Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1954, Blaðsíða 4
776
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
Kristján Eldjárn, þjóðminjavörður:
FORSÍÐUMYNDIN
F'ORSÍÐUMYND Lesbókar er að
þessu sinni tekin eftir einu
atriði á altarisbrík úr alabastri, er
áður var í Hítardalskirkju, en var
keypt til Þjóðminjasafnsins 1891
(Þjms. 3621). Bríkin heiur verið
sett saman úr nokkrum sundur-
lausum hlutum, Maríubrík, altaris-
tafla með viðburðum úr lífi Maríu.
Þetta atriði sýnir fæðingu Jesú,
jólaguðspjallið.
í miðjunni er María í dragsíðum
kyrtli með möttul á herðum. 'Hún
er með slegið hár og geislabaug
mikinn umhverfis höfuðið, leggur
saman lófana svo sem 1 tilbeiðslu,
lýtur höfði og horfir á Jesúbarnið,
þar sem það liggur í jötunni með
jarðarhnöttinn undir fótum sér.
Aftan við barnið sjást dýrin, asni
og uxi.
Fyrir aftan Maríu stendur Jósef,
skeggjaður gamall maður með staf,
en aftan við hann eru tvær síð-
klæddar persónur, sem komnar eru
til að sýna Jesúbarninu lotningu.
Yfir öllu saman svífur engill með
langa rollu, er á hefur verið áletr-
un, sem nú er horfin. Myndirnar
eru allar mjög hátt upphleyptar
lágmyndir, grunnurinn gylltur, og
upphaflega hefur allt verkið verið
málað rauðum, grænum og bláum
lit, sem nú er að mestu leyti dott-
inn af. Á öllu verkinu er sérlega
vandað handbragð.
Þessi altarisbrík er frá fyrri hluta
15. aldar, líklega nálægt 1430. Hún
er án efa ensk að uppruna. í Chella-
ston í Derbyshire eru alabasturs-
námur, sem mikið voru nýttar á
miðöldum, og mikill alabasturs-
Kristján Eldjárn
iðnaður óx sökum þess í borginni
Nottingham. — Þaðan er þessi
Maríubrík frá Hítardal. Alabastur
er mjúkt og áferðarfallegt, með
þýðum, fölgulum blæ, og tekur vel
gyllingu og lit. Mest var það not-
að í altaristöflumyndir, flestar með
atriðum úr píningarsögu frelsar-
ans, en Maríubríkir hafa ekki held-
ur verið fátíðar. Sitthvað er til
af leifum þessara miðaldabríka á
Englandi, en þær voru ekki hvað
sízt mikil útflutningsvara og eru
því til í ýmsum öðrum löndum.
Hér á landi eru þær tiltölulega
margar. Enn eru mjög heillegar og
vandaðar alabastursbríkur í kirkj-
unum á Möðruvöllum í Eyjafirði og
Þingeyrum. Nokkrar eru á Þjóð-
minjasafninu, þó engin alveg heil,
þótt þær hafi geymzt mjög sæmi-
lega. Ein þeirra er frá Hólum, brík
með píningarsögunni. Maríubríkin
frá Hítardal er ef til vill elzt brík-
anna og jafnframt einna fegurst.
Á 15. öld stóð íslandsverslun
enskra kaupmanna með miklum
blóma, einkum frá Hull og Lynn.
Frá þessum hafnarbæum hafa
altarisbríkurnar frá Nottingham
verið fluttar til íslands, þar sem
ríkir menn hafa sótzt eftir þeim.
Dýrar hafa þessar bríkur verið,
og sýnir þetta dæmi á sinn hátt,
hvað menn gátu leyft sér hér á
15. öld, er margir urðu til að kaupa
slíkar gersemar til kirkna sinna.
Ekki er þar með sagt, að þær séu
allar góð list, því að oft voru þær
gerðar á verkstæðum, þar sem
fjöldaframleiðsla var rekin. En
sumar þeirra eru í tölu fegurstu
gripa, og í öllum löndum eru mið-
aldabríkur úr alabastri taldar með
dýrgripum.