Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 19.08.1962, Qupperneq 5

Lesbók Morgunblaðsins - 19.08.1962, Qupperneq 5
— Þegar ég var sjö eða átta ára bar það við einn morgun að ég var einn uppi á lofti í rúmi mínu. Móðir mín hafði farið út að hengja upp þvott. — Skyndilega birtist maður í dyrunum. Hann heilsaði ekki eins og venja gesta er. En mér fannst það ekkert undar- legt. Ég spyr hann hvað hann heiti og hvern hann vilji finna. En hann svarar engu og ég endurtek spurninguna. Ekk- ert svar. Ég horfði á hann eins og ég nú horfi á þig. hún hafi ekkert rúm fyrir hana. Móðir mín segir það velkomið. Þegar þessi naeturgestur kemur, rifjast það upp fyr- ir manni, að stúlka þessi hafi átt bróð- ur, sem dáinn var fyrir nokkrum ár- um. Hún hafið þekkt hann lítillega, en gleymt honum alveg. En nú minnist hún þess að lýsing mín á ókunna mann- inum á við þennan látna bróður stúlk- unnar. Það leikur því enginn efi á, hver hann var, þessi þögli gestur frá dán- arheimum. (Skrifað í sjúkrahúsi okt. 1956). |H Y RIR allmörgum árum birtist í Lesbók grein eftir ritstjórann um Sæfinn með barns- lundina og hreina hjartað. í æsku minni heyrði ég getið um Sæfinn og skóna hans sextán, en glögga mynd hafði ég ekki af hon- um, fyrr en eftir lestur greinarinn- ar. Og ég verð að segja það, að bjart er í huga mínum um þennan tötr- um vafða píslarvott mannlegrar eymdar. f nefndri grein er þess getið, að 1838 hafi fyrsta gröfin verið tekin í kirkju- garðinum á Melunum. Þetta rifjaði upp fyrir mér kynni mín af gamalli konu, frú Hall. Það var skömmu eftir aldamótin að ég dvaldist vetrarlangt við nám í Reykjavík. Var ég til húsa hjá frú Elín- borgu Hall og mágkonu hennar, frú Luise. ær voru báðar ekkjur og höfðu matsölu í Þingholtsstræti 24. Hjá þeim var móðir Luise, og tengdamóðir Elín- borgar, háöldruð. Heimasætan á heim- ilinu var Ragnheiður Hall, dóttir Elín- borgar. Hún vann við verzlun Sturlu- bræðra, sem voru frændur hennar. — Ragnheiður giftist Einari Jónassyni, sem síðar varð sýslumaður í Barðastrand- arsýslu. — Frú Ragnheiður er lát- in fyrir skömmu. Gamla frú Hall var margfróð. Hún hafði numið mikið á langri göngu í skóla lífsins. Og máske er það stað- bezta þekkingin, sem sá skóli veitir. Ég kallaði frú Hall ömmu eins og fröken Ragnheiður. Öllum stundum sat ég hjá ömmu. Hún hafði frá svo mörgu að segja. En því miður hef ég glatað flestu, sem hún fræddi mig um, eins og svo mörgum öðrum verðmætum. En nú hef ég fiskað upp úr hafsjó minninganna tvö atvik, sem þessi blessuð amma sagði mér frá. Eg varð undrandi.þegar hún sagði mér, að hún hefði verið viðstödd fyrstu jarðarförina, sem fram fór í kirkju- garðinum á Melunum, nú gamla garð- inum, þá kornung. Hún sagði mér hver það var, sem þar var lagður til hinztu hvíldar. En því hef ég gleymt. Mér fannst ótrúlegt að hún hefði lifað það, að öllum þeim fjölda væri hringt til grafar, sem hvíldu þar láin bein. Og þrátt fyrir mörgu árin, sem hún hafði að baki, var hún enn glöð í bragði og skýr í hugsun og frásögn. Kem ég þá að síðara atvikinu. Síðla dags að vetrarlagi fór maður frú Hall suður í Hafnarfjörð. Reið hann gráum hesti, sem hann átti og nefndur var Köttur. Um kvöldið sat hún í stofu sinni og kona hjá henni. Þær ræddu saman. Skyndilega rak frú Hall upp hljóð. Konan, sem hjá henni var, hrekk- ur við og segir: „Er þér að verða illt?“ „Nei, en Köttur datt með manninn minn og ég er hrædd um að han hafi meitt sig.“ „Hvaða ógnar vitleysa, ekki sérð þú gegnum holt og hæðir“, verður konunni að orði. „Jú, ég sé það jafn greinilega og ég sé þig“. E ftir stundarkorn, sem frú Hall fannst eilífðartími, kemur maður henn- ar heim. Hann var skrámaður á andliti, en annars hress og glaður. Frú Hall fagnar manni sínum og spyr: „Því ertu svona í framan?“ „Köttur datt með mig á heimleiðinni. En ég meiddist ekkert nema þetta lítil- ræði í andlitinu.11 VissUlega sá frú Hall gegnum holt og hæðir, þótt konunni fyndist það fjar- stæða. H”er getur láð henni það? (Skrifað í nóv. 1954). ftt riér var nýskeð sagt eftirfarandi og læt sögumann og sjónarvott hafa Snögglega óskýrist þessi dularvera í dyrumim, leysist upp og hverfur. En ekkert varð ég hræddur. Mér fannst þetta allt eðlilegt. Þegar móðir mín kemur inn, spyr ég hana hver hafi komið. Hún segir að enginn hafi kom- ið. Segi ég henni þá frá sýn minni. Hún biður mig lýsa manninum. Geri ég það eftir beztu getu, því skýr stóð hann mér fyrir hugskotsaugum. Hún kveðst ekki kannast við hann. O einna þennan sama dag kemur nágrannakona til móður minnar. Biður hún hana að hýsa stúlku um nóttina, I Skrýtið atvik \rUTTU eftir, að ég var fermd- ur, fór ég að fara á sjó. Og gerði ég það síðan í rúmar 20 vertíðir. Fyrstu vertíðina reri ég á opnu skipi, hjá frænda mínum Guðmundi Bjarna- syni, á Bræðraparti í Vogum á Vatns- leysuströnd. Um vorið eftir, fór ég matsveinn á skútu, og var þar til hausts á skipi, sem Jón hét. Og mun hann þá hafa verið með elztu kútterum, sem hingað voru keyptir. Mánaðarkaup mitt var þá 18 kr. Var mér ætlað að elda fyrir rúmlega 20 karla. Ekki hafði ég komið nærri elda- mennsku áður. Og ekki var ég sá mað- ur, að ég gæti tekið pottinn hjálpar- laust ofan, ef hann var fullur, sem oftast var, ef ekki var því verra í sjó- inn. En alltaf fékk ég góða hjálp með það, þegar í nauðir rak. Eldamennskan var nú ekki önnur, en að elda fisk tvisvar á dag, og svo einhvers konar graut um miðjan daginn. Nema á sunnudögum, þá var elduð sætsúpa. Engar kartöflur voru eldaðar, nema handa yfirmönnunum. Einstaka háseti hafði með sér kartöflur, sérstaklega menn af Akranesi. Hver maður lagði sér til soðfisk. Einna lakast var að útvega hverjum sitt upp úr pottinum. Gat það reynzt dálítið erfitt, þegar vont var í sjóinn, því þá var nokkur hætta á að eit-thvað kynni að ruglast til. En misjafnar gátu þakkirnar orðið, ef útaf bar. Þó tókst þetta oftast sæmilega. Einum hásetanum man ég sérstaklega vel eftir, og voru þó fleiri mér hjálp- legir. En hann skar sig þó úr, enda hafði hann getu og góðan vilja til þess. Þessi maður var Jón heitinn Ólafsson, síðar bankastjóri og alþingismaður. Skipstjóri var Marteinn Teitsson og stýrimaður Vilhjálmur Gíslason, báðir ágætismenn. Næsta vetur var ég einnig matsveinn og var kaup mitt þá 25 kr. á mánuði. Þá var ég á skipi, sem Sturla hét, eign Sturlubræðra. Skipstjóri Bjarni Elías- son. Eftir þá vertíð réðst ég sem fullgildur háseti og þó sem hálfdrætt- ingur. Og gekk mér fiskidrátturinn eftir vonum. Á meðan ég var sjómaður, var ég svo heppinn að eignast ágæta skip- stjóra. Og urðu sumir þeirra mínir beztu vinir. Og hefi ég nú kvatt þá alla. Þann síðasta fyrir tæpu ári, Kristin Bryjólfsson frá Engey. En honum var ég með síðast á íslendingn- um 1917. Það var mín síðasta sjóferð. Lengst var ég með Jóni Árnasyni frá Heimaskaga á Akranesi, 12 vertíðir. Eins og fyrirsögnin á þessum þætti ber með sér, var ætlunin að segja frá skoplegu atviki, sem kom fyrir eitt sinn er ég var á skútu. Að vísu bar ýmislegt fleira við á þessum árum, sem ekki væri síður frásagnarvert og sumt af því þannig „að því gleymi ég aldrei“. En að þessu sinni munu þau atvik ekki verða færð í letur, aðeins þetta eina. En hvort fleiri verði rifjuð upp síðar er óvist, enda öllum hulið sitt endadægur. Atvik þetta, sem hér um ræðir, mun hafa gerzt um sl. alda- mót. Ég var þá háseti á kútter Skarp- héðni. Eigandi hans var þá Jón Jónsson skipstjóri í Melhúsum á Seltjarnarnesi, mætur maður og vel látinn. Kona hans var Guðrún Brynjólfsdóttir frá Meðal- fellskoti í Kjós, mikil myndar og gæða kona. Þegar þetta atvik gerðist, sem hér um getur, var enskur maður háseti á Skarphéðni, Jón að nafni, en gekk undir nafninu Sjonn. Var hann þá vinnumaður í Melshúsum. Kom hann hingað til lands á timburskipi, sem strandaði i Borgarnesi. E n nokkru áður en þetta bar við sótti Jón í Melshúsum fisk í enska togara, sem þá stunduðu mikið tog- veiðar hér í Faxaflóanum. Þetta gerðu ýmsir fleiri en Jón, voru þeir frá Akranesi og Seltjarnarnesi. Og fékk Sjonn að fara með Jóni um borð í togara með það fyrir augum að komast með einhverjum þeirra aftur heim til Englands. En hentugt var fyrir Jón slcipstjóra, að fá mann, sem gat talað við togarakarlana. Varð það því að ráði að Sjonn staðnæmdist hér um sinn og réðst hann þá til Jóns. Og varð hann síðar háseti á Skarphéðni og þar kynnt- ist ég honum. Þar var hann er þetta atvik gerðist, sem hér skal frá greint. Við vorum staddir grunnt út af Patreks firði í góðu veðri í tregfiski. Þetta var að vorlagi. Flestir voru við sitt færi. Sjonn þótti heldur orðijótur og sér- staklega bar á því, ef honum gekk illa að draga. Blótaði hann þá ýmist á ensku eða íslenzku, eða þá einhvers konar mállýsku. 1 þetta sinn hafði hann Framh. á bls. 6 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 5 20. tölublað 1962

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.