Lesbók Morgunblaðsins - 21.01.1951, Page 8

Lesbók Morgunblaðsins - 21.01.1951, Page 8
36 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS HÆSTI Angelfossinn GAMALL málsháttur segir, að ekk- ert sje nýtt undir sólinni. Og það má gjarnan segja um íoss þann, er hjer verður sagt írá, því að um þúsundir eða jafnvel miljónir ára hefir hann verið til. En hann er „nýr“ að því leyti, að það er aðeins nú fyrir skemstu að menn hafa fundið hann. Og þó er þetta hæsti foss í heimi. Um mörg ár hefir verið talið, að Ribbon-fossinn i Yosernite dalnum i Sierra Kevada, væri liæsti foss í heimi. Óslitin fallliæð hans er 1612 Yosemite-íoss, sem áðirr var talinn Lmsti fccs f hoimi FOSS í í Venezuela fet. Að vísu er efri fossinn 1 Yosemite hærri, eða samtals 2565 fet, en hann er í tvennu lagi og er hærri fossinn 1«0 fet. Siðan flugvjelarnar komu til sög- unnar, hafa htenn aflað mikillar nýrr- ar þekkingar í sögu jarðfræðinnar, þvi að flugvjelarnar geta l'arið yfir þar seni engum manm var fært áður. Meðal annars var áður algjörlega ó- rannsakajXxr suðausturhlutinn af Venezuela. milli fljótanna Orinico og Amazon. Eru þar svo miklir frum- skógar að enguin manni var talið fært að brjótast í gegn um þá. En á þessum slóðum fanst nú hinn hái foss, er ber langt af öllum fossum á jörð- inni. Árið 1935 var maður nokkur, sem Angel hjet, á flugi yfir þessum slóð- um, og kom hann þá auga á fossinn fyrstur manna. Þess vegna er fossinn við hann kendur og kallaður Angel- foss. En ekki tókst Angel að mæla hæð hans, og ekki heldur þeim öðr- um flugmönnum er seinna fóru þar yfir. Er það og hrein tilviljun ef hægt er að sjá fossinn allan vegna hins mikla úða, sem þar kemur upp og fyllir gljúfrin fyrir neðan hann. Þokusamt er einnig þarna í háfjöll- unum. Fyrstu myndirnar voru tekn- ar af fossinum 1947. Það gerði ung- frú Ryth RobertSon, sem þá var að taka myndir fyrir frjettablöð, en hafði áður verið stríðsfrjettaritari. Til þess að geta náð þessum mynd- ura, varð hún að fljúga inn í gljúfr- in fyrir neðan fossinn, og var það mjög hættulegt vegna þess hvað þar var þrongt, en ílugvjelin varð að HEIMI Uii. : Samanburður á fallhaíð nokkurra kinmustu fossa. snúa við í gljúfrunum til þess að geta flogið út úr þeim aftur. Eftir þetta vaknaði mikill áhugi fyrir því að mæla hæð fossins, en það var ekki unt nema menn kæm- ist upp í gljúfrin. Þá var það, að Mr. Lowrey, starfsmaður hjá Socony- Vacuum Oil Company í Venezuela, tók sjer fyrir hendur að gera út leið- angur þangað. Var það þó ekkert áhlaupaverk. Þeir urðu að fara eftir ánum í eintrjáningsbátuln, draga þá

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.