Lesbók Morgunblaðsins - 04.03.1956, Blaðsíða 12

Lesbók Morgunblaðsins - 04.03.1956, Blaðsíða 12
144 _ LBSBÓK MOROUNBLAÐSINS Hclluristur frá bronsöld á Aust- fold. Sól, mani, stjörnur og skip, sem gæta göngu þeirra um himin- inn. um á högum þjóðarinnar, fyr en vélajnenningin kemur til sögunnar. Með þvi að fá járnverkfæri í hendur, var mönnum nú fært að byggja sér góða bústaði og smíða hafskip. Upp frá því verða Norð- öienn. siglingaþjóð. í búnaðarhátt- um varð einnig bylting. Nú höfðu mejtm verkfæri sem dugðu, axir til að fella skóg, rekur, haka og járn- brydda plóga til þess að bylta um jörðinni. Nú var hægt að rækta lendur, sem menn réðu ekkert við áður. Og með ljá, sigð og laufkníf- um var nú unnt að afla langtum meira fóðurs fyrir búpening en áð- ur. Nú risu upp gripahús og fjár- hús, þar sem gefið var inni allan veturinn. Fyrir það fengu menn áburð, og nú var hægt að rækta sama blettinn ár eftir ár. Þetta varð til þess að byggðm færðist út á alla vegu. út um mark- ir. mn til dala og upp til fjalla. Á það benda jafnt fomleifar sem in elztu bæanöfn. Og áður en langt um líður rís upp efnuð og sjálf- stæð bændastétt sem hefur í sér þrek til meiri framfara og hæfi- leika til þess að taka við utanað- komandi menningaráhrifum. Basli ínna fatæku bænda, veiðimanna og fiskimanna er lokið. Það var eigi aðeins að járn og járnverkfæri bærist sunnan úr löndum. Menn komust furðu snemma upp á að vinna járn heima og smíða úr því. Járnvinnslan fór aðallega fram á Austuxlandi og má þess sjá ótölulegar minjar enn í dag. Það var inn svonefndi rauða- blástur. Menn stungu upp hnausa í mýrum, þar sem mikil járnbrá var, þurrkuðu þá og brenndu síðan í trektmynduðum gryfjum, sem voru klíndar innan með leir. Til þess að vel skyldi brenna, höfðu menn tvo fýsibelgi við hverja gröf, og af því er blástursnaínið. Járnið bráðnaði úr torfinu og settist á botninn í gryíjunum, en gjall og sori flaut oian á. Slíkar gryfjur hafa íundizt þvisundum saman. ' Til þessarar framleiðslu þurfti ekki neina sériræðinga. Þetta gat hver maður gert. Framleiðslan jókst og samtímis jókst jarnsmíðin, og smíðisgripirnir fá a sig innlend- an svip. Þetta má glöggt sja á þeim þúsundum gripa, sem fundizt hafa í kumlum og haugum frá þessari öld. í staðinn fyrir tvíeggjaða róm- verska -sverðið kemur nú saxið. Menn smíða örvarodda, spjótsodda og alls konar vopn, en menn smíða einnig alls konar verkfæri. í'yrir- myndirnar eru að vísu útlendar, Runastcúin a Tuni á Austíold.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.