Lesbók Morgunblaðsins - 08.04.1962, Blaðsíða 4
„OlL norðausturströnd Þýzka-
lands er í hættu vegna afar mikils
stormflóðs. Næturflóðið verður um
þrem metrum hærra en meðalflóð".
Þessi aðvörun kom í hléinu í söng-
leiknum „Sköpunin" eftir Hayden,
sem var leikinn í norður-þýzka út-
varpið föstudaginn 16. febrúar.
Fólkið á norðausturströndinni veit,
hvað er í vændum, ef meðalflóðhæðin
rís um þrjá metra. Allir bjuggust til
varnar. En er Hamborg, 120 km inni í
landi, „norðausturströnd“?
íbúar stærstu borgar Þýzkalands
þóttust öruggir.
Átján mínútur yfir ellefu heyrist:
„Hætta er á, að flóðgarðarnir í Cux-
haven bresti. Leitið upp á efri hæð-
mar, eða á aðra ör-
ugga staði. Gjörið svo
vel að aðvara nágrann-
ana“. Garðurinn var þá
þegar brostinn.
„Við skulum fara að
hátta“, sögðu menn í
Hamborg.
Meira að segja mað-
urinn, sem sendi sams-
konar tilkynningu til
sjónvarpsins í Ham-
borg, Hoen, forstjóri
þýzku haffræðistofnun-
arinnar, hafði litlar áhyggjur af öryggi
borgarinnar.
Seinna reyndi lögreglan að vara við
á þeim svæðum, sem voru í mestri
hættu, með hátalarabíl. Öskur storms-
ins yfirgnæfði öll önnur hljóð.
Þótt brimið lemdi ströndina og bryti
flóðgarða urðu ekki mannskaðar þar,
því að strandbúarnir voru viðbúnir, en
langt inni í landi, upp með Saxelfi,
flæddi sjórinn inn á sofandi fólk í
rúmum sínum. Sumir gátu flúið upp á
efri hæðir eða þök, og látið þar fyrir-
berast, en aðrir voru ekki svo heppn-
ir. Og allir þoldu eltki vistina á þök-
um í ískulda, stormi og ágjöf.
25.000 hermenn voru kallaðir í
björgunarstarfið, og þeir björguðu tug-
þúsundum nauðstaddra af þökum, úr
hálfhrundum húsurn og víðar. Þeir
komu á hraðbátum, vélbátum, árabát-
■um og þyrlum. Litli strákpattinn í bað-
kerinu sínu á næstu síðu átti hermann-
inum líf sitt að launa.
Það voru ekki allir svo heppnir.
Ernst og Christa Bennówitz bjuggu í
litlu timburhúsi með sjö börnum sínum
og afa og ömmu. Þau vöknuðu, þegar
fór að flæða inn í húsið. Bömin voru
drifin á fætur í skyndi og móðirin þaut
af stað með það yngsta í vagninum.
Emst bar tvær yngri dæturnar í fang-
inu, en fjögur elztu bömin héldust í
hendur og óðu sjálf. Christa varð tals-
vert á undan til skólans, sem stóð ör-
lítið hærra, en Emst gekk hægar með
börnin, vatnið var farið að ná þeim
upp fyrir nára. Bílar, hlaðnir sjón-
varpstækjum og álíka verðmætum, óku
stöðugt fram hjá grátahdi börnunum og
föður þeirra, sem veifaði. Enginn tók
þau með. Og svo brast flóðgarðurinn í
grenndinni. Flóðaldan skellti litla hópn-
um og reif þau með sér og hvert frá
öðru. Ernst hafði að-
eins Heike litlu,
þriggja ára, í fanginu,
þegar honum skaut
upp aftur. Rétt á eft-
ir sá hann höfðum
bamanna fimm skjóta
upp aftur — svo
hurfu þau í fald flóð-
öldunnar.
Saga þeirra er ekk-
ert einsdæmi. Á þak-
inu á miðri myndinni
að ofan til hægri eru
gömul hjón, bæði komin yfir sjötugt.
Þau áttu skammt eftir í gullbrúðkaup.
En gamla konan þoldi ekki vosbúðina
á þakinu, björgunarmennirnir komu of
seint. Og gamla manninn skiptu ekki
lengur eignir og eyðilagt húsið neinu.
Það er ekki hægt að byrja nýtt líf eft-
ir þessa nótt, þegar maður er orðinn
sjötugur.
Og menn spyrja: Var allt þetta óhjá-
lcvæmilegt? Nei, þetta skeði ekki alls-
staoar, aðeins í grennd Hamborgar.
Bremen, Slésvík-Holtsetaland og Neðra-
Saxland höfðu lært af flóðinu mikla í
Hollandi 1953, og höfðu skipulagt að-
gerðir, ef svona flóð yrði, en Hamborg
var óviðbúin.
í þessu veðri brotnuðu skörð í fíóð-
garða á meira en hundrað stöðum.
Rúmlega 400 manns drukknaði í rúm-
um sínum. 40.000 urðu heimilislausir.
Skemmdir á mannvirkjum, heimilum
og akurlendi eru metnar á inarga
milljarða. marka.
Orsakir flóðsins voru mesti stór-
Framhald á bls. 5.
LAUGARDAGUR:
0.10 — Fyrstu flóðgarðarnir brotna í
Hamborg. Flóðhæðin 4,03 metrar yfir
meðallag. Fárviðrið nær hámarki.
1.40 — Götuljós slokkna í miðhluta
Hamborgar.
2.40 —■ Flóðið nær ráðhúsi Ham-
borgar.
3.20 — Símakerfi Hamborgar bregst.
Samhæfðar lögregluaðgerðir ómöguleg-
ar lengur.
3.30 — Nærri allir flóðgarðar brotn-
ir. Hverfið Wilhelmsburg á kafi. Bíia-
brautin á kafi.
4.00 —■ Útvarpið endar næturdag-
skrána á miðbylgjum með orðunum:
„Góða nótt, og sofið nú vel um helg-
ina“.
5.10 — Allsherjarútboð í útvarpi á
lögregluliði Hamborgar í útvarpi.
12.20 — Fyrstu líkin finnast í hverf-
inu Moorfleet í Hamborg.
FÖSTUDAGUR:
11.00 — Norðvestan 10 vindstig.
Stormskaðar í Hamborg. Fyrsta auka-
útboð lögreglusveita.
19.55 — Hamborgarútvarpið grípur
inn í Hayden-konsert: „Hætta á storm-
flóði. Háflóð þrem metrum hærra en
vant er“.
20.15 — í fréttatíma sjónvarpsins
segir veðurspáin: „Stormur eða rok.
Eins og stendur lítur út fyrir að enn
hvessi".
21.40 — Hættumerki er gefið með
loftvamaflautum í Cuxhaven. Flóðið
er nærri jafnhátt flóðgörðunum.
21.53 — Fyrsti flóðgarðurinn brotnar
í Cuxhaven.
22.00 — Flóðgarðsverðir í Stade fara
til varðstöðva sinna. Flóðhæðin orðin
þrem metrum meiri en vant er.
22.15 — Hamborgarsjónvarpið tH—
kynnir í síðasta fréttatíma: „Á norð-
austurströndinni er hætta á mjög stóru
stormflóði“.
22.51 — Sjórinn hellist yfir flóðgarða
í Cuxhaven á þúsund metra breiðu
svæði. Gamla höfnin er á kafi.
22.58 — Tekur að flæða upp á fyrstu
göturnar í Hamborg. Með 14 km hraða
á klst. knýr fárviðrið sjóinn inn í Sax-
elfi.
23.13 — Hamborgarútvarpið endun
tekur á miðbylgjum aðvörun um storm-
flóð.
23.30 — Þrjú fallbyssuskot gefa
hættumerki í Stade.
23.45 — Fyrsti flóðgarðurinn brotnar
í Stade. Flóðhæðin 3,98 metrar yfir
meðallag.
'4 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS