Lesbók Morgunblaðsins - 01.02.1953, Qupperneq 9
LESBÓK M0RGUNBLAÐ3INS
f 53
Frá Grænlandi, teikning eftir Hans Egede. — T. v. gamalt sambýlishús fyrir
6 fjölskyldur. T. h. er sýnd herbergjaskipan þar.
Þetta mæltist misjaínlega fyrir.
Madama Dórótea, sem var mikil-
hæf og stórlát kona af biskups
ætt, fékk af skiljanlegum ástæð-
um megnustu andúð á nýa að-
stoðarprestinum og fór ekki leynt
með. Hún hélt uppi mikilli risnu.
Einkum voru það embættismenn
og annað stórmenni, sem til henn-
ar komu og var þá cinatt látið
skína i það, að Hans Egede og
kona hans væru ósköp i'átæk og
eiginlega ekki samkvæmishæf.
Sóknarprestur i Lödingen, herra
Jakob Parelius, var nánasti yfir-
maður aðstoðarprestsins í Vaagan.
Samkvæmt gamalli venju messaði
sóknarprestur sjálfur í Vaagan á
vertíðinni (febrúar til júlí), þegar
mest var að gera og var goldin
tíund af aflanum. Aðstoðarprestur-
inn gekk þvi auðum höndum hálft
árið og bjó við sultar kjör.
Nú bar svo við að setja átti Hans
Egede í embætti 3. sunnudag í
föstu, 1708. Sóknarprestur var hinn
ljúfmannlegasti og kvað það sjalf-
sagt vera að guðsþjónustan félli
í hlut aðstoðarprests. En eftir
að hafa komið við hjá madömu
Dóróteu var herra Jakob þó alls
ekki á því. Þegar byrja atti mess-
an fór hann fyrir altarið og hvísl-
aði því um leið að Egede, að hann
skyldi láta sér nægja að stíga í
stólinn. Egede brá sér á eftir sókn-
arpresti inn fyrir altarishringinn.
Eftir stutta en snarpa orðasennu í
helgidóminum, lét herra Jakob sér
segjast og vék fyrir ofríkinu. En
þegar Egede sté í stólinn var hon-
um svo gramt í geði að hann
gleymdi að lesa guðspjallstekst-
ann og flutti þrumandi ræðu fyrir
troðfullri kirkju. Sjómennirnir
létu sér það vel lika, Sóknarprest-
ur og prófastur voru á öðru máli.
Hans Egede Var stefnt fyrir pró-
fastsrétt, fékk aminningu og var
gert að greiða bætur.
Til svipaðra átaka kcnr aítur
milli hans og sóknarprests, nokkr-
um árum siðar. Bvggð hafði verið
ný kirkja fyrir safnaðar fé. Hans
Egede og helztu forráðamenn safn-
aðarins töldu sig geta ráðið því
hver prédikaði í hinni nýju kirkju
og gerðu sér lítið fyrir og afskrif-
uðu sólmarprestinn og tilkynntu
honum það skriflega, Herra Jakob
kom þo að vanda í vertiðar byrjun.
Egede let ekki hlut sinn fyrr en
í fulla hnefana og la nu við að til
stympir-gum k*mi mj]ii prestaima
fyrir altari. Hans Egede var aftur
stefnt fyrir prófastsrétt og fór rétt-
arhald fram a heimili madömu
Dóróteu, og var henni skemmt.
Norskur sagnfræðingur, sem
hefur kynnt sér málskjölin, segir
að vörn Hans Egede fyrir retti, sé
mjög með öðrum hætti í siðara
skipti en hið fyrra. Ljóst sé að
óvenjulega slyngur og harðvítugur
barattumaður haldi á penna. Hann
eigi í fyrra skiptið erfitt með að
stiila skap sitt cg bregði fynr sig