúði frjettaritarinn þessu eins og nýu neti. Engin af þeim sögum, sem upp komu í stríðinu, var jafn þrálát eins og þessi með eldvarnir Breta og hin ar 30.000 Þjóðverja, sem höfðu far- ist í eldinum. Eini fóturinn fyrir henni var sá, að í septembermánuði 1940 var öllum kirkjuklukkum hringt til þess að kalla saman land- varnarliðið því innrás væri yfir- vofandi. Frjettaeftirhtinu var til- kynt að ekkert mætti segja um þetta annað en að klukkunum hefði verið hringt „og má gefa í skyn aði það hafi verið gert að ástæðulausu, og engin opinber tilkynning verður gefin út um það.“ Það var þó alveg rjett að Þjóð- verjar höfðu mikinn viðbúnað um innrás í England, en þeir gerðu al- drei neina tilraun að framkvæma hana. Það var ekki flugufótur fyrir því að þéir hefði gert árás af sjó, nje að þeir hefði mist 30.000 manna við það. En samt sem áður var þetta staðhæft hvað eftir annað og altaf var sagan að skjóta upp kollinum. Frjettaeftirlitið hefur ekki það verksvið að vinna úr hvað er satt og hvað er ósatt. Það á aðeins að gæta þess að opinberlega birtist eng ar fregnir, sem óvinirnir gæti haft gagn af. Jeg benti þó ritstjórum oft á að frjettir væri rangar og þar á meðal þessi frjett. í hvert skifti, sem hún átti að birtast í einhverju blaði símaði jeg til ritstjórnarinnar og sagði að þetta væri ekki rjett. Og þá var frjettinni slept, en samt lifði hún góðu lífi. Þegar slík saga sem þessi hefur gengið manna á milli í sex ár, þá er ekki auðvelt að kveða hana niður. Fólk segir sem svo að einhver fótur hljóti að vera fyrir henni. Slík saga geti ekki komið upp að ástæðu- lausu. Jeg held að hún hafi fyrst komið upp vegna þess að eitthvað hafi síast út um viðbúnað okkar að verja okkur með olíu og eldi. En öllum tilraunum um það átti þó að halda stranglega leyndum. Það var ekki fyr en í júní 1945, eftir upp- gjöf Þjóðverja, að sagt var frá þeim ráðstöfunum. Við höfðum gert til- raunir á ýmsum stöðum með að dæla olíu út á haf og kveikja í henni. Það gat ekki hjá því farið að einhverjir sæi eldinn. Og svo hafa menn lagt saman tvo og tvo og út- koman orðið 14, og ein lítil fjöður orðið að fimm hænum. En hvað er þá um líkin? spyrja menn. Það var ekki annað satt í þeirri sögu, en að lík nokkurrí þýskra flugmanna rak á land í Englandi. Annars minnir þessi saga mig alt- af á söguna um drenginn, sem kom hlaupandi inn til pabba síns og hrópaði: „Það eru margar miljónir katta hjerna úti í garðinum.“ Pabbi hans leit alvarlega á hann og þá kom sannleikurinn: „Jú, það. er kötturinn okkar og svo. aðkomur köttur.‘.‘ _ . :

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.