Lesbók Morgunblaðsins - 24.06.1962, Blaðsíða 12

Lesbók Morgunblaðsins - 24.06.1962, Blaðsíða 12
ÚR HEIMSBORG E, unni eða veifa henni til áherzluauka iranian í áheyrendur sína. 3íargir tala um stjórnmál. Verka- mannaflokkur Vestur-Lundúna á þarna sinn formælanda í haganlega gerðum ræðustóli og kommúnisti boðar trú sína í ákafa, enda kalla sumir fram í fyr- ir honum. Svo tala nokkrir svertingj- ar, m. a. einn mælskur mjög frá Mið- Afríku, sem fer mörgum orðum um nýlendukúgun Breta fyrr og síðar. Þarna hlusta Bretarnir, þar á meðal nokkrir lögregluþjónar með krosslagð- ar hendur, á útlendinga hundskamma þá í þeirra eigin höfuðborg, ón þess að gera nokkrar athugasemdir aðrar en einstaka frammíköll. Þetta er óneitan- Bretar, Gyðingar og ýmsar persómrr Biblíunnar sinn skammt ómældan og óþveginn. Virtust stóryrðin frekar vekja kátinu en reiði, enda maðurinn víst af fæstum tekinn hátíðlega, en óneit- anlega virtist hann vel heima í mörgu. umir ræðumannanna hafa eng- an boðskap að flytja en taía um aag- inn og veginn og segja brandara. Hinir fyndnu fá marga áheyrendur og þakk- láta, því að ókeypis skemmtanir eru ekki á hverju strái. Ekki fer hjá því að margt skrítið fólk lætur ljós sitt skína á slíkum stað. Svo er til dæmis um þann, sem segist vera tattoveraður frá hvirfli til ilja, og víst er hann það E* NGINN ferðamaður, sem kemur til London, ætti að láta hjá líða að fara til „Marble Arch“, þar sem mætast Hyde Park og Oxford Street. Bretar eru með réttu rnjög hreyknir af þessum stað, þar sem hverjum sem er leyf- ist að halda ræðu um svo til hvað sem er. Þarna ríkir hið fullkomna málfrelsi. „Fundahöldin" standa einkum á laug- ardögum og sunnudögum, og er oft fjölmenni þegar vel viðrar. Fólkið hópast utanum iiina ýmsu ræðumenn; sumir hafa noltkra áheyrendur, aðrir jafnvel nokkur hundruð. Svo stutt er á milli, að raddir hinna háværustu geta blandazt saman. í öðru eyra rnanns glymja þá gjarnan innanríkis- mál Bretanna og í hinu utanríkismál- in eða trúmálin. leja meira umburðarlyndi og frelsi en getur víðast hvar annars staðar. — Myndum t. d. við fslendingar þola því líkt og annað eins? Só, sem virtist orðljótastur allra var þó Englendingur. Á hans stól voru nokkur torkennileg orð, sem munu hafa verið arabíska, því að á ensku stóð fyrir neðan, að þetta væri enska Múhameðstrúboðið. Maðurinn boðaði trú sína með jafn mikilli mælsku og bezt gerist í sölum Alþingis, en hafði auðheyrilega engu minni áhuga á stjórn málum, því að hann nefndi Nasser ekki sjaldnar en spámanninn og hældi bóðum á hvert reipi. Hins vegar fengu að svo miklu leyti sem séð verður, jafnt í andliti, sem á nauðasköllóttu höfuð- leðrinu. Til hinna skrítnu verður einn- ig að telja hina velklæddu, fullorðnu konu, sem skyndilega tekur til við að syngja einsöng, án undirleiks, innan um mannfjöldann. Ef til vill hefur draumur hennar um að verða fræg söngkona aldrei rætzt. Þarna endur- speglast því hin margvislegustu til- brigði rnannlífsins, ofsi og trúarein- lægni, vonbrigði og draumsýnir. — Og skal nú endurtekið, að enginn ferða- maður, sem á þess kost, ætti að láta hjá líða að kynnast þ -ssum sérkenni- lega stað. Valdimar Kristinsson. SMÆLKI Brezki heimspekingurinn og Nób- elsverðlaunahöfundurinn Bertrand ííussell varð níræður á dögunum, og lét hann við það tækifæri m.a. hafa eftir sér þessa athugasemd: „Það samsafn af hleypidómum, sem menn almennt kalla pólitíska heimspeki, kann að vera ágætt — ef menn muna bara að það er ekki heimspeki". — © — Hér er síðasta Skotasagan: Macpherson var inni í leðurvöru- búð til að kaupa sér skjalatösku. Eftir talsverða leit fann hann tösku, sem hann var ánægður með, enda var hún ódýr. — Á ég að pakka henni inn fyrir yður? spurði afgreiðslumaðurinn. — Nei, sagði Macpherson og hristi höfuðið. En þér getið látið pappír- inn og seglgarnið í töskuna. — 9 — Kvikmyndaleikkonan Elga Ander- sen, meðleikari' hennar, Daniel Dor- ano, og leikstjóri þeirra, Serge Hanin, urðu nýlega að eyða heilli nótt í hollenzku fangelsi. Þegar þau voru á leið til kvik- myndaversins, þar sem taka átti kvikmyndina „Scorpion“, voru þau itöðvuð af lögregluþjónum sem neit- uðu að trúa því, að vélbyssurnar brjár og skammbyssurnar tvær, sem í bílnum fundust, væru einungis ætlaðar til kvikmyndatöku. — © — Vladimir Horowitz, píanósnilling- urinn heimsfrægi, sem kvæntur er dóttur Toscaninis, kom fyrir ári fram á tónleikum að nýju eftir langt hlé á hljómleikahaldi. Nú hefur hann lýst því yfir, að hann muni aftur hætta að koma fram opinber- lega, og ástæðan sem hann færir fram er kannski dálítið óvenjuleg: — Klapp og fagnaðarlæti áheyr- enda fara svo hræðilega i taugarn- ar á mér, segir hann. i n þetta á fyrst og fremst við um þá, sem rölta á milli; hinir áhuga- sömu áheyrendur þurfa ekki að missa af sinu málefni, að minnsta kosti ekki, ef ræðumaðurinn stendur á einhverju. En margir þeirra standa á jafnsléttu og er þeirra tal þá oft í samtalsformi — stundum nánast rökræður eða rifr- iídi tveggja manna, sem hafa nokkra áheyrendur. Þeir, sem hafa kassa undir fótum, ná til flciri og margir koma með ræðustóla, er leggja má saman, svo þeir séu viðráðanlegri x flutningum. Sumir stólanna eru augljóslega heima- gerðir af lítilli kunnáttu, aðrir eru geirnegldir og lakkaðir, og jafnvel skreyttir nafni og fána samtakanna, er sent hafa boðbera sinn á vettvang. Umræðuefnin, sem tekin eru fyrir á þessum fræga og sérkennilega stað, eru hin fjölbreytilegustu. Trúmálin eru of- arlega á baugi. Sjá má kufli klædd- an munk og prúðbúinn kvekara með aðeins fárra metra millibili hvorn um sig boðandi sína trú. Nokkrir úrHjálp- ræðishernum standa í hnapp og syngja og ýmsir smá-sértrúarflokkar eiga sína fulltrúa, sem ýmist lesa upp úr Biblí- Múhameðstrú boðuð í London og Nasser hælt um leið 12 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 16. tölublað 1962

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.