Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1954, Side 3

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1954, Side 3
Ásmundur Guðmundsson biskup í prédikunarstóli dómkirkjunnar. hve Guð er mikill og vér smá, gagntekur oss, og vér hrópum til hans: Guð, fær hjarta vort þekkt hjarta þitt? — Þá er Jesús svar, orðið frá Guði, sem veitir sálinni frið. Hann kallaði veruna, sem er hulin uppspretta alls og tak- mark, hafið, sem allt streymir til aftur, föður sinn og föður vorn. Og það, sem er enn meira. Hann sýndi oss með því að koma og vera eins og hann var, að kærleiksdjúp er að baki tilver- unnar. Hann lætur oss finna, hvernig hjarta Guðs slær, skýrt og átakanlega, svo að hvert barn á að geta skilið. Hann, sem fæddist á jól- unum, er sjálfur lifandi kærleiki Guðs til vor mannanna. „Sonurinn eingetni, sem hallast að brjósti föðurins, hefur veitt oss þekking á hon- um.“ (Jóh. 1, 18). Þegar hjarta vort er harmþrungnast yfir því, við hve mikla andlega fátækt æfin líður, trúin veik, verkin hálf, hugur og hjarta skipt og vilj- inn á valdi fýsnanna og vér hrópum á fyrir- gefningu — þá hljómar til vor jólaboðskapurinn um frelsara, sem leitar hins týnda. Allt það í sál vorri, sem horfir við honum eins og barn við ljósi og laðast að honum, fær eilífðargildi í birtu hans. Og þótt synd og spilling hlaðist um það, þá er kærleiki Guðs á liverju augabragði fús til að fyrirgefa og senda oss mátt til þess að lyfta oss upp úr duftinu. Jesús Kristur. Guðs föður vera fegurst mynd, elskar oss. í þcim kærleika býr frelsi og fyrirgefning. Engan geislastaf getum vér litið bjartari frá líknarveldi guðdómsins. Og þegar hjartað hrópar á bót við böli mann- anna, þegar skuggarnir af neyð þeirra, stríði, kvöl og dauða, blóðsúthellingum og styrjöldum, leggjast svo yfir oss, að lífsgleðin daprast og myrkvast — þá sýnir Jesús oss hugsjón guðs- ríkisins og bræðralagsins með sívaxandi dýrð og gefur oss fyrirheit um það, að hún muni verða að fullum veruleika á jörðinni, þótt myrkrið hafi ekki enn tekið á móti henni. I hverju starfi fyrir hana mun hann vera mitt á meðal vor. Er ekki þetta allt að sjá dýrð Jesú Krists, dýrð sem eingetins sonar frá föður? Og að lokum stutta, sanna sögu: Ungur piltur lá á sjúkrabeði. Læknirinn kom til hans, og þeir töluðu saman um sjúkdóminn og hve alvarlegur hann væri. Áður en aðgerð hófst, sagði læknirinn: Viltu nú ekki minnast þeirra, sem þér eru hjartfólgnastir? Pilturinn þagði fáein andartök, og blikaði á tár í augum hans. Hann hugsaði eflaust til móð- ur sinnar og föður og svstkinanna heima. Síðan lagði hann höndina á brjóst sér og sagði: „Lofaður sé Jesús Kristur.“ Þeirrar trúarreynslu, sem stóð þessum orðum að baki, vil ég nú óska yður, ástvinum yðar og öllum mönnum. Hún er helgasta gjöf lífsins. Þetta er að sjá dýrð Jesú. Gleðileg jól í nafni hans.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.