Lesbók Morgunblaðsins - 10.02.1957, Side 1
6. tbl.
Sunnudagur 10. febrúar 1957
XXXII árg.
Theodór Gunnlaugsson, Bjarmalandi:
„Þetta voru miklar blessaðar trúr"
A Ð E R 21. ágúst 1956. Eg er
snemma á fótum. í gær var
þurrkur, talsverð flæsa, en rigndi
svo síðdegis. í morgun kom demba.
En nú er að létta til, og sólin skín
heitt. Það ætlar að verða brakandi
þurrkur í dag. Það væri mikil
blessun, og þá skal nú verða kvik-
að!
Eg hefi verið að slá upp mótum
að fjárhússtafni. Mig vantar
nokkrar fjalir og geng heim á hlað
að sækja þær. En hvað er nú
þetta? Þarna kemur bíll úr Forvöð-
um, rennir heim í hlað og stað-
næmist rétt aftan við mig. Lítill
fólksbíll, dokkur. Við stýrið situr
frú, önnur við hliðina á henni og
sú þriðja í aftursæti. Fullur bíll
af frúm! Og hér stend eg með
fangið fullt af hafurtaski, húfu-
pottiokið löðrandi í sementi og há-
rauðri málningu og andlitið víst
eins — ekki vel undir það búinn
að taka á móti góðum gestum. En
hver verður að koma til dyranna
eins og hann er klæddur. Eg fleygi
spýtunum og sný mér að bílnum.
„Góðan daginn!“
„Góðan daginn! Það er nýtt að
sjá eintómar frúr á ferð hér. Og
þið hafið gist í Forvöðum?"
„Já, þar var dásamlegt að vera.
Við erum allar í sjöunda himni“.
„Það er gott', en fenguð þið ekki
fallega dembu í morgun?"
„Nei, það rigndi lítið, og þá vor-
um við í tjaldinu. Svo létti til og
gerði glansandi, brennandi sól-
skin. Það eru yndislegir staðir
þama norðan og austan við Víga-
bjargið. Þar mundu margir kjósa
að gista“.
„Satt er það, — en hvaðan eruð
þið, með leyfi að spyrja?“
„Tvær úr Reykjavík og ein af
Húsavík.“
„Og hafið þið farið víða?“
„Já, komum í gær austan af
Héraði. Fengum dásamlegt veður
og töfrandi fjallasýn frá Möðru-
1