Lesbók Morgunblaðsins - 01.02.1959, Blaðsíða 9

Lesbók Morgunblaðsins - 01.02.1959, Blaðsíða 9
LESBÓK MORGITNBLAÐSINS 41 Bráðabirgðaskýli. Verið að setja stráþak á skála. vildi veita þeim viðtöku — Para- guay. Kafbátahernaðurinn var nú kom- inn í algleyming og því ekki álit- legt að ferðast vestur um haf. Til þess að draga úr hættunni skiftu „bræðurnir“ sér í tíu hópa og fóru með 10 skipum til hins fyrirheitna landsins. Þrír enskir menn voru skildir eftir, til þess að annast allar fjárreiður þeirra við ríkið. Þessir þrír menn stofnuðu síðar nýan „Bræðragarð“ hjá Wheathill í Shropshire, sem nú er í uppgangi. ★ ★ Nú er að segja frá þeim, sem fóru vestur um haf. Fyrsti hópurinn kom til Asun- cion, höfuðborgarinnar í Paraguay, á jóladaginn 1940. í þeim hópi voru 80 manns, konur karlar og börn. Enginn þekkti neitt til í landinu, og enginn vissi hvar þeir mundu geta fengið aðsetur. Þeir voru svo að segja með tvær hendur tómar, en kjarkurinn var óbilandi og þeir treystu á forsjá guðs. Fyrir einni öld var Paraguay auðugasta ríkið í Suður-Ameríku, en um miðja 19. öld lenti það í stríði við nágrannaríki sín. Stríð þetta stóð í fimm ár, og þegar því lauk, var varla nokkur vinnufær karlmaður eftir í landinu. Smám saman rétti þó landið við aftur. En svo hófst hið annað stríð 1929 og stóð til 1935. Stór landsvæði voPi tekin af Paraguay og landið var á heljarþröm. Sama árið sem þetta stríð hófst., fluttust til landsins nokkrir menn af sértrúarflokki, sem kallast Mennonítar. Þéir komu frá Banda- ríkjunum og fengu að setjast að í Chaco-héraði, þar sem ekki var nokkur mannabyggð, heldur frum- skógar og mýrar. Þeir stofnuðu þar nýlendu, sem þeir ködluðu Fern- heim. • „Bræðrafélaginu“ var líka vísað til landnáms í Chaco. Gátu þeir farið með skipi upp eftir Para- guay-ánhi til Rosario, en þaðán varð að fara um vegleysur út I skógana til fyrirheitna landsins. Fyrsti hópurinn komst til Fern- heim og dvaldist þar á meðan þeir voru að kynna sér landið. Meðan þeir dvöldust í Fernheim komust þeir fyrst í kynni við hina villtu Indíána, sem eiga heima í Gran Chao. „Bræðrunum" varð ekki svefnsamt þar, því að allar nætur börðu Indíánar bumbur úti í skóg- inum og ráku upp öskur og óhljóð. Indíánar áttu þá í stríði við stjórn landsins, og þessir fáu nýlendu- menn máttu búast við því að verða brytjaðir niður. En hér rættist bet- ur úr en á horfðist, því að þegar kynni tókust með þeim og Indíán- um, voru Indíánar friðsamir og vildu þeim ekkert mein gera. „Bræðrunum“ líkaði ekki alls- kostar vel í. Fernheim, og eftir hokkra daga voru menn gerðir út af örkinni í landaleit og til þess að velja stað fyrir nýan „Bræðragarð“. Þeir völdu land, sem nefndist Primavera og fengu þar 20.000 ekrur lands (eða rúml. 10.000 hekt- ara). Um helmingur af þessu landi var skógur, hitt graslendi. Nú hófust erfiðleikar landnem- anna fyrir alvöru. Brátt bættust við nýir hópar frá Englandi, og fyrir árslok 1941 var þarna 350 manns. Fyrsta og stærsta vanda- málið var að koma upp húsakynn- um. En þegar var hafizt handa að reisa fyrsta þorpið, eða „Bræðra- Kennsla undir beru lofti. Náttúrufræði- tími. Bein úr hús- dýrum notuð við kennsluna.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.