Lesbók Morgunblaðsins - 27.01.1952, Blaðsíða 11

Lesbók Morgunblaðsins - 27.01.1952, Blaðsíða 11
w * LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 39 Mesta eyland heimsins. Hér eru merktir helztu staðirnir, sem Dynjandi kom á. Það er skemmra frá Danmerkurhöfn til pólsins en til íslands. eru rétt hjá mér. Þeir segja að hlýtt sé þar og gott að vera í hvílu- pokum, en Kristján sefur í kofan- um. Bátar, tunnur og önnur út- gerðartæki eru niðri við sjóinn. Spölkorn ofan brekkunnar, þar sem kofinn stendur, eru greinileg- ar leyfar gamallar Eskimóabyggð- ar, steinar, sem raðað hefir verið í hringi kring um tjöld og dys er rétt austan þeirra. Nú eru hér eng- ir Eskimóar framar, ekkert, sem vitnar um sögu hinna horfnu kyn- slóða þeirra, nema þessir steinar. Eða voru það íslenzkir menn og konur? Hver veit, nema að hér hafi einhvern tíma verið töluð íslenzk tunga, að íslendingar hafi stritað og strítt, elskað og dáið við þenna fjörð, að íslenzk bein hvíli undir þessum steinum? Hver veit? .... # „HVAÐ FINNST ÞÉR?“ (Hér langar mig til þess að skjóta inn ofurlitlum kafla, sem ekki er í dagbók minni, en ritað- ur var í bréfi Kaspers Andreasen til mín í s. 1. októbermánuði. Þar segir svo): „Föstudaginn 17. ágúst, ná- kvæmlega á sama tíma og er ég sat norður í Grænlandi við að skrifa bréfið, sem ég bað þig fyrir, var móðir mín stödd inni í borð- stofu heima. Allt í einu fannst henni að einhver væri kominn inn í stofuna, og er hún leit við var ég kominn þar, klæddur hversdags- fatnaði flugliða. Ég hvarf henni svo. Nú viSsi móðir mín ekki bet- ur en að ég hefði skilið eftir heima gamla einkennisbúninginn minn og vegna þess að bróðir minn er einnig í flughernum kom henni í hug, að e. t. v. hefði getað verið um missýning að ræða, hann hefði verið þarna en ekki ég. Hún hljóp því til föður míns og sagði við hann: „Ég sá annan hvorn drengj- anna okkar hérna inni í borðstofu áðan.“ Hringt var nú til bróður míns, því að móðir mín óttaðist að eitthvað hefði komið fyrir hann, en svo var ekki. Var nú leitað í fataskáp mínum og kom þá í ljós, að einkennisbúningurinn gamli var ekki þar, eins og ráð hafði verið gert fyrir, enda var ég í honum, þegar við hittumst á Grænlandi. Móðir mín, sem var hrædd um að ég hefði orðið fyrir slysi, hafði orð á þessu við ýmsa og leið henni mjög illa vegna þessa, unz bréfið barst, en þá áttaði hún sig á, að það hafði verið skrifað á sama tíma og þeim, sem hún sá þessa sýn. — Nú er ég ekki hjátrúarfull- ur, en samt þykir mér þetta und- arlegt. Hvað finnst þér?“ Hér lýkur þessum bréfkafla, og verð ég að taka undir þau orð Andreasens, að mér þykir þetta a. m. k. einkennileg tilviljun, sem engin ástæða er til að efast um að réttlega sé greind.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.