Lesbók Morgunblaðsins - 20.03.1954, Blaðsíða 12
192
LESBOK MORGUNBLAÐSINS
Fdfnisbólið mikla
Gullgeymsla
Bandarikjanna
í Fort Knox
UM 30 MÍLUR suðvestur af Louis-
ville í Kentucky ríki er Fort Knox,
mesta fjárhirzla í heimi, þar sem
Bandaríkin geyma gullforða sinn. Og
þessarar fjárhirzlu er vandlega gætt.
Þar sem vegurinn liggur frá þjóðveg-
inum í áttina til Fort Knox, stendur
spjald og á það letrað stórum stöfum:
„Hætta! Snúið við! Vopnaður vörður!“
En ef menn skeyta nú ekki um þetta
og halda lengra, þá koma þeir að öðru
spjaldi og á það er letrað með enn
stærri stöfum: „Staðnæmist! Tilkynn-
ið erindi yðar í hátalara! Farið ekki
lengra leyfislaust!"
Enginn hefir enn dirfzt að freista
þess að ræna þessa fjárhirzlu, enda
væri ekki hlaupið að því. Veggir henn-
ar eru úr alnarþykkri járnbentri stein-
steypu og allar hurðir úr stáli, sem
hvorki er hægt að bræða með log-
suðu né bora sundur. Og undir þess-
ari byggingu eru svo hvelfingarnar
þar sem gullið er geymt. Og það er
ekkert smáræði, 12.500 tonn, eða sem
svarar 12.500 milljónum dollara að
verðmæti.
Oflugur vörður vopnaðra manna gætir
byggingarinnar nótt og dag og skammt
frá er setulið, sem hægt er að kalla
þangað á svipstundu, ef einhver hætta
er á ferðum. Hver varðmaður hefir
verið vandlega reyndur áður en hann
fær stöðu þarna, en þó er haft vak-
andi auga með hverjum manni. í
hvert skifti, sem menn fara af verði
í fjárhirzlunni, verða þeir að fara úr
hverri spjör og ganga undir steypibað.
Fötin eru síðan athuguð nákvæmlega,
hvort nokkur minnsta ögn af gulli loði
við þau, og sjálft baðvatnið er hreins-
að og rannsakað í sama tilgangi. Hvert
einasta orð, sem sagt er innan veggja,
er hlerað. Þar er ekki hægt að hvísla
svo lágt, að hljóðmagnarar hendi ekki
talið á lofti og komi því á framfæri
við yfirmennina, sem eftirlit hafa með
varðmönnunum.
Dyrnar að neðanjarðar hvelfingun-
um, eru luktar með hurð, sem veg-
ur 26 tonn. Læsingin á hurðinni er
svo margbrotin, að enginn einn maður
veit hvernig á að lúka upp hurðinni.
Og i hvert skifti, sem eitthvað er
rjálað við hana gefur rafstraumur það
til kynna í skrifstofu eftirlitsins.
Gullgeymslurnar eru alls 28 og fyrir
sérhverri er öflug stálhurð með galdra-
læsingu. En það væri svo sem ekkert
áhlaupaverk fyrir innbrotsþjófa að
komast á burt með gullið, enda þótt
þeir kæmist inn í gullgeymsluna, því
að gullið er í svo þungum stykkjum
og stórum, að þau eru ómeðfærileg
nema með vélaafli.
Aldrei hefir slíkur gullforði verið til
á einum stað á jörðinni eins og nú er
í Fort Knox. Þar er meira gull heldur
en í öllum bönkum Evrópu samanlagt,
að undanteknu Rússlandi. Og líklega
er ekki jafn mikið gull eftir í hinum
auðugu námum Suður Afríku, eins og
þarna er.
Þessi mikli gullforði er ekki notað-
ur til neins, nema til öryggis. Meðan
Bandarikjamenn vita að þessi auður
liggur þar óskertur, eru þeir ánægðir
og öruggir um hag ríkisins. Meðan
gullið liggur þarna gengur allt sinn
vana gang, framleiðsla og viðskifti, og
dollarinn verður eftirsóttasta mynt
jarðarinnar, gjaldgengur og í fullu
gildi hvar sem er í hdíminum.
____—?
BRIDGE
A G 4 3
V 9
♦ 5
♦ KDG76432
AD76
V G 10 5 3
♦ K G 10 9
3
* 5
A Á K 2
V 7 6 4
♦ Á 8 6 4 2
♦ Á 10
Spil þetta kom fyrst fyrir i einka-
keppni og S gaf. Hann sagði 1 grand og
N sagði þá 5 lauf. Það má mjög deila
um hvort rétt hafi verið sögnin hjá S,
sumir segja að hann hafi átt að opna á
1 T. En þrátt fyrir það er mjög ólíklegt
að N—S hefði komizt í slemmsögn. Þó
er hægt að vinna 6 lauf á þetta spil, og
skulum vér nú athuga hvernig það má
takast.
A slær út HÁ og síðan HK en hann
er drepinn með trompi. N lítur nú svo
á, að hann verði að reyna að fría
fimmta slaginn í tígli til þess að geta
unnið. Byrjar hann því á þvi að taka
trompás og slær svo út TÁ og þar næst
lágtígli, sem hann trompar í borði. Síð-
an kemur hann S inn á L10 og slær enn
út lágtígli og trompar, en þá kemur i
ljós að A á ekki fleiri tígla. Þessi leið
reyndist því ófær og nú var engin von
önnur en koma andstæðingum í kast-
þröng, og það gat blessazt ef V hafði
SD. N tekur því á öll tromp sín nema
eitt, og þá hefur S eftir Á og K í
spaða og tvo tígla. V getur nú ekki gert
hvorttveggja að valda SD og TK, og
þar með hefur N unmð spílið.
A 10 9 8 5
V ÁKD82
♦ D 7
«98