Lesbók Morgunblaðsins - 19.08.1962, Page 2

Lesbók Morgunblaðsins - 19.08.1962, Page 2
 SVIP- MVND PAÐ vekur að vonum athygli í kvikmyndaheiminum, að Rank lávarður hefur ákveðið að segja skilið við kvikmyndafram- leiðsluna. Hann dregur sig nú í hlé, 73 ára að aldri, og fær hið mikla fyrirtæki sitt í hendur ungum manni, John Davis, sem um skeið hefur verið einn nánasti samstarfs- maður Ranks. Sú var tíðin, að brezkur kvikmynda- iðnaður nálgaðist að vera hlægilegur enda stóð framleiðslan þá að baki kvik- myndaframleiðslu fjölda annarra landa. Það voru einkum tveir menn, sem bundu endi á þefcta ástand. Annar var Alex- ander Korda, fæddur ungverskur. Hann dó fyrir nokkrum árum. Hinn var Rank lávarður, eða Joseph Arfchur Raník, eins og hann hét þá. Það var ekkert undarlegt, að Korda ynni stórvirki á sviði kvikmynda. Hann var fæddur til þess, ef svo mætti segja. En sömu sögu er ekki hægt að segja um Rank lávarð, enginn hefur sennilega verið ólíklegri til að gerast kvikmynda- jöfur. J* J. Arthur Rank er sonur forríks myllueiganda í Yorkshire, sem lét syni sínum eftir hvorki meira né minna en 20 milljónir sterlingspunda. Gamli mað- urinn var mjög strangur og siðavandur. Hann var meþódisti af lífi og sál og sá trúarflokkur er yfirleitt ekki bendlaður við kvikmyndir né annars kyns skemmt- anir. Uppeldi Josephs Arthurs Ranks var strangt og hann vandist ekki óhófi eða skemmtanafíkn, sem mjög einkennir kvikmyndaiðnað nútímans. Þegar hann tók við fyrirtæki föður síns rak hann það áfram af sama dugn- aði og fyrirhyggju — og þegar síðari heimsstyrjöldin skall á var það ekki sízt J. Arthur Rank að þakka, að Bretar urðu ekki að herða sultarólina meira en raun bar vitni. Hann hafði hugboð um það, sem í vændum var, og safnaði gengdarlaust korni svo að annað eins hafði ekki þekkzt þar í landi. r egar J. Arthur Rank tók við rekstri kornmyllanna að föður sínum látnum varði hann mestri starfsorku sinni í þágu fyrirtækisins. Frístundirnar helgaði hann söfnuðinum. Hann varð áhugasamur sunnudagaskólakennari, er alltaf þeysti í skólann á gamla reiðhjól- inu sínu. Rankfjölskyldan eyddi ekki peningum í óþarfa. Undarlegt en satt, það var í sunnu- dagaskólanum, sem áhugi hans á kvik- myndum vaknaði. Hann veitti því at- hygli, að börnin höfðu miklu meiri á- huga á að fara í bíó en í sunnudagaskól- ann. Hann vissi líka, að kvikmynir þær trúarlegs eðlis, sem almenningur átti kost á að sjá, voru vægast sagt lélegar. Rank fór að þreifa fyrir sér. Hann byrjaði á mynd, sem hann tók úr dag- lega lífinu, „Turn of the Tide“, mynd um fiskimenn í Yorkshire. Hún fékk verð- laun á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum 1935. Og þar eð brezk kvikmyndahús vildu ekki kaupa myndina til sýningar keypti hann sjálfur kvikmyndahús við Leicester Square í London til þess að koma henni á framfæri. Af þessu sáðkorni óx risatré. Árið 1940 réð hann fyrir fjórum stórum kvik- myndafélögum, einu fyrirtæki, sem leigði út kvikmyndir og hvorki meira né minna en 600 kvikmyndahúsum. Með sanngirni er hægt að segja, að hann hafi reynt að standa við hugsjónir sínar og framleiða einungis kvikmyndir, sem voru heilbrigð skemmtun og dægrastytt- ing fyrir alla fjölskylduna. En smám saman greip straumurinn hann — og J. Arthur Rank varð með tímanum einn af hörðustu keppinautum jöfrana í Hollywood. H ann komst líka langt. Á skömm- um tíma safnaði Rank að sér hæfustu kvikmíyndaihöfundum, sem völ var á, og til hans réðust líka „stórar stjörnur“ á borð við Laurence Olivier, Jean Simm- ons, Trevor Howard og James Mason. Urrandi ljónið, einkenni Metro- Goldwyn-I Iayer, vár orðið heimsfrægt. Málmbumban og nakti kraftajötuninn, urðu líka heimsfrægir eftir því sem veldi Ranks óx. Þess er enginn kostur að telja upp þarm geysilega fjölda mynda, sem Rank framleiddi, jafnvel þó aðeins væru táldar betri myndirnar. Þær eru alltof margar. Fyrirtækið þandist út og varð á endanum þvílíkt, að Rank varð að hafa sig allan við til þess að fylgjast með því, sem var að gerast í hans eigin stofnun. Hans óska- draumur var að vinna bandaríska mark- aðinn. Þó að hann verði milljónum punda í því skyni, þá er ekki hægt að segja, að þetta hafi tekizt. S vo hófust erfiðleikarnir. Rank kvikmyndafélagið var þannig byggt upp, að öll hjól þurftu að snúast með mest- um mögulegum hraða til þess að allt gengi vel. En nú dró úr aðsókn að kvik- myndahúsum, í Englandi sem annars staðar, ekki sízt vegna þess undratækis sem sjónvarpið er. Og ekki bætti það úr jkák, að það var sem kvikmyndahöf- undarnir brygðust, Rank varð sundur- orða við eina „stjörnuna" á fætur ann- arri — og margar sögðu upp vistinni. Nauðungaruppboð urðu næstum dag- legur viðburður. Þar valt ekki á þús- undum, heldur milljónum. Enda þótt Rank hefði tekizt að vinna stóran hluta af innanlandsmarkaðnum, þá nægði það honum ekki. Hvað eftir annað var því spáð, að nú yrði Rank lávarður, sem hann var þá orðinn, að leggja árar í bát fyrir fullt og allt. En þeir spádómar rættust ekki. Hann var ekki einungis milljónaeig- andi, kornmyllurnar hans möluðu dag og nótt. Þar að auki er lávarðurinn harðsnúinn fjármálamaður, þrautseigur og hagsýnn. Hann bjargaði mörgum kvikmyndahúsum undan hamrinum með því að breyta þeim og nota til annarra hluta. H ann varð líka að slaka á gömlu hugsjónunum. Þegar veldi hans var sem mest voru aldrei sýndar í kvikmynda- húsum hans myndir, sem bannaðar voru börnum. Nú smugu þær inn, ein og ein. En sjálfur framleiðir hann aðeins mynd- ir, sem flytja heilbrigt skemmtiefni fyrir alla fjölskylduna. Nú á hann 374 kvik- myndahús, en aðeins eina upptökumið- stöð. Og á hverjum laugardagsmorgni sýnir hann myndir í kvikmyndaklúbbi fyrir börn. Það er hans klúbbur — og það starf, sem hann nú orðið leggur einna mesta rækt við — alveg eins og sunnudagaskólann forðum. Enda þótt hann láti nú af stjórn fyrir- tækisins, þá er ekki þar með sagt, að samband hans við kvikmyndirnar sé rofið. Fyrst í stað fylgist hann sjálfsagfc vel með rekstrinum — og myllurnar halda áfram að mala. En nú gefst hon- um fyrst tækifæri til að njóta lífsins að setri sínu í Sutton Scotney í Hampshire, leika golf og fara á veiðar. Rank lá- varður er skæð fasana-skytta. Hann byrjaði með 20 milljónir punda. Þau á hann ekki núna. Stóra málm- bumban hefur kostað hann mikið fé, en menn gizka á að hann eigi 10—13 milljónir. — Kannski 13, segir hann. Ég er ekk- ert hjátrúafullur. Bara venjulegur jb ingmaéur" Það varð mörgum brezkum íhalðs n-ani gremjuefni, er Macmillan leysti Selwyn Lloyd frá embætti fjá.rmála- ráðherra. Þótti illa farið með mann, sem vel hafði dugað, því margir töldu Sclwyn Lloyd einn af traustustu og dugmestu ráðherrum Macmillans. Kjósendur Lloyds voru forsætisráð herraniun mjög reiðir og efndi Lloyd sjálfur til fundar með þeim til þess að reyna lægja mestu öldurnar. Hann gekk brosandi upp í ræðustólinn og hóf mál sitt: — Þegar ákveðið var, að ég skyldi láta af ráðherraembætti, sagði ég við dóttur mina Jóhönnu, sem. er 10 ára. Jæja, Jóhanna litla. Nú verð ég ekki ' lengur fjármálaráðherra". — Verðurðu þá utanríkisráðhcrra aítur? — „Nei“ — Hvað verðurðu þá, pabbi?“ — „Bara venjulegur þigmaður." Hún þagði andartak, en svo sagði hún brosandi: — „Mikið er það gott — þá koma ekki þessar ljótu myndir af þér I í blöðunum framar.“ Utgefandi: H.f. Arvakur. Reykjavík. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.) Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Auglýsingar: Arni Garðar Kristirisson. Ritstjórn: AÖalstræti 6. Sími 22480. ✓ LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 20. tölublað 1961

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.