Lesbók Morgunblaðsins - 01.02.1959, Síða 8
40
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
Bræðralag allra manna
Hvernig mundi yður lítast á að eiga heima þar sem menn
af öllum þjóðum lifa í sátt og samlyndi, þar sem engin
stjórnmál eru, engin fjármál, engin afbrot, engin fátækt,
engin umferðarslys?
ÞÉR munuð segja, að slíkt sam-
félag manna muni ekki vera til á
vorri jörð, og óþarft um það að
tala.
Jú, slíkt samfélag er til. Þar eru
engin fjárhagsvandræði, vegna
þess, að engir peningar eru þar tiL
Þar eru engin umferðarslys, vegna
þess að vegir eru fáir og lítið um
vélknúin farartæki, en þeir sem
stjórna þeim alltaf algáðir. Þar
þekkjast ekki fjársvik, rán né grip-
deildir, vegna þess, að enginn á
neitt. Og þó er menning þarna á
háu stigi.
Þetta samfélag manna á heima
í nýlendu, sem kölluð er Prima-
vera og er langt inni í óbyggðum
Paraguay í Suður-Ameríku.
Árið 1920 var stofnað „Bræðra-
félag“ í Sannerz í Þýzkalandi, og
fylgdi það kenningum endurskírar-
ans Jakobs Huter, sem uppi var á
16. öld. Stofnandi félagsins hét
Eberhard Arnold. Skammt frá
Rhön fekk félagið svo bækistöðvar,
sem það nefndi „Bruderhof'
(Bræðragarð). En eftir að Hitler
komst til valda í Þýzkalandi, hóf-
ust ofsóknir gegn þeim, eins og öll-
um öðrum sértrúarflokkum. Árið
1933 gerði Gestapo árás á félagið,
tók allar bækur þess og bannaði
þeim að taka á móti nýum félög-
um.. Skólum þeirra var lokað og
þeim var tilkynnt að Nazi-kennarar
mundu sendir þangað. Þetta gátu
þeir ekki þolað og fluttu því barna-
skólann yfir í stórfurstadæmið
Liechtenstein. •
Árið 1935 andaðist Eberhard
Arnold foringi þeirra. Voru þeir þá
sem höfuðlaus her og Nazistar
þröngvuðu æ meir kosti þeirra,
svo að þeim var ekki vært í Röhn.
Flýðu þá nokkrir til Englands og
stofnuðu þar nýan Bræðragarð í
Cotswolds hinn 15. marz 1936.
Árið eftir komu SS-hermenn til
Rhön og leystu upp bræðralagið
þar. Þrír helztu mennirnir voru
handteknir, en hinum var leyft að
hverfa úr landi, en máttu þó ekki
hafa neitt með sér nema hið allra
nauðsynlegasta. Þeir sem hand-
teknir voru, voru ákærðir fyrir
föðurlandssvik, en eftir nokkurra
vikna yfirheyrslur var þeim bó
sleppt, því að ekkert sannaðist á
þá. Allt fólkið fluttist svo til Eng-
lands og sameinaðist bræðrum sín-
um og systrum í Cotswold. Og hinn
nýi Bræðragarður þar dafnaði og
þróaðist.
Svo kom stríðið. Þrátt fyrir það
þótt „bræðurnir“ hefði komið sér
vel og unnið hylli allra þeirra, sem
þeir kynntust, voru þó flestir
þeirra Þjóðverjar og voru nú grun-
aðir um að sitja á svikráðum við
England. Stjórnin setti þeim þá tvo
kosti: annað hvort að hverfa úr
landi, eða þeir yrði settir í fanga-
búðir.
Þarna voru um þessar mundir
350 „bræður“ og þeir hétu því að
skiljast aldrei, en láta eitt yfir alla
ganga. Sóttu þeir þá um innflytj-
endaleyfi til allra ríkja í Ameríku.
En það var aðeins eitt ríki, sem