Lesbók Morgunblaðsins - 24.05.1964, Page 4
MMMÆMMwMMMÆM
Litiö inn í
Stóragerði
STÓRAGERÐI 30 er stigahús í miðri
íbúðasambyggingu, eitt af þessum
húsum, sem þotið hafa upp í stór-
hópum austur í bæ á siðustu árum.
Þarna býr margt ungt fólk, nýgift
— með ung börn — og þar er líka
mikið af nýjum bílum.
Okkur langaði til að skyggnast inn
í eipa af þessum íbúðum — og Stóra-
gerði 30 varð fyrir valinu, heimili
Einars Kristinssonar og Ólafar Októs
dóttur. Við boðuðum komu okkar
með það góðum fyrirvara að frúnni
gafst tækifæri til þess að baka vöffl-
ur og þeyta rjóma, sem þó hefði
verið óþarfi, því við sáum strax, að
á þessu heimili eru alltaf til góðar
kökur.
Þarna er ýmislegt að sjá:
Þelta er tiltölulega nýtt heimili, vel
búið húsgögnum — og öll eru þau
nýjustu tegundar. Þar virðist ekki
vanta neitt — jafnvel ekki fleiri börn
í bráð, því einkasonurinn, Októ, er
ekki nema hálfs annars árs — og
á miðju „handóða“-skeiðinu.
En þetta er myndarpiltur og verð-
ur sennilega duglegur sundmaður
eins og faðirinn, en hann á ótal meda
líur fyrir sundafrek, eins og þeir,
sem fylgjast með þeirri íþróttagrein,
vita sjálfsagt
Frúin,segir okkur, að nú sé hann
hættur að synda, því þetta hafi ver-
ið ógerningur. Æfingarnar hafi allt-
af verið á kvöldmatartímanum —
og það fari ekki saman að stunda
þessar íþróttir af kappi og sinna
húsbóndastörfum auk vinnunnar.
Svo fór líka að Einar byrjaði að
mæta á réttum tíma í kvöldmat og
hætti sundinu, og þá keyptu þau
sér sjónvarp.
Hér fluttu þau inn fyrir þremur
árum í nýja íbúð, sem ungu hjónin
keyptu fokhelda og fullgerðu síðan
með góðra manna hjálp. Þarna er
ein rúmgóð stofa, eða tvær samliggj-
andi, eins og það er skilgreint nán-
ar, tvö herbergi og eldhús. Hæfilega
stór íbúð fyrir litla fjölskyldu — og
selst sennilega fyrir gott verð, þegar
fjölskyldan þarf að stækka við sig
húsrými einn góðan veðurdag.
Þau segja, að þarna sé gott að
búa. Úr stofunni sést suður á Reykja
nes og út á sunnanverðan Flóann —
og hvergi eru betri móttökuskilyrði
fyrir sjónvarp en einmitt þarna uppi
á hæðinni.
Fara þau sjaldnar í bíó eftir að
sjónvarpið kom? Jú, ekki jafnoft. Að
vísu stunduðum við aldrei bíó, segir
húsbóndinn, en nú förum við aðeins,
þegar eitthvað sérstakt er að sjá. Við
höfurn aldrei verið í vandræðum
með barnfóstru, ekkert slíkt bindur
okkur heima á kvöldin. Hér hinum
megin á ganginum býr tengdamóðir
mín — og þessi fjölskylda er laus
við öll tengdamömmuvanda-
mál — á báða bóga, segir hann.
Hafa þau hætt að hlusta á íslenzka
útvarpið?
Nei, segir frúin. Ég hef, það oft
opið á daginn — og á kvöldin hlust-
um við alltaf á fréttirnar. Það er
bara svo sárasjaldan að eitthvað
skemmtilegt er í íslenzka útvarpinu
og þess vegna horfum við yfirleitt
alltaf eittihvað á sjónvarpið á hverju
kvöldi, segir hún. Og Einar bætir
því við, að hann telji sjónvarpið
ekki hafa spillt heimilinu á neinn
hátt nema síður væri, því ailtaf sé
eitt og annað skemmtilegt eða gagn
legt og fróðlegt að sjá.
En við eigum líka stereo-plötu-
spilara, segir Óiöf — og hann er oft
í gangi. Þegar við erum heima á
kvöldin, þá hprfum við yfirleitt á
sjónVarpið, hlustum á útvarp — eða
á plötur — og við eigum töluvert af
djass-plötum og vinsælum söngleikj-
um, sem eru okkar uppáhald. Þetta
er mikið húsgagn, plötuspilarinn og
kassinn utan um hann — ásamt út-
varpinu. Hann er úr Skeifunni,
segja þau, borðstofuskápurinn líka.
Svo eiga þau ný borðstofuhúsgögn
— og sófa og sófaborð — og allt er
þetta úr teak.
Annars segir frúin, að eini gallinn
við ibúðina, ef galla skyldi kalla, sé,
að, þvottahúsið er ekki á hæðinni —
heldur niðri í kjaliara.
Þegar hér er komið erum við bún-
ir með margar vöfflur og enn er hellt
í bollann. Ljósmyndir eru komnar á
dagskrá — og það kemur upp úr
kafinu, að ljósmyndun er eitt helzta
tómstundagaman húsbóndans, því
bæði stunda þau ferðalög innan
lands og utan á sumrin. Einar er
nýbúinn að kaupa heildverzlunina
Daníel Ólafsson og Co — og í sum-
ar ætla þau að sameina sumarfrí og
söluferðalag um Austfirði á bílnum,
sem er Mercedes 3enz, einn af þess
um stóru, sem þenja sig yfir allan
veginn, þegar maður mætir þéim —
og er sjálfur í Volkswagen eða Fiat.
Svo eru þau að hugsa um að fara í
Öræfaferð — og þá verður Októ-
litli auðvitað hjá tengdamömmu.
Myndirnar eru at Ólöfu og Einari
með soninn Októ. — Myndin að
neðan var tekin við siónvarpið.
4 LESBÖK morgunblaðsins
19. tölublað 1964