Lesbók Morgunblaðsins - 16.04.1950, Blaðsíða 1
FAÐIR ÞJÓÐLEIKHÚSSINS
HINN mikli ævidraumur Indriða
Einarssonar hefir ræst. íslenska
þjóðin fær Þjóðleikhúsið í sumar-
gjöf á þessu ári.
Enginn efast um að það sje stór-
viðburður í íslensku menningarlífi
að Þjóðleikhúsið tekur til starfa.
Hlutverk þess er mikið og vegsam-
legt. Þar á þjóðin að eiga þess kost
að sjá sjálfa sig í spegli á hverjum
tíma. Þar á hún að kynnast nýum
hugsjónum. Þar á hún að hvessa
sjónir fram í tímann, svo að hún
geti tekið rjetta stefnu, svo að hún
verði með 1 framvindu menningar-
innar. Þar á að vera sá vettvangur,
er andlegir afburðamenn þjóðar-
innar geti notið sín og tekið vax-
andi þroska. Þar á að vera miðstöð
íslensks mannvits, skáldskapar og
hugsjóna. Þar á að vera höfuðvígi
og hásæti ísienskrar tungu.
Alt þctta vakti fyrir Indriða Ein-
arssyni er hann upp úr eins manns
hljóði hóf að tala um íslenskt þjóð-
leikhús. Síðan eru nú liðin 43 ár.
Það var árið 1907 að fyrsta grein
hans um þetta mál birtist í Skírni.
Þar kcm fram sú trú hans, að það
ættlfyrir íslandi að liggja að verða
frömuður bókmentalífsins í álf-
unni. Hann sagði:
„Útlendir mentavinir hafa sýnt
fram á það, að miðdepill bókmenta-
Indriði Einarsson rithöfundur.