Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1954, Blaðsíða 15

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1954, Blaðsíða 15
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 787 Skyrtan flaug í háaloft með útþöndum ermum, eins og- höfuðlaus og fótalaus búkur. Eg tók nú byssu mína og skaut nokkra spóa handan við lækinn, og gekk síðan heim að prestsetrinu Haukadal, þar sem Ari fróði skrif- aði frægustu rit sín á 11. öld. Prestur tók mér hlýlega og vingjarnlega, eins og aðrir prestar. Eg keypti af honum saltað sauðarbrjóst upp úr tunnu, og svo fékk eg hann til að sýna mér hinar svonefndu leifar af St. Marteins lind, sem er í árbakk- anum skammt frá bænum. Hér er stór steinn, hálfur úti í ánni, en upp um gat á honum kom áður heitt vatn, eða svo segja munnmælin, og hvera- hrúður þarna bendir til þess að sag- an sé sönn. Þessi lind var talin hafa lækningakraft og margir fatlaðir og holdsveikir leituðu þangað til að fá bót meina sinna. Mig langaði til þess að fræðast af prestinum um goshverina og þess vegna bauð ég honum í morgunverð í tjaldi mínu. Flýtti ég mér svo á undan til þess að útbúa matinn. Fylgdarmanninn sendi ég heim á bæinn til þess að kaupa eina flösku af brennivíni og nokkuð af kaffi hjá bóndanum og bjóða honum í veizl- una með klerki. Eg afréð að nota þann náttúrlega hita, sem staðurinn lét í té. Eg dró vænan haug af moldarhnausum að Strokk. Svo tók ég flónelsskyrtu, sem ég átti, lét sauðarbringuna í bolinn, en sína rjúpuna í hvora ermi og batt svo vel fyrir. Þegar ég sá til gesta minna, ruddi eg hnausunum í Strokk og fleygði skyrtunni minni þar á eft- ir, og bjóst við að hann mundi spýta þessu úr sér eftir 40 minútur. Þegar gestirnir voru komnir, lét eg fylgdarmanninn hita kaffið í Geysi en við settumst niður og lét- um brennivín og harðfisk ganga á milli okkur, því að það er non'ænn siður. Svo liðu 40 mínútur og ekki gaUs Strokkur. Eg var dauðhræddur um að hann mundi mauksjóða kjötið fyr- ir mér og skipaði því fylgdarmanni að ryðja meira af moldarhnausum í hann. Sjö míntúum seinna rauk úr honum þetta heljar gos. Og hátt uppi í gosstróknum, innan um marga moldarkekki, kom ég auga á skyrt- una mína, þar sem hún flaug með útþandar ermar, líkt og hauslaus og fótalaus búkur. Svo fell hún til jarð- ar, en ekki var hægt að komast að henni fyrir hamförunum í Strokk. Eftir svo sem stundarfjórðung hægði hann á sér, og þá tókst mér að ná í skyrtuna. Nú losaði eg matinn úr henni á grænt grasið, en gest- ir mínir horfðu alvarlega á og sögðu mér sögu af manni, sem einu sinni hefði dottið í Strokk, en hverinn síð- an þeytt honum úr sér í smábútum. Saltkjötið var sæmilega soðið, en hið sama var ekki hægt að segja um rjúpurnar. Mig grunaði að þær þyrfti minni suðu og hafði því látið þær í ermarnar með öllu fiðrinu. En þær voru komnar í kássu. Um skvrt- una er það að segja að hún var jafn- góð, nema hvað hún hafði upplitazt. Strokkur hafði sogið allan lit úr henni. il3arnalija f Mamma sat í stól og var að staga sokka, en Pési litli vat’ að leika sér á gólfinu. Fyrst lagðist hann á bakið og söng, og svo velti hann sér á magann og söng annað lag. og þetta lét hann ganga hvað eftir annað. Mamma gaf honum hornauga við og við og skildi ekkert í þessu. svo að seinast varð henni að orði: — Hvað ertu að gera Pési? — Ég er að leika grammófón- plötu. ★ Það er komið kvöld. en Siggi litli getur alls ekki sofnað. Hanrt er alltaf að strfplast. Þegar msmma þvkist ekki pota komið neinu tauti við hann, biður hún nabha að fara inn í svefnher- bergið til Sigga og létta ekki fyrr en honum hafi tekizt að svæfa hann. Pabbi fer inn í svefnherbergið og svo líður góð stund. Þá kemur Siggi fram í stofu til mömmu og segir; — Loksins er pabbi sofnaður. ★ Kvöldsöngur í dómkirkiunni og á sálmatöflunni voru þessi númer: 14 29 , 72 115 Pési horfði lengi á töfluna og seinast snýr hann sér að mömmu og segir hátt: — Þetta er í fyrsta sinn sem presturinn hefir lagt rétt saman. ★ Pabbi var að kenna syni sínum: — Á þessum tímum er allt komið undir sérþekkinpu. Menn verða að kunna eitthvað eitt, til þess að komast áfram í heimin- um. Menn verða að geta eitthvað, sem aðrir geta ekki. — Ég get það, sagði snáðinn. — Nú, hvað er það sem þú getur, en aðrir ekki? — Lesið skriftina mína. ★ Stína: Hvað verður um kettina þegar þeir eru orðnir svo gamlir að beir geta ekki gengið? Sigga: Þá kemur einhver og selur pabba þá.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.