Lesbók Morgunblaðsins - 31.12.1950, Qupperneq 1
47. tölublað Gamlársdag 1950 XXV. árgangur
Ólafur Ólafsson:
Gunnar prófastur Gunnarsson
Cunnar Gunnarsson.
11. MARS 1839 fæddist prestshjón-
unum í Laufási við Eyafjörð sonur
og var hann látinn heita Gunnar í
höfuð föður sínum og jafnframt
eftir afa sínum, Gunnari Hallgríms
-svni, sem einnig hafði verið þar
prestur um langt árabil.
Sveinninn þótti hinn efnilegasti.
Fyrstu mánuðina dafnaði hann vel,
en þá tók hann barnaveikina og
gekk hún svo nærri honum að hann
var álitinn örendur. Föður hans.
sem var, að þeirrar tíðar hætti, vel
kunnandi læknir, tókst að lífga
hann. En alla ævi bjó hann að af-
leiðingum veikinnar svo að heita
mátti að hann tæki aldrei á heil-
um sjer.
Snemma kom það í ljós að Gunn-
ar var óvenjulega vel gefið barn.
Bræður hans, Tryggvi og Eggert,
voru sjálfkjörnir til forystu í gáska
-fullum leik og stórræðum æsku-
áranna. Gunnar var þrekmínní og
alvörugefnari. En í bóknámi stóðu
þeir honum ekki á sporði, bræð-
urnir. Hjá honum fór saman á-
stundunarsemi og góðar námsgáf-
ur. Þá þótti systkinum Gunnars
(þremur br. og einni s.) gott að
leita til hans, er reikna þurfti erf-
itt dæmi eða komast til botns í tor-
skildum fræðum. Það stóð heldur
eklci á honum að segja til í því,
sem hann vissi og skildi betur.
Hann virtist hafa jafn mikla gleði
af að fræða aðra og að fræðast
sjálfur, — og helst það alla ævi.
Barna og unglingaskólar voru þá
engir til í sveitum landsins. En ekki
varð það systkinunum í Laufási
til tíóns.
Heimilisfólk var jafnan margt í
Laufási og var bæði gaman og lær-
dómsríkt að fylgjast með í störf-
Valgerður Þorsteinsdóttir.
um þess. Þá þótti bræðrunum ekki
síður skemtilegt að snúast við
skepnur og urðu í því snemma að
liði.
Útsýni er fagurt í Laufási, þó að
bærinn standi lágt. Siglingar um
fjörðinn veittu útsýn til fjarlægra
staða og landa, glæddu skilning á
dáðríku lífi sjómannsins, gáfu út-