Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1954, Blaðsíða 29

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1954, Blaðsíða 29
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 801 að dagur væri kominn, drynur hann í holunni: „Dagur, dagur!“ Varð þá aðkomendum svo bylt við, að hver hljóp út sem búinn var. Skildu þeir allt eftir, borðið, borð- búnaðinn, tjöldin og nokkuð af klæðum sínum, því að þeir höfðu farið úr þeim um nóttina, þegar þeim fór að hitna við dansinn. Piltarnir tóku karlinn og drógu hann milli sín; var hann þá linur sem lyppukveikur og bleikur sem nár af ótta. Þegar allir voru út komnir, fór Þorleifur úr holu sinni. Var þá skammt að bíða unz bóndinn kom frá kirkjunni. Varð hann þá feg- inn að finna Þorleif, og þótti nú betur hafa til tekizt en hann hugs- aði. Þorleifur sagði honum allt, sem fyrir sig hafði borið. Bað hann bónda að hirða það, sem álfarnir höfðu eftir skilið, og sagði að ei mundi þess verða vitjað. Bóndi vildi að Þorleifur tæki gripina, en hann vildi ei. Sagði hann að eng- um mundi framar hætt á þeim bæ, þó hann væri heima á jólanóttina, og rættist það vel. (Þjóðs. J. Á.) Kraftajötunn. Þeir áttu von þlÐ ÞEKKIÐ ekki storkinn, því að hann á ekki heima á íslandi. En þetta er skemmtilegur hvítur fugl, með langar, rauðar lappir, langan háls og langt nef. Erlendis er sagt, að hann komi með litlu börnin og hér skuluð þið nú fá að heyra sögu um það. Söguna sagði mér sænsk kennslukona: Jónsi litli er ekki nema níu ára. Hann á heima í fátækrahverfi borgarinnar, og heimili hans er ósköp ömurlegt, og fólkið gerir það ekki skemmtilegra, því að það er alltaf með hávaða og rifrildi. Jónsi er því önugur og síngjarn. Honum þykir ekki vænt um neitt nema ömmu sína og skepnur, sér- staklega fugla. Þótt hann eigi sæl- gæti, þá gefur hann hinum krökk- unum aldrei neitt með sér, en ef hann sér hund, eða kött eða fugl, þá geíur hann þeim allt sem hann á. Nú var einu sinni handavinnu- tími í bekknum og hann beið eftir því að ég hefði tíma til að segja sér til. Á meðan var hann að skoða bók með dýramyndum og ég var viss um að honum mundi ekki leiðast. Allt í einu heyri ég háan skell. Ég lít upp og sé að Jónsi hefir lam- ið af öllu afli á eina síðu í bókinni og flýtir sér nú að fletta við blað- inu og er heldur en ekki reiðilegur á svipinn. Mér hafði þó tekizt að sjá hvaða mynd það var, sem hann barði. Það var mynd af storki. „Hvers vegna ertu svona reiður við storkinn?" spurði ég. „Vegna þess að hann kemur með svo marga smákrakka niður um reykháfinn“, svaraði hann hispurs- laust. „Hver hefir sagt þér það?“ spurði ég. á storkinum „Mamma, hún sagði það þegar litla systir kom“. Og svo brosti hann dálítið hrekkjalega. „Segðu mér hvað þér datt nú í hug, Jónsi“. Þegar Jónsi er í góðu skapi, þÚ hefir hann gaman af að segja frá og hann gerir það skýrt og skil- merkilega. ,Það var hérna um kvöldið, þeg- ar við bróðir minn vorum að hátta á bekkum í eldhúsinu, þar sem við. sofum, að mamma kom og sagði: Þegar þið vaknið í fyrramálið, þá verður storkurinn kominn með lít- inn bróður eða litla systur handa ykkur. — Hvernig kemst hann inn? spurðum við. — Hann kemur niður um reyk- háfinn, sagði mamma. Og svo fór hún inn í svefnher- bergið og lokaði hurðinni. En við bróðir minn vorum fjúkandi reið- ir út af þessu, eins og þér getið skilið.“ „Vilduð þið þá ckki eignast lít- inn bróður eða systur?“ ,Eignast!“ Hann hvæsti orðinu út úr sér með fyrirlitningu. „Eignast! Nei, við kærum okkur ekkert um krakka, sem öskra dag og nótt og við verðum altaf að snúast við“. Svo hélt hann áfram sögunni: „Bróðir minn fór að eldavélinni og gægðist upp í reykháfinn. En þá sagði ég: Eigum við ekki að drepa storkinn? Það fannst honum heillaráð. Svo tók ég prik og hann náði sér í viðar- kubb og svo settumst við hjá reyk- háfnum og biðum lengi. En stork- urinn kom ekki og við urðum syfj- aðir, svo að við afklæddum okkur og lögðumst á bekkinn. — Heldurðu að það sé nóg að

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.