Lesbók Morgunblaðsins - 29.11.1953, Síða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 29.11.1953, Síða 1
47. tbl. Sunnudagur 29. nóvember 1953 XXVIII. árg. • • ÞRÍR UNGIR íslendingar, þeir Brynjar Skarphéðinsson frá Akureyri, Indriði Indriðason og Vilhjálmur Sigtryggsson úr Reykjavík fóru snemma á þessu ári til náms og vinnu i skógum Alaska. Hafa þeir sent Lesbók Mbl. eftirfarandi frásögn um ferðir sínar og störf. Skiptu þeir þannig með sér störfum, að Brynjar skrifar fyrsta þáttinn, Indriði annan en Vilhjálmur hinn síðasta. Frásögn Brynjars Skarphéðinssonar INNGANGUR Eftir 13 klukkustunda flug lent- ÞEGAR sýnt þótti, að fræbirgðir um við í New York, þar sem við Skógræktar ríkisins mundu vart dvöldumst í tvo daga, en síðan var hrökkva lengur en til haustsins 1953, varð það að ráði Hákonar Bjarnasonar, skógræktarstjóra, að sendir yrðu menn til Alaska til fræsöfnunar árið 1953. Fyrir milligöngu Islenzk-amer- iska félagsins gaf skógstjórnBanda- ríkjanna kost á því, að þrír menn fengju vinnu á hennar vegum í Alaska. Þeir sem fóru voru Brynj- ar Skarphéðinsson, Indriði Indriða- son og Vilhjálmur Sigtryggsson. Eftir að öll nauðsynleg ^kilríki voru fengin var lagt af stað 26. apríl með flugvél Loftleiða Heklu. Kaldi var á norðan og þokuslæð- ingur, er við flugum út á flóann, en framundan beið fyrirheitna landið Alaska, landið þangað sem íslendingar munu í framtíðinni sækja stofninn að barrskógum Alaska er ærið kaldranalegt þegar komið er þangað flugleiðis. Fjallgarður sínum. um 100 km vestan við Juneau. haldið til Seattle, og gistum við þar eina nótt. Næsta morgun, 30. apríl, skildu leiðir. Indriði fór til Juneau, en við Vilhjálmur til Anchorage, en þaðan héldum við til Kenai Lake Ranger Station, þar sem við unnum í sumar. Það hafði aðeins tekið okkur fimm sólarhringa að ferðast þessa leið, sem er um 14.000 km, en flug- tíminn var aðeins 35 klstundir.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.