Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 19.08.1962, Qupperneq 7

Lesbók Morgunblaðsins - 19.08.1962, Qupperneq 7
Mynd IU Ljósmynda- samkeppnin I VIÐ viljum minna ykk- i ur á ljósmyndasamkeppn i ina, sem við boðuðum l um daginn. Æskufólki 20 ára og yngra er boðin þátttaka í samkeppni um , þrjár beztu myndir sum- , arsins 1962. Þrenn verðlaun verða veitt, 1. verðlaun kr. 500,00, 1 en 2. og 3. verðlaun verða i vandaðar bækur. Myndirn- ar þarf að senda til Morg- unblaðsins, Reykjavík, fyrir 20. september nk. og merk- ið þær „Ljósmyndasam- keppnin". Einnig þurfið þið að senda nafn ykkar í lok- uðu umslagi og utan á umslagið og aftan á mynd- ina þurfið þið að setja Ísamskonar einkennismerki, t. d. dulnefni. Hefjizt nú handa og takið góðar myndir, sumarmynd- ir, og látið það ekki aftra ' I ykkur þó að þið eigið að- j eins kassavél eða aðra ein- falda myndavél, því að oft er hægt að ná ágætum myndum á þær. Sem sagt, nú er tækifærið, sendið okkur myndir, eina eða fleiri. Bestu myndirnar verða svo birtar í Lesbók Morgunblaðsins. Munið að myndirnar þurfa að berast til okkar fyrir 20. septem- ber nk. því að þá tekur dómnefndin til starfa. Rétt i er að geta þess að það er 1 ekki nauðsynlegt að mynd- irnar séu stórar, aðeins að 1 þær séu góðar og skemmti- legar sumarmyndir. Við treystum því að þið verðið mörg sem sendið okkur myndir svo að þessi sam- keppni geti orðið ykkur og okkur til ánægju. ÞEGAR taka á mynd • og gengið hefur r verið úr skugga um að heppileg filma sé í vélinni og hún rétt stillt, þá er ekki nóg að lyfta myndavélinni og „smella af“, ef myndin I á að verða góð. Þá er I að athuga myndverkefnið j (motivið) og reyna að fá samspil ljósa og skugga, lína og flata þannig að jafnvægi sé í myndinni. Á helgri slund „LITIÐ til fugla himinsins ..... og gefið gaiun að liljum vallarins, hversu þær vaxa. .“ (Mt. 6,28 og 28.). Tákiö eftir þessum orö- um Jesú Krists. Enginn liefur hvatt okkur á jafn skýran og gleðiríkan hátt til þess aö skoöa dásemdir' sköpunarverksins og hann. Vonandi hafiö þiö ékki, kœra œskufóllc gleymt í sumar aö líta umhverfis ykkur og gefa dáserndum lífsins gaum. Þaö er fag- urt bænarefni aö biöja Guö aö gefa okkur vökul og athugul augu, svo aJÖ viö fáum séö og tekiö þátt í peirri fegurö, sem hvar- vetna blasir viö. Hitt er þó fegurst alls að vaxa t öllu góöu og göfugu og veröa þannig þátttákendur í dýrö Drottins. einnig skemmir það myndina að annar drengur stakk sér fyrr og er kominn að nokkru ofan í vatnið, drengina ber saman og renna að nokkru í eitt svo að myndin verður óglögg. Gætið þess að það sé ekki of mikið sem myndavél- in „sér“ í einu, ef þið viljið ná glöggum myndum. Ef þið eig- ið kassavél eða aðra einfalda myndavél sem ekki hefur hraðastillingu, þá skuluð þið forðast að taka myndir af hlutum og fólki á mikilli hreyf ingu, en ef þið viljið þó festa það á filmu, þá reynið að sjá til þess að hreyfingin sé annað hvort að eða frá vélinni, því að þá er minni hætta á að myndin verði hreyfð. Munið að halda vélinni alltaf stöð- ugri og hreyfið aðeins einn fingur þegar þið smellið af. Mynd III sýnir vel hvað er að ske. Þó hún sé ekki hreyfð, sýnir hún vel hreyfingu og athafnir piltanna á bátnum (athugið skvettuna frá árar- blaðinu og handleggi piltanna) og strákinn sem er að synda til þeirra. Þarna er bakgrunn- urinn ekki áberandi um of svo að aðalatriði myndarinnar fær notið sín, en þó undirstrikar hann vel að þarna unir unga fólkið sér vel og er kátt í góð- um félagsskap. Myndin er tek- in í sólskini (hliðarljósi) en skuggarnir eru þó mildir og gefa myndinni hlýjan blæ. Það er kostur að vatnið er ekki al- veg slétt, þannig fæst hlutlaus og mildur bakgrunnur fyrir aðalatriði myndarinnar og teng ir bátinn við aðra hluta henn- ar. Ef myndavélin hefði verið neðar sVo að höfuð piltanna hefði borið í ströndina, þá er hætt við að myndin hefði orðið lakari. Mynd Það er t. d. slæmt ef öll mest áberandi atriði myndar- innar eru í öðrum enda henn- ar, betra er að þau séu ná- lægt miðri mynd. Um þetta eru til ýmsar reglur og kennisetningar og getur verið erfitt fyrir byrjanda að eltast við þær og skilja, þessar regl- ur geta að vísu verið til mik- illar hjálpar fyrir þá sem þekkja þær, en ég vil vara ykkur við að binda ykkur um of við slíkar reglur, því að þá er hætt við að myndin ykkar glati persónulegum einkennum ykkar og verði ekki sú minn- ing sem tengir ykkur skemmti legum atburðum. Ég ætla ekki að rekja þessar reglur, en þess í stað ræði ég um þrjár myndir, kosti þeirra og galla, eins og ég sé þá, og reyna að benda ykkur á hvernig betur hefði mátt gera í hverju til- felli. Mynd I er ein af þessum al- gengu myndum, drengur með fisk og umhverfið er bryggja II í sterku sólskini og því verður skugginn á andliti drengsins of sterkur, en oft er aðstaða þannig að ekki er gott að kom- ast hjá þessu, en bót væri það ef sólin hefði skinið dálítið beinna á^andlit drengsins. Ann ar galli á þessari mynd eru möstur og reiði bátanna, sem verka truflandi og draga at- hyglina frá drengnum, en hann er auðvitað aðalatriði mynd- arinnar. Þá hefði einnig verið betra að fiskana, sem drengur- inn heldur á, hefði borið í ljós- ari bakgrunn, því að þeir sýna hversvegna drengurinn er þarna og hvað hann er að gera. Munið að í bakgrunni myndar er slæmt að hafa margar óreglulegar og áber- andi línur. Mynd II er tekin í útisund- laug, drengur stingur sér til sunds, en hreyfingin er snögg og myndin verður hreyfð að nokkru vegna þess að vélin var ekki stillt á nægan hraða (betra hefði verið 100 eða 200) j 20. tölublað 1962 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 7

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.