Lesbók Morgunblaðsins - 20.03.1954, Síða 4

Lesbók Morgunblaðsins - 20.03.1954, Síða 4
184 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS verið að sjá hann. Hefði hann verið alblóðugur í framan, augun rauð og bólgin og hann hafi skolfið eins og hann væri festur upp á þráð og varla getað komið upp neinu orði. Skipaði hann þá Daniel að fara með Bjarna á fund Pietre Dan og vita hvort hann gæti ekki hjálp- að honum eitthvað. Rétt þegar þeir voru farnir kem- ur stýrimaður á „Sem Valerfe“ ró- andi á báti út að ísafirði. Spurði Hansen hann þá á ensku hvernig hann dirfðist að berja á saklausum mönnum, er kæmi um borð til þeirra, og sagði að þetta skyldi verða þeim dýrkeypt. — Stýri- maðurinn spurði þá hvort þetta væri skipstjórinn og er Han- sen svaraði því játandi, þá kvaðst hann skyldu sýna honum að hann væri Frakki og skyldi koma aftur og jafna um gúlana á honum. Reri stýrimaður síðan yfir að sínu skipi og bætti við sig fjór- um mönnum. Kom svo aftur róandi vfir að ísafirði. — Þóttist Hansen skipstjóri þá vita, að þeir mundu ætla sér að ryðjast um borð hjá sér og valda óspektum. Skipaði hann því mönnum sínum að grípa öll há- karlasöx og lensur, sem lágu á þil- fari, en sjálfur tók hann byssu og helt á henni. — Frakkar voru nú komnir í námunda við skipið, en er þeir sáu þennan viðbúnað, stöðv -uðu þeir bátinn og lömdu sjóinn með árunum og kölluðu að þeir skyldi koma seinna betur út búnir. Sneru þeir svo aftur til skips síns. En Hansen skipstjóra leizt ekki á að eiga í þessum ófriði. Lét hann því hafa upp akkeri, sigldi yfir fjörðinn og lagðist þar. Snemma næsta morgun, eða í aftureldingu, meðan flest fólk í landi var enn í svefni, komu í land 8 menn af „Sem Valerfe" og gengu með miklum hávaða upp að bæn- um Leiti, sem er skammt frá Al- viðru. Enginn karlmaður var heima á Leiti. Var þar aðeins fyrir hús- freyan, María Oddsdóttir, tvær vinnukonur og unglingsstúlka. — Voru þær allar í fasta svefni er Frakkar ruddust inn í baðstofuna með ærslum og hávaða. Voru þeir þar nokkra stund inni, en gerðu konunum þó enga skráveifu og tíndust út aftur. Guðmundur Gíslason bóndi í Al- viðru hafði orðið var við manna- ferðina og vegna þess að hann vissi að enginn maður var til varnar á Leiti, flýtti hann sér þangað. Kom hann að í því er Frakkar voru að koma út úr bænum. Tóku þá tveir þeirra til fótanna upp fyrir bæinn og síðan niður að sjó. Hinir tóku hann tali og spurðu hvort hann gæti ekki útvegað sér kaffi, en hann tók dræmt í það. í sama bili kom María húsfreyja fáklædd út og kvað horfnar vera nýar nær- buxur af bónda sínum, og hefði legið á tunnu í bæardyrum, og mundu Frakkar hafa stolið þeim. Guðmundur bauð þá þessum sex er eftir voru að koma með sér heim að Alviðru. Þar leitaði hann á þeim, en fann ekkert og hugði því að þeir tveir, er brott hlupu, mundu hafa rænt nærbuxunum. Eftir stutta viðdvöl í Alviðru fóru Frakkar aftur um borð, en komu enn eftir svo sem klukku- stund. — Höfðu þeir þá með sér brennivín og settust að drykkju í landi, en heldu svo aftur niður að sjó. Rétt á eftir var kallað til Guð- mundar frá Leiti, að Frakkar væri að eltast við kindur þar niðri á bökkunum. Hljóp Guðmundur þá niður að sjó og kom þar að sem Frakkar leiddu lambá eftir fjör- unni og kölluðu hástöfum um borð að bátur væri sendur eftir sér þeg- ar í stað, og var báturinn þegar kominn á leið til lands. Þessi kind, sem þeir höfðu náð, var tvævetla, sem Zakarías sambýlismaður Guð- mundar átti, og höfðu þeir farið illa með hana, reitt af henni ullina og veitt henni allmikið hnjask. — Lambið lá þar langt frá steindautt, blátt og sprengt. Guðmundur kall- aði hastarlega til þeirra og skipaði þeim að sleppa ánni og gerðu þeir það með nokkrum semingi. Skildi svo með þeim en aldrei fengust neinar bætur fyrir þetta. Seinna þennan dag, þegar komið var undir kvöld, fór Guðmundur um borð í hollenzka skipið, sem Wiljelm Schou stýrði. Voru þar þá fyrir í heimsókn 19 franskir skip- verjar af „Sem Valerfe“ og virtust þeir allir mjög ölvaðir. Tók Guð- mundur eftir því, að þeir voru allir mjög slæmir við einn félaga sinn, hröktu hann og börðu og einu sinni sá hann þá berja hann svo, að hann stakkst á höfuðið. Virtist honum sem þessi maður mundi vera á sex- tugsaldri, hár maður, grár á skegg og lotinn í herðum. Þessi maður kom til Guðmundar og talaði eitt- hvað við hann og skildist Guð- mundi að hann væri að bera sig upp undan því hvað félagar sínir væri vondir við sig. — Guðmundi leizt svo illa á þennan soll, að hann hraðaði sér í land aftur. & Næstu nótt, er allt fólk var í fasta svefni á Alviðru, vaknaði það við að verið var að ríða húsum og brjóta glugga með miklum hávaða. Voru þar komnir 19 Frakkar, senni -lega af þremur skipum. Börðu þeir húsin utan og brutu tvo gler- glugga úr baðstofu og reyndu að skríða þar inn, en tókst ekki. Þá rifu þeir að nokkuru þil frá hlöðu, brutu eikarsneril frá baðstofu, brutu upp tvennar- hurðir, sem voru fyrir fjósi þar sem gripir voru geymdir inni, en gerðu þeim þó ekki mein. Meðan þessu fór fram, vildi svo

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.