Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1954, Page 16

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1954, Page 16
Sá kœrbi sig ekki um trúna, sagði páíinn um Albert Thorvaldsen Frá ferðalcgi Islendings í Rómaborg fyrir nœr 100 árum ÓLAFUR'GUNNLAUGSSON, sonur Stefán Gunnlaugssonar bæar- fógeta í Reykjavík, mun hafa verið einn af víðförlustu íslendingum á sinni tið. Hann tók kaþólska trú og ílendist ytra og var seinast um mörg ár ritstjóri í París. Fyrir tæpri öld fór hann til Róma- borgar og sendi þaðan fréttabréf, sem birtust í Nýum Félagsritum 1858. Eru hér nokkrir kaflar úr þeim. Ú MANST, að þegar við skildum í Hróarskeldu, var áform mitt helzt að bíða nokkra stund í Parísar- borg og finna ýmsa kunningja, sem ég átti þar frá því í fyrravetur, en af því flestir, sem þess eiga kost, leita út úr bænum um sumartímann og koma ekki aftur fyr en í október eða nóvembermánuði, þá hitti ég fáa þeirra heima, og réði ég því af að halda ferðinni áfram viðstöðulaust til Rómaborgar. BEITTIR BRÖGÐUM Við vorum þrír kunningjar, sem ætluðum allir til Rómaborgar: frakk- neskur hermaður, sem hafði verið í stríðinu á Krím og átti nú að vera nokkur ár við setuliðið í Róm* lærð- ur maður úr Brazilíu, sem ferðaðist þangað til fróðleiks og skemmtunar, og ég. Leizt okkur því að halda hóp og ná í vagn handa okkur einum (í Civita Vecchia, sem er dagleið frá Rómaborg), heldur en að verða rekn- ir inn í póstvagn með 8 eða 9 öðr- um. *) Ítalía var þá öll skift niður í smáríki og höfðu Frakkar setulið í Róm. En þar léku ítalir illa á okkur. Sá fyrsti heimtaði hundrað franka fyrir vagn sinn til Rómaborgar, og þeg- ar okkur, sem von var, þótti það heldur mikið íyrir eina dagleið, kom annar lagsmaður hans til, og bauð vagn sinn fyrir 50 franka. Við tókum boði hans og urðum guðsfegnir, því enginn okkar var liðugur í málinu og gátum þess vegna ekki ætlazt til að tala hinn fyrra ofan af því, sem hann heimtaði. En á eftir komst það upp, að báðir voru félagar, og sá hinn fyrri heimtaði 100 franka rétt til málamyndar, til að vera viss um að menn tæki seinna boðinu. Þá græddi hann þó alténd 25 franka fram yfir það, sem hann gat með réttu heimtað. — Það er samt kostur við ítali, að þeir fara fljótt ofan af kröfum sínum. Þeir reiðast heldur ekki þó menn láti þá skilja, að þeir hafi brögð í frammi, en slá því öllu upp í gaman og eru jafn mjúkir í viðmóti eftir sem áður, eða þó fremur betri. Það er skrítið um Rómaborg, að flestum útlendum mönnum fellur þar Péturskirkjau í Róm.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.