Lesbók Morgunblaðsins - 29.11.1953, Síða 23
LESBOK MORGUNELAÐSINS
733
hefir hún verið sendiherra Ind-
lands, fyrst í Moskva og síðan í
Washington. Og í fyrra fór hún
til Kína sem formaður menningar-
málanefndar, sem Indland sendi
þangað. Þegar heim kom lauk hún
loísorði á hinar auknu ræktunar-
framkvæmdir í Kína, en harmaði
það mjög hvernig kommúnista-
stjórnin hefði svift þjóðina öllu
frelsi. Og ekki tók hún hið minnsta
mark á þeim fullyrðingum komm-
únista að Bandaríkin hefði rekið
sýklahernað í Kóreu.
Allir spá því að henni muni
fara forsetaembætti allsherjar-
þingsins vel úr hendi. Hún er á-
kveðin, en réttlát. Hún fylgist vel
með öllu og nýtur virðingar full-
trúanna.
(Worlds Digest).
*
I iðrum jarðar
NÝLEGA er lokið leiðangri, sem gerð-
ur var út til þess að rannsaka hina
miklu hella hjá Pierre Saint Martin í
P’yreneafjöllum og fljótið mikla og
myrka, sem rennur þar djúpt í jörð.
Áður hafa verið gerðir nokkrir leið-
angrar þangað, en alltaf orðið eitthVert
slys, þangað til nú að allir mennirnir
komu aftur heilu og höldnu.
Aðalmennirnir í þessum leiðangri
voru þrír, Robert Levi, foringi leiðang-
uisins, Norbet Casteret hellafræðingur
og Lapineaux, sá sem hellana fann.
Komust þeir 728 metra niður í jörðina
og uppgötvuðu fjóra stóra hella, sem
menn höfðu ekki haft hugmynd um
áður að væri til. Var einn þeirra svo
stór, að Casteret segir að hann muni
vera stærsti hellir í heimi og áreiðan-
lega sá er dýpst liggur. — Var hann
skirður Verna-hellir í höfuð á félagi
nokkru i Lyons, sem lagt hefur til
flesta menn við rannsókn þessara
hella. Er hann talinn eitt af undrum
náttúrunnar. 1 honum er hvolfþak og
veggir og gólf slétt, en á gólfinu eru
þó heljarbjörg, eða drangar, sem gnæfa
upp í myrkrið. Um þenna helli rennur
liið mikla neðanjarðar fljót, þögult,
myrkt og djúpt. Loftið í heilinum er
KONUNGSSKUGGSJÁ
úr húi galdramanns
ÁRNI MAGNÚSSON setti öll þau
handrit, er hann komst yfir af
Konungsskuggsjá, undir eitt númer
og er það nú 243 íol. í saíni hans.
En hann aðgreindi þau með bók-
stöíunum a—r og bætti síðan við
s, sem er afrit hans sjálfs.
Handritið, sem dr. Finnur Jóns-
son notaði aðallega til að fylla
skörðin í norsku skinnbókinni,
þegar hann gaf Konungsskuggsjá
út, var handritið 243 e í Árnasafni.
Hefur handrit þetta geymst vel,
nema hvað tvö blöð vantar nú í
það. Allt er það skrifað með einni
hendi, og er nú 85 blöð.
Árni Magnússon hefur skrifað á
handritið: „Frá Páli Torfasyni“. —
Páll var sýslumaður í ísafjarðar-
sýslu (d. 1720), sonur séra Torfa
Snæbjarnarsonar á Kirkjubóli í
Langadal. Torfi andaðist 1668. — Á
einum stað í handritinu stendur
skrifað utanmáls, að Torfi hafi
fengið bókina til eignar frá erf-
ingjum Þórðar Guðbrandssonar á
Munaðarnesi hinn 4. marz 1664. Og
Árni Magnússon hefur enn skrifað
á bókina: „Snæbjörn Pálsson sagði
mér á Alþingi 1702 að ég mætti
bíhalda því“. Er þar eflaust átt við
Snæbjörn son Páls Torfasonar.
En Þórður Guðbrandsson, sá sem
bókin er frá komin upphaílega, er
enginn annar en Þórður sá, er Þor-
leilur Kortsson brenndi fyrir
galdra í Trékyllisvík 20. sept. 1654,
og sagt er frá í seinustu Lesbók.
Þess er að vísu hvergi getið í máls-
skjölunum hvar hann hafi átt
heima, en Margrét dóttir hans átti
heima á Munaðarnesi, og þar býr
einnig Grímur Þórðarson 1669. —
Margrét var ekki laus við sín
galdramál fyr en síðsumars 1662,
en eftir það átti hún heima í ísa-
fjarðarsýslu, svo að séra Torfi hef-
ur getað fengið handritið hjá henni.
Vera má að Þórður Guðbrands-
son hafi sjálfur afritað Konungs-
skuggsjá, en hvað sem um það er
þá ber það vott um að hann hafi
verið fræðimaður, að hann skyldi
eiga Konungsskuggsjá. — Og hafi
hann svo safnað öðrum fróðleik
einnig, þá er ekki furða þótt hann
hafi verið talinn „mestur galdra-
maður í Strandasýslu“.
hreint, en hitinn er ekki nema 4 stig
á celsius, en vatnið í ánni er einu stigi
kaldara. Þarna niðri í þessu regindjúpi
og kulda fundu þeir tvö skorkvikindi,
gem þeir kalla „aphenops“, og þriðja
kvikindið, sem á latínu nefnist „cento-
pedia“; var það snjóthvítt og nær
gagnsætt. Annars fundust þarna engin
merki um lif.
Þar sem þeir komu að seinasta hell-
inum, fell áin niður í hann í 20 metra
háum fossi, en hvarf svo niður í gjá
í hinum enda hellisins.
Nú er byrjað að grafa jarðgöng við
rætur fjallsins Trou de Vent, því að
menn ætla að þaðan sé skemmst að
komast inn að neðanjarðar móðunni.
Eru þarna sprungur miklar og síendur
sífclldur blástur upp um þær, en niðri
í jörðinni þykjast menn heyra vatna-
nið.
Þeim félögum varð ckki neitt meint
af veru sinni þarna niðri í jörðinni.
Um nætur sváfu þeir í upphituðum
tjöldum. Enga áfenga drykki höfðu
þeir með sér, en lifðu mikið á sykri
og feitmeti, af því að það er bezti hita-
gjafinn. Kvikmynd var tekin þarna
niðri og til lýsingar notuðu þeir
„acetylen“-blys og magnesiumljós.
(Hinn 19. júlí í sumar birti Lesbók
myndir úr þessum hellum).