Lesbók Morgunblaðsins - 20.03.1954, Blaðsíða 13

Lesbók Morgunblaðsins - 20.03.1954, Blaðsíða 13
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 193 Jón Guðmundsson, Valböll: SVEITARLÍF FYRIR LÍTI maður til baka yfir 50—70 ár, þá er það ævintýri líkast. Um þær mundir lágu leiðir manna um krókótta götuslóða, sem gengnir höfðu verið öld eftir öld, svo að jafnvel götuslóðar höfðu myndast í hart bergið undan hófum hest- anna. Óvíða sást lagður vegur né brú. Hver bær var einangraður að kalla, og helzta sambandið við um- heiminn voru kaupstaðarferðirn- ar. Þar sem ég ólzt upp stóðu kaup- staðarferðir oft í viku. Hlökkuðu börnin mjög til þegar komið var úr kaupstaðnum, því að þá fengum við rúsínur, bolta eða kannske vasahníf fyrir hagalagðana, sem við höfðum tínt og þvegið og táið sem vandlegast til þess að þeir gæti heitið verslunarvara. Eitt sinn fékk ég skrifbók. Hún kostaði 10 aura. Faðir minn gaf mér forskrift, og mikið yndi hafði ég af þeirri bók. Nýtnin var mikil á þeim ár- um, engu mátti fleygja, sem hægt var að nota á einhvern hátt. Þess vegna var það venja að nota göm- ul umslög til þess að gefa börnum forskrift á. Reikningsspjöld feng- um við með viðfestum griffli til þess að reikna á. Það hefði þótt meiri fásinnan og ráðleysan að láta krakka fá bréf til að reikna á. Kennsla barnanna fór fram í baðstofunni. Hún var í senn svefn- hús, vinnustofa og skólahús. Þarna fór fram allskonar tóvinna, oft spunnið á 4—5 rokka í senn, kembt, tvinnað og ofið. Þarna var líka smíðað, gert við laupa og ýmislegt annað. Enginn mátti sitja auðum Jón Guðmundsson höndum, ekki einu sinni gestir. Einn las upphátt fyrir fólkið og svo var rætt um efni þess, sem lesið var, eins og nú er farið að gera í hinum svokölluðu leshring- um. Baðstofan var 5 stafgólf, í henni gátu sofið 18 og sá 19. í vöggu. (Ég man vel eftir vögg- unni minni. Hún var fengin frá Galtafelli og hafði hrokkið kvistur úr öðrum gaflinum). Mér eru minn- isstæð andlitin í baðstofunni, þar sem hver sat á sínu rúmi og keppt- ist við sitt. í Hörgsholti var blindur maður, niðursetningur sem Gísli hét. Okk- ur var kennt að var ljúf og góð við hann. Hann átti rósóttan og útskor- in stól úr Hrunakirkju og var það víst eina jarðneska eignin hans. En sál hans var rík. Hann kunni ó- sköpin öll, passíusálmana alla ut- anbókar og söng þá oft. Við börn- in þvoðum oft fætur hans, þyí að hann var með sár á þeim, sem 60 ÁRUM ekki vildu gróa, gömul kalsár. Hann var einn af þeim, sem lentu í mannskaðabylnum mikla á Mos- fellsheiði. Þegar hann sagði frá þeim raunaatburði var hann vanur að segja frá því, að hann og ein- hverjir fleiri hefði gist í Vatnskoti nóttina áður og þar hefði föt þeirra verið þurrkuð og það hefði orðið þeim til lífs. Hinir, sem gistu á Þingvöllum fengu ekki föt sín þurrkuð. Alltaf var lesinn húslest- ur heima og sungið, og vegna þess að Gísli var heyrnarsljór, lét pabbi hann sitja hjá sér meðan hann las. Hann þakkaði alltaf lesturinn með handabandi. Þá sagði faðir minn: „Guð veri þér og okkur öllum náð- ugur í blíðu og stríðu.“ * Snemma var okkur krökkunum kennt að vinna og halda okkur að vinnu. Voru foreldrar okkar þar góð fyrirmynd, því að þau voru sístarfandi. Bæði voru þau prýðis- vel að sér, svo að faðir minn komst ekki hjá að sinna opinberum störf- um. Var hann hlédrægur, en fylgdi sannfæringu sinni hver sem í hlut átti. Mér er eitt atvik í fersku minni. Þá var það algengt að heimilum var sundrað ef þurfandi fólk átti í hlut. Nú andaðist þarna í sveit- inni ungur maður frá konu og mörgum börnum. Meirihluti sveit- arstjórnar vildi þá taka upp heim- ilið og skifta börnunum niður á bæi. Þá reis faðir minn upp og mót- mælti þessu harðlega og ekki létti hann fyr en hann fékk sitt mál

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.