Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1954, Blaðsíða 19

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1954, Blaðsíða 19
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 791 ekki breiðari en svo, að tveir menn geta gengið samhliða. Báðum megin eru grafirnar, oftast 4 eða 6 hver uppi yfir annari, höggnar í steininn, og ekki stærri en svo, að skjóta mætti líkinu þar inn á hlið. Þær eru lokaðar með töflum úr steini, stund- um úr marmara, og eru á þeim graf- letur á latínu eða grísku. Stundum er latínan rituð með grískum stöf- um. Allar eru þær grafminningar mjög stuttorðar, oftast ekki ritað nema nafn, og undir því: Depositus in pace, eða: „Vivas in ace et pete pro nobis! eða Deus Christus omni- potens spirituum refrigeret o. s. frv. (Hvíl í friði, eða Hvíl í friði og bið fyrir oss, eða Kristur guð almáttugur svali þínum anda). Hinar elztu af grafningum þeim, sem menn hingað til hafa fundið, munu vera frá fyrstu árum á annari öld eftir Krist. Þær ná allt að 5. öld. Þá hættu kristnir menn að grafa þar. Þar eru einnig kapellur og stendur víða enn altarið. Yfir kórnum er hvelfing og innan á henni myndir (byzantinskar), annaðhvort postul- arnir og María mey með Krist í faðminum, eða þær tákna kvöldmál- tíðar sakramentið, og hafa litirnir haldist furðanlega vel á þeim sum- um. Menn ætla að í Catacombunum sé jarðaðar sex milljónir manna. II-IÁ PÁFA Að koma til Rómaborgar og sjá ekki páfann, er líkast því ef útlend- ur ferðamaður kæmi til íslands og skoðaði ekki Geysi. Það er líka nógu hægt að fá að sjá páfann, t. a. m. við ýmsar kirkjuhátíðir, þegar hann syngur messu. En að ná fundi hans og tala við hann er öllu erfiðara, því margir leita hans sem hafa mikil- væg mál að flytja, svo þeir, sem ein- ungis af forvitni vilja finna hann, verða að láta sér lynda að bíða. Mér vildi samt svo vel til, að Píus IX. páfi. Barnabo kardínáli spurði mig, skömmu eftir að ég var kominn, hvort ég mundi ekki vilja finna páfann, og þegar ég játti því, sagðist hann mundu biðja Bedini erkibiskup, sem hefir verið sendiboði páfa í Banda- ríkjunum, að fylgja mér á fund páfa eitt kvöld. Páfinn (Pius IX.) býr í Vatikan- inu við hliðina á Péturskirkjunni, en ekki eins og margir fyrirrennarar hans í Quirinalinu á Monte Cavallo. Monsignore Bedini og ég ókum þang- að klukkan sex um kvöldið. Þá er minnst annriki páfa, og tekur hann ekki á móti nema einstaka mönnum eftir þann tíma. í neðri herbergjunum, sem við gengum í gegn um, voru lífverðir páfa hinir svissnesku, í röndóttum búningi (rauðum, gulum og svört- um) og alvopnaðir. í hinum efri her- bergjum voru nokkrir þjónar, og í herberginu næst því, sem páfinn var í, sátu nokkrir hirðmenn hans og aðr- ir, sem líklega vildu tala við hann. Eg beið skamma stund, meðan Bedini gekk inn til páfa og sagði til mín. þá kom hann út aftur og beið meðan ég átti tal við páfann. Páfinn sat við skrifborð sitt, og ljós logaði fyrir framan hann, svo ég átti hægt með að taka eftir and- litslaginu. Ekki var annað sæti í her- berginu en það, sem páfinn sat í, því ekki er siður að menn setjist niður þegar menn tala við hann, heldur flytja menn erindi sitt standandi. Páfinn var í hvitum kyrtli eða hempu, með belti um mittið, og hafði hvíta húfu á höfði. Hann er með hærri meðalmönnum og nokkuð feit- laginn, og þegar hann stóð upp all- höfðinglegur að sjá. Andlitið er nokkuð stórskorið og með rómversk- um svip, ennið hátt og liður á nef- inu, hárið nærri því alhvítt. Að öðru leyti var hann með léttu yfirbragði og sá lítið á honum mann- raunir þær allar, er hann átti í árin 1848 og ’49, og jafnvel síðan. Hann tók vel kveðju minni og spurði ým- issa frétta af Norðurlöndum. Sagði hann að ég væri ekki sá fyrsti ís- lendingur, sem hann hefði kynnzt við, því meðan hann var biskup, hafði hann þekkt Albert Thorvaldsen. „En sá kærði sig ekkert um neina trú“ bætti páfinn við. iRAR OG ÍSLENDINGÁR SVIPAÐIR Eg hefi nú í Rómaborg kynnzt við presta úr flestum löndum í heimi, og þykir mér að allar skoðanir og alt ástand þeirra fari mjög eftir því, hvernig ástatt er fyrir þjóðinni í hverju landi, því kirkjan getur ekki breytt þjóðarskaplyndinu, en verður að haga sér eftir því, og gera sér sem bezt úr því, ef hún vill á annað borð hafa nokkur áhrif á lífið. Prestar úr Bandaríkjunum, frá Englandi, Irlandi og Hollandi, fund- ust mér í öllu frjálslyndastir í skoð- unum sínum og vanir því að treysta sjálfum sér og sínu málefni, án þess að heimta eða væntast eftir nokkurri aðstoð frá hálfu hinnar veraldlegu stjórnar í hverju landi. En hinir frakknesku, ítölsku og að sumu leyti nokkrir Þjóðverjar, voru meira fyrir að slá öllu saman í eitt, andlegri og

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.