Lesbók Morgunblaðsins - 04.03.1956, Side 3

Lesbók Morgunblaðsins - 04.03.1956, Side 3
^ LESBÖK M0RGUNBLAÐSIN3 133 hann allavega í hendi sér. Og stein skorti ekki í Noregi, þar var af nógu að taka. En þó var þar lítið um tinnu, og urðu menn því að notast við grænstein eða flögugrjót. Fyrstu aximar voru ekki með neinu skafti, það var aðeins blaðið, og heldu menn á því í hendinni. Brátt hefur steinsmíðin aukizt mjög. Hafa fundizt grjótnámur, þar sem gott grjót hefur verið brotið, og svo hafa fundizt staðir, þar sem menn gerðu áhöld úr þessu grjóti. Er líklegt að steinsmíðin hafi orðið sérstök atvinnugrein, eða iðnaður, inn fyrsti i Noregi, því að stein- áhöld frá þessum námum hafa fundizt víðs vegar með ströndum fram. Hafa þau verið verslunar- vara. Steinöldin stóð í nær 2000 ár,.og hefur mönnum stöðugt farið fram á þeim tíma að smíða áhöldin. Þau verða láglegri, hentugri og betri, eftir því sem tímar líða. EFTIR baral-tímabilið kom hlý- indatímabil, sem nefnt er atlant- iska tímabilið og stóð frá h. u. b. 5500—2500 f. Kr. Var þá mikið hlýrra og votviðrasamara en áður, svo að þá magnaðist vöxtur skógar um allan helming og gerði landið torfærara. Þó er svo að sjá, að menn hafi þá leitað meir en áður inn í skógana, og kefur það eflaust verið tii þess að veiða dýr. Það er aðalbreyttngkt, sem verður á lifn- aðarká'ttum manna við það að fé betri áhöld og vopn. Akuryrkja þekktist alls ekki, og húsdýr höfðu mehn engin, nema hunda. Talandi vitni um þetta eru fornleifar, sem fundust nyrzt á Jaðri, og eru frá þessu tímabili. Þarna eru nokkrir hellar og einn þeirra heitir Svarthola. Þar hafa menn búið fyrir 6—7000 árum. Fundust þarna bexn af 50 dýrateg- undum, Öllum ótðmdum nema hundinum. Mest var þar af beinum úr villisvínum, elgum, hjörtum, landsel og sjófuglum, svo sem álku og langvíu. Ennfremur fundust þar bein úr þorski, hlýra og löngu og mikið af skeljum. Þetta sýnir á hverju f ólkið hefur lifað. Hægt hefur verið um heimatökin, veiði- dýr voru næg í furu- og eikarskóg- unum, sem þá þöktu allan Jaðar, fiskur gekk alveg upp að strönd- inni og á ey þar fyrir utan var fuglabjarg. Er og sýnilegt að þarna hefur fólk átt heíma allan ársins hring, kynslóð eftir kynslóð. Gripir þeir, sem fundust þarna, voru nokkrar axir úr grænsteini, vel brýndar, en annars var flest úr beini, svo sem agnúalausir önglar, örvar og skutlar. Þetta sýnir fast- heldni við fomar venjur. ÞEGAR rætt er um veiðar stein- aldarmanna, verður einnig að geta um helluristurnar. — Myndirnar eru langoftast af veiðidýrum. svo sem elg, hjörtum og hreindýrum, en einnig af hval og lúðu. Margar af þessum helluristum eru á stöð- um, þar sem vel hagaði til um veiðiskap. Og maður getur ekki varizt þeirri hugsun, að þær sé gerðar til þess að seiða veiðidýrin þangað. Einhverjar mestu helluristurnar eru í bergi hjá Vingen í Norðfirði. Þar má sjá 300—400 hirti, sem allir hlaupa í sömu átt, til vesturs. í áttina að hafinu. Á þessum slóðum var oft mikið um hjartdýr, og leituðu þau út að sjónum seint á haustin. Þá sátu bændur um það, allt fram á 18. öld. að fara á bak við þau og fæla þau fram af hömrum, þar sem þau lim- Iestust og rotuðust. Það er varla efi á, að klettamyndirnar hiá Vangen, standa í sambandi við slíka hrotta- lega veiðiaðferð, Hér et það fjöldi dýranna, sem er kjarní myndarinnar En sums staðar, eins og í Þrændalögum og enn norðar, eru myndir af einstök- um dýrum, stærri en venjulega, en vel gerðum. Þessar myndir hafa á einhvern hátt átt að hafa áhrif á þann „anda“, sem í dýrinu bjó og gera hann mönnunum hliðhollan. En svo eru einnig táknlínur og merki með myndunum, er sýna að veiðigaldurinn var djúpstæðari. Með honum átti að gefa veiði- manninum aukið afl og hæfni. En fyrst og fremst miðaði hann að því, að auka viðkomu veiðidýranna, fylla skógana af veiðidýrum og hafið af sel og hval og fiskum. Margar helluristurnar sýna svo mikla leikni, að þær geta ekki verið eftir viðvaninga. Það hafa því verið sérstakir menn, sem kunnu veiði- galdurinn, menn sem höfðu náð sérstöku sambandi við náttúruofl- in, og hlutu því að vera hærra metnir en aðrir. En það hefur lík- lega verið eini stigmunurinn á mönnum þá. Víðast hvar hafa ætt- flokkar búið saman og veitt í fé- lagi. Það var bezt fyrir alla. Eng- inn gat orðið ríkur á því að veiða, en veiðiheill gat reynzt mönnum mísjöfn, og því var það happa- drýgst, að allir ættu hvert búsílag í félagi. II. AKURYRKJA KEMUR TIL SÖGUNNAR & FÓLKIÐ i inum dreifðu veiði- manna og fiskimanna byggðum Noregs lifði sínu lífi, óháð um- heiminum og óháð hvert öðru. Byggðirnar voru þó ekki einangi*- aðai', þær stóðu í sambandi inn- byrðis, og höfðu einnig sambönd út á við. Líkur eru til þess að fólk- ið hafi blandazt, kunningsskapur og viðskipti hafi verið meðal inna ýmsu flokka. Og á þann hátt gátu menníngaráhrif borizt frá einum 41 annars. Þetta sést og a því hvaö steintækjum þeirra fer fram. Um

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.