Lesbók Morgunblaðsins - 01.12.1957, Blaðsíða 9

Lesbók Morgunblaðsins - 01.12.1957, Blaðsíða 9
LESBÖK MORGUNBLAÐSINS ö37 REYKJAVÍKURBRAGUR YNGRI EINSTÖK LÝSING Á REYKJAVÍK FYRIR 100 ÁRUM ÞEGAR Stefán Gunnlaugsson var bæarfógeti í Reykjavík hófst hann handa gegn drykkjuskapnum í bænum. Þótti kaupmönnum sér nær liöggvið með því og kærðu fyrir stiftamtmanni, í hréfi, sem Stefán skrifar sér til varnar, segir hann meðal annars: „Það er kunnugt, að fyrrum var drykkjuskapur dagleg iðkun allt of margra, þar i meðal virðulegra embættismanna, sem gáfu almúganum þar með illt fordæmi. Það var þvi nauðsynlegt að grípa í taumana og sýna alvöru. Og hinn 29. maí 1839 var t. d. prestur nokkur tekinn fastur fyrir ölæði á götu og dæmdur til að greiða 10 rdl í sjóð fátækr3 prestsekkna og 4 mörk í löggæzlusjóð Reykjavíkur. Þetta varð til þess að hann hætti að drekka og hefir nú að maklegleikum fengið gott embætti". ÞESSI prestur var séra Guðmund- ur Torfason, er þá átti heima í Kálfhaga en þjónaði Kaldaðarnesi. En málavextir voru þessir, sam- kvæmt aukaréttarbók Reykjavík- ur: Séra Guðmundur var staddur í Reykjavík ásamt meðreiðarmanni sínum, Hannesi Einarssyni frá Kaldaðarnesi. Þeir komu inn í búð hjá Einari borgara Hákonarsyni, og var prestur allmjög ölvaður. Marg- ir fleiri menn voru þá þarna í búð- inni, en enginn þeirra er nafn- greindur nema Jón nokkur Skúla- son frá Ögmundarstöðum í Skaga- firði. Séra Guðmundur var knár maður og glíminn og hætti honum til þess að bjóða mönnum í glímu þegar hann var við öl, og var þá allsvakafenginn. Ekki er nú vitað hvort hann vildi glíma við þessa menn, er hann hitti í búðinni, en brátt lenti þarna í ryskingum og var prestur hinn æfasti. Hannes fylgdarmaður hans bað hann hvað eftir annað að koma með sér og ætlaði að reyna að koma honum burt úr bænum, áður en hneiksli yrði af drykkjuskaparlátum hans. En prestur var nú ekki á því, og er Hannes ætlaði að stilla til frið- ar og ganga á milli, hratt prestui honum svo óþyrmilega af höndum sér, að Hannes hentist út í glugga og mölbraut hann, en meiddist um leið í andliti og þó einkum á nef- inu. Varð af þessu mikill brestur er glugginn brotnaði og heyrðist, nú út á götu hávaðinn og lætin inm í búðinni. Þusti þá þegar að margt fólk og myndaðist brátt þyrping á götunni úti fyrir húsinu, en það stóð á horninu á Brattagötu og Aðalstræti. Tveir voru lögregluþjónar þá í bænum og báðir íslenzkir, Magnús Jónsson og Þorsteinn Bjarnason í Brunnhúsum. Þeir komu nú þarna að og réðust til inngöngu í búðina. Báðu þeir séra Guðmund með góðu að hætta öllum illindum, en hann skeytti því engu. Þá skipuðu þeir honum að koma með sér í skrifstofu bæarins, sem þá var í vesturendanum á húsinu þar sem nú er Haraldarbúð í Austurstræti. Ekkert segir frá því hvort hann hlýddi þeim af fúsum vilja, eða þeir urðu að beita hann valdi, en í skrifstofuna komu þeir með hann „hvar nefnds prests ástand var prófað og fannst hann þá að vera töluvert kennaur af brennivíni og Séra Guðmundur Torfason (Teikning Finns á Kerseyri) sterkar en máske kynni að geta álitist eiga við hans geistlega stand“. Til skrifstofunnar voru og kvadd -ir menn til að bera vitni, þar á meðal Einar Hákonarson, Hannes Einarsson og Jón Skúlason. En auk þess voru kvaddir þangað þeir Jón Snorrason hreppstjóri og bæ- arfulltrúi á SÖlvahóli, og Helgi Jónsson snikkari (faðir þeirra tón- skáldanna Helga og Jónasar). Skyldu þeir dæma um ástand prestsins og áverka Hannesar. Presturinn var ofurölvi og dró upp úr vasa sínum rauðbláan brenni- vínspela og stútaði sig á honum inni í þingsalnum. Var þá pelinn af honum tekinn. En Hannes stóð þarna með bólgið og blóðugt nef

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.