Lesbók Morgunblaðsins - 01.04.1962, Page 7
Unga íólkió fylgist með af áhuga á námskeiðinu
HÁTTVISI, KLÆÐABURÐUR
SNYRTING
NÝLEGA fór fram hér í
Reykjavík námskeið fyrir
ungt fólk, þar sem fjallað
var um háttvísi, klæðaburð
og snyrtingu. Námskeið
þetta var haldið á vegum
Dansskóla Hermanns Ragn-
ars, Tízkuskólans í Reykja-
vík og Æskulýðsráðs
Reykjavíkur. Var nám-
skeiðið tilraun til fræðslu
og.kynningar á þessum þýð-
ingarmiklu þáttum í dag-
tegu lífi ungs fólks og það
er markvert í þessu sam-
bandi, að námskeiðið var
haldið vegna eindreginna
og ákveðinna óska úr hópi
unga fólksins sjálfs.
Það virðist augsýnilegt, að
hér sé -n að ræða viðfangs-
efni, sem ungu fóiki liggur
mjög á hjarta og því ætlar Les
bókin að kynna ykkur ýmis-
legt af því, sem fram fór á
þessu námskeiði. Fyrsti hluti
námskeiðsins fjallaðí um hátt-
vísi eða almenna framkomu
fólks við ýms tækifæri. Það
var Hermann Ragnar Steifáns-
son, danskennari, sem leið-
beindi í þeim efnum og mun-
um við styðjast við fræðslu
hans í þessum fyrsta þætti.
í fyrstu ber að íhuga dálítið
ástand það, sem hjá okk-
ur íslenddngum rí'kir á sviði
daglegra umgengnishátta. Þar
ber mjög á okkar eigin, dýr-
mætu persónu. „Ég þarf að fá
þetta. Ég vil kcxmast þangað.
Ég verð að flýta mér!“ Svo
segjum við mörgum stundum.
Við sjáum dæmi þessa hvar-
vetna. Menn ryðjast að búðar-
borðum, þrengja sér og ýta á-
fram í fjölmenni, hampa sæl-
gætispokum í samkomuhús-
um, þrarnma um götur eða
_ -ytast inn í strætisvagna með
hávaða og gauragangi. Allt
þetta og þessu líkt í framferði
manna heitir einu nafni ó-
menning og er blettur á sið-
ferði hvers manns. En þá kom-
um við að þeirri spurningu,
sem hér á við að svara í upp-
hafi. „Hvað er háttprýði eða
almenn kurteisi?" Þessu má
svara á ýmsa vegu, en segja
mó, að þrír séu þættir í fari
siðprúðs manns. Tillitssemd
við annað fólk, smakkvísi og
hæverska eða eins og hinn
frægi skátahöfðingi Baden
Powell sagði: „Vertu hæversk-
ur í hugsunum, orðum og
verkum.“ Hin gullvægu orð
Jesú Krists eiga hér einnig
mjög vel við: „Allt, sem þér
því viljið, að aðrir menn gjöri
yður, það skuluð þér og þeim
gjöra.“
Sá æskumaður eða ung
stúlka, sem fága vill framkomu
sína og vera aðlaðandi persóna
þarf að gefa þessum grundvall-
aratriðum gaum.
Við erum öll ólílk um eðli og
skaphöfn, skapferli okkar er
misjafnt og meðfædd smekk-
vísi, en í nútíma þjóðfélagi er
öllum mögulegt að fá ýmsa
fræðslu og leiðbeiningar um
það, hvemig má temja sér
eða þjálfa með sér fagra
framkomu. — Við verðum
fyrir ríkustum áhrifum í þess-
um efnum á heimili okkar
og í hópi félaganna. Því varð-
ar miklu, að foreldrarnir
veiti börnum sínum snemrna
góða fræðslu og séu þeim fyrir
mynd um alla háttvísi. „Dreg-
ur hver dám af sínum sessu-
naut,“ segir máltækið. Það
arðar miklu að velja sér góða
og ved upp alda félaga. Ungt
fólk er yfirleitt áhrifagjarnt
og vaninn er mikið veldj og
erfitt að brjóta á bak aftur
-«ld hans, er frá líður. Það var
einu sinni sagt: „Nefndu mér
lagsmenn þína og þá skal ég
segja þér, hver þú ert.“ f þessu
er mikill sannleikur fólginn.
Það, sem hér hefur verið
nefnt eru grundvallaratriði,
sem þurfa að vera öllum ljós,
sem bæta vilja háttvísi sína
og framkomu. Skal nú í
stuttu máli vikið að ýmsum
reglum, sem gilda um fram-
komu manna á ýmsum stöðum
og við ólík tækifæri, en á það
er lögð enn ríkari áherzla, að
lærðar reglur geta aldrei falið
eðli ruddans, sem á ekki til
að bera hina innri kurteisi, til-
litssemi og smekkvísi.
Á GÖTUNNI.
Forðizt alla sundurgerð í
klæðaburði eða látæðd.
Nemið ekki staðar í hópum,
svo að þið hindrið umferð
gangandi fólks.
Það er ókurteisi að blístra
eða syngja á göturn úti.
Heilsið kunnugum glaðlega
og hæverkslega.
Kona eða stúlka heilsar ætíð
fyrst á götu. Karlmaður í fylgd
með stúlku gengur ætið nær
götunni.
HEIMA FYRIR.
Hér verður okkur oftast á,
einmitt kurteisi á heimilum
er bezta æfingin, þegar á reyn-
ir annars staðar. Verið í góðu
skapi. Forðizt deilur við for-
eldra ykkar og systkini. Ver-
ið stundvís til máltíða og reglu
söm um herbergi ykk. - og eig-
ur. Sýnið lipurð og hjálpsemi.
Herrann hjálpar dömunni í yfirliöfnina
Á helgrí
stund
„ÆTLIÐ ékki, aö ég sé kom-
inn til aö niðurbrjóta lögmál-
ið eöa spámennina, ég er ekki
kominn til þess að niður-
brjóta, heldur til þess að upp-
fyllt, því að sannlega segi ég
yður, þangað til himinn og
jörð líða undir lök, mun ekki
einn stafkrókur lögmálsins
undir lok líða unz allt er
komið fram. Hver sem þvi
brýtur eitt af þessum minnstu
boðorðum og kennir mönnum
þaö, hann mun verða kallað-
ur minnstur t himnaríki, en
hver sem breytir eftir þeim
og kennir þau, hann mun
kallaður verða mikill i himna-
ríki“. — (Mt. 5:11-19).
í þessum kafla Fjallræðunnar
lýsir Kristur því yfir, að orð Guðs
og lögmál allt sé óhagganlegt og
eilíft og hið æðsta mark sé að
breyta eftir því. Biðjum þvi um
náð og styrk til þess að breyta í
öllum greinum i samræmi við
vilja Guðs.
RIT-
5ÍUJBBI1RINN
er nú tekinn til starfa og
hefur haldið tvo fundi.
Klúbbfélagar eru að
undirbúa margs konar
efni, sem síðan mun
verða birt.
Ýmsir hafa þegar til-
kynnt þátttöku utan af
landi og er ungt fólk,
sem áhuga hefur á þvi,
að fá fræðslu um blaða-
mennsku og annað í því
sambandi, hvatt til að
skrifa Lesbókinni eða
senda efni. Klúbburinn
mun síðar fá ýmsa hæfi-
leikamenn til að kynna
ritstörf, blaðamennsku og
annað í þessu sambandi.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 7