Lesbók Morgunblaðsins - 27.01.1952, Side 10

Lesbók Morgunblaðsins - 27.01.1952, Side 10
r LESBÓK MORGUNBLAÐSINS { S8 Danskur loftskevtamaður frá Danmerkurhöfn og tvar gagns. Faðir hans er bankastjóri í Þrándheimi og mun vel fjáður, en Kasper, sem er sjálfboðaliði í ' brezka flughernum, er hér í orlofi ' sínu. Hann segir mér að afi sinn hafi verið Sundför, kaupsýslu- og útgerðarmaður, telur hann hafa átt hús og verstöð einhvers staðar á Austfjörðum, en kann þó ekki nán- ar frá að greina. Allir taka þeir mér af hinum mesta ljúfleik, bjóða mér kaffi og brauð, gefa mér stærð- ar lax, sem ég ætla að senda til Kaupmannahafnar með Gullfossi á morgun, og áðan færði Ivar mér horn af sauðnauti til minja um komuna. F -—---------- RABBAÐ í VEIÐIKOFA Við sátum áðan, allir fimm, inni í kofa og röbbuðum saman. Þeir spurðu mig frétta af íslandi og endurguldu með veiðisögum héðan frá Grænlandi. Þeir sögðu mér um Alpagondólinn og söguna af kammerherranum, sem kom í sínu fínasta stássi hingað í heimsókn til dönsku veiðimannanna. Þeim þótti hann full vel til fara og urðu sam- mála um að buxurnar hans væru full vel pressaðar. Refaskyttan, sem bar hann í land úr bátnum, hrasaði, svo að þeir duttu báðir kylliflatir, kammerherrann og hann. Hverjum getur ekki orðið fótaskortur? En þar sem sá gler- fíni herra og hofðingsmaður stóð þarna holdvotur í flæðarmálinu, þá vék burðarmaður sér að honum og sagði: „Þér hafið þó ekki vökn- að herra minn?“ Hér þýðir nefni- lega ekki að vera með neitt tildur eða fínheit. Sá, sem ekki vill vera hér skítugur og skeggjaður, á ekk- ert erindi til veiðimanna austur- strandarinnar. Hér stoðar enginn kammerherradómur. Hér geta menn líka orðið hálfgerðir harð- jaxlar, eins og gamli veiðimaður- inn, sem búinn var að vera hér öll sín manndómsár og vildi helzt vera einn, en var neyddur til að taka til sambýlis vesalings húsgagnasmið, sem ætlaði að verða hér einn vetr- artíma og afla fjár, svo að hann gæti gift sig. Gamli þrjóturinn kvaldi félaga sinn, unz hann hljóp írá honum um hánótt, aleinn út í myrkrið, hljóp og hljóp, þangað til hann kom að lokum til næstu veiðistöðvar, en þá var hann orð- inn geðveikur, aldrei beinlínis óð- ur, en haldinn hinum undarleg- ustu firrum, svo sem þeirri, að hann gæti mokað nóttinni í sjóinn, og þess vegna stökk hann stund- um út og jós snjó, unz hann var orðinn úrvinda af þreytu. Vesa- lingurinn. Hann kvað alltaf verða eitthvað undarlegur, ef einhver tal- ar við hann um grænlenzku skamm degisnóttina. En hinn? Hann hló bara, þessi bölvaði ruddi, sagði kjölturökkum hæfilegast að halda sig heima. Var það ekki hann, sem lagðist svo í fyllirí? Jú. Þeir leggj- ast sumir í drykkjuskap, brugga og drekka allan veturinn, og eru orðn- ir vesalingar þegar vorar. Þeir eru margir, sem' þöla ekki þetta langa myrkur, verða einrænir og viðskotaillir. Það er ekki heiglum hent að vera hér á veturna. Þið munið eftir piltinum, sem helfraus hérna fram í firðinum í fyrra? Ilann kunni ekki að búa sig að heiman, og þess vegna lét hann lífið. Og svo koma sögur um bar- daga við birni, langferðir yfir jökla og fannbreiður. Ótal ævintýri eru sögð meðan við sitjum, sötrum kaff- ið og reykjum í kofanum, unz Ivar segir að mál sé komið til að huga að netunum hérna innar í firðin- um, en þá ætlar Kasper að skrifa bréf, sem ég flyt til íslands í nótt, Arvid þarf að gefa hundunum, sem eru bundnir úti, Kristján gamli, sem búinn er að fá alloft út í bollann úr pela Arvids, leggur sig, en ég labba út til þess að skrifa í minnisbókina mína. Tjöldin þeirra Ivars og Kaspers

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.