Lesbók Morgunblaðsins - 20.03.1954, Síða 14

Lesbók Morgunblaðsins - 20.03.1954, Síða 14
194 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS fram. Varð það og öllum happ, ekkjan komst af með sinn myndar- lega barnahóp hjá sér. Vinnan var unglingunum oft erfið á þeim dögum, en lífsbarátt- an var hörð. Þá var farið að brydda á því að menn langaði til að gera jarðabætur, en þeir höfðu engin verkfæri til þess nema torfljá og skóflu. Það þótti mikil framför þegar ristuspaðarnir komu. Annars var félagslíf og framtak víst í góðu meðallagi þarna í hreppnum og höfðu bændur þar orð á sér að verða á undan með ýmislegt og fengu búfræðinga til að ieiðbeina sér. Man ég eftir því að verið var að hlaða flóðgarð yfir sund og var Gísli Þorbjarnarson búfræðingur þnr verkstjóri. Ég færði þeim mið- aftanskaffi í legli, en það var lítil tvíbvtna með blýstút á bumbunni og tappagati á efra botni. Þeir voru þarna 6 að vinnu og slóraði ég hjá þeim eftir að kaffið var drukkið, því að mér þótti gaman að horfa á vinnubrögðin. Þegar klukkan var 8 kallar Gísli: „Kvöld!“ og þá áttu allir að hætta. fen þá segir Þorgeir Halldórsson, sem var vinnumaður hjá föður mínum: „Mér finnst sjálfsagt að Ijúka við garðinn", og helt áfram að vinna og þeir allir. KL 9 var garðurinn fullger. En ég hafði orðið vitni að því að við þennan flóðgarð rákust á gamli og nýi tíminn, annars vegar áhugi manna fyrir því, sem þeir voru að gera, en á hinn bóginn krafan um að hætta vinnu að ákveðinni stundu, hvernig sem á stendur. - - Vinnan var stundum skóli, sem þjálfaði hugsunarsemi og athyglis- gáfu unglinganna. Við vorum snemma vanin á fjárgæzlu. Um sauðburðinn urðum við daglega að ganga við lambærnar. Nú voru margar ær í Hörgsholti og átti hver sitt nafn, og var það regla að skrifa í bók stutta lýsingu á lömbum þeirra. Nú þekktum við ekki allar ærnar með nöfnum og urðum því að setja á okkur öll einkenni þeirra svo að við gætum lýst þeim þann- ig er heim kom, að pabbi þekkti þær, og eins að lýsa lömbunum. Gat þetta orðið mikil æfing fyrir minn- ið þegar margar ær báru á dag. Ennfremur urðum við að koma lömbum á spena, ef þess þurfti. Og ef við fundum dauðan einlembing, þá áttum við að taka af honum skinnið, ná í tvílembing, klæða hann í skinnið og venja hann undir ána, sem misst hafði undan sér. Við þetta þurfti mikla nákvæmni, en ef ærin vildi ekki taka lambið að sér, þá var það seinasta úrræðið að koma með hundinn til hennar. Þá var hún hrædd um lambið fyrir hundinum og tók að sér að verja það og eftir það þurfti vanalega ekki nema dálitla þolinmæði til þess að fá hana til að lofa því að sjúga sig, og þá var björninn unninn. Á vertíðinni fóru allir karlmenn til sjóróðra nema pabbi og urðum við því að hjálpa honum við hirð- ingu fjárins. Fjárhúsin voru sex og stóðu úti í högum og var nokk- uð langt í sum þeirra. Tíu voru húsin heima á túni og þar var líka heygarður, en kuml við fjárhús- in, sem lengra voru burtu. Þurfti þá stundum að aka þangað heyi á vorin, þegar upp voru gefin kuml- in, sem fyrir kom í harðindum. Pabbi treysti okkur ekki til þess að fara á fjarstu húsin, síst ef veð- urútlit var ótryggilegt. (Þá voru ekki veðurfréttir né útvarp, mundi hafa verið talið galdratæki, ef ein- hver hefði haft fréttir af því). Áð- ur en pabbi færi að heiman, sagði hann svo fyrir verkum, og það var um að gera að fara nákvæmlega eftir því og bregða í engu út af, enda kom manni slíkt ekki til hugar. „Taktu fyrst stóra laupinn (þetta var fjögra kúa laupur) og gefðu úr honum í hestaréttina, gættu þess að sópa vandlega allan salla úr stöllunum og annaðhvort dreifa honum á gólfið eða geyma hann í stallenda. Svo tekurðu langrimaða laupinn, hann er í austurskjólinu í garðinum, og gefur úr honum á stóra lambhúsið. Sópaðu vandlega jöturnar og rakaðu gólfið og gefðu það á tryppahúsið. Tveggjakúa- laupinn gefurðu á Aukatúnslamb- húsið, hann er líka austur í skjól- inu, moðið gefurðu á Flatarhesthús- ið, en ruslið kemurðu með heim og lætur það undir nautin í vestur- kofanum. Kaldbakslaupurinn er í vesturskjólinu, hann gefurðu á framlambhúsið, moðið gefurðu á framhesthúsið. Hrútakugginn tek- urðu og gefur hann á hrútakofann. Ef ég verð ekki kominn þegar þú hefur lokið þessu, þá væri gott að gefa á fjárhústúnið þriggjakúa- laupinn minni, sem er í vestur- skjólinu, moðið kemurðu með og gefur það á hestaréttina ef ekki er mjög hvasst, annars 'læturðu það vera í endanum á jötunni. Gott ef tími vinnst til að vatna folöldun- um í stóra lambhúsinu, þú gefur þeim eins og vant er, vænan bolla af sýru í hverja fötu og gætir þess að hafa föturnar ekki svo fullar að skvettist á þig. Og mundu svo eftir að búa þig vel og fá þér skyrspón áður en þú ferð í húsin.“ — Það var oft beygur í manni að fara í hrútakofann, því eitt sinn fekk ég slæmt högg við hellujötu, sem í kofanum var. Það er skap í hrútunum stundum. En folöldin og lömbin undu sér vel saman í húsi. Folöldin hneggjuðu til okkar þeg- ar við komum með drykkinn, en þá var verst að verjast lömbunum, sem voru stundum aðgangsfrek og vildu líka fá að drekka. Þá áttu

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.