Lesbók Morgunblaðsins - 12.05.1968, Page 13

Lesbók Morgunblaðsins - 12.05.1968, Page 13
„Allir á bak og burt“, sagði hann og gat ekki dulið ánægjuna í rödd- inni. Lovísa veitti því athygli og varð reið mitt í sorg sinni. Hún gekk að kassanum og virtist fyrir sér lausu fjölina. „Þetta hefur enginn köttur gert“, sagði hún bitur. „Miklu fremur hund- ur, — mannhundur! Veslings kisurnar mínar“, „Kettirnir bjarga sér í skóginum“, sagði forstöðukonan. „Og taki refurinn þá, er það einungis samkvæmt eðlileg- um lögmálum náttúrunnar. Þar getur engin manneskja gripið í taumana". „Þar ætla ég að grípa í taumana“, svaraði Lovísa. „Hingað skuluð þið ekki véla mig í annað sinn“. Og hún hélt af stað út í myrkrið. „Notaðu skynsemina", kallaði forstöðu konan og fór á eftir henni. „Bíddu að minnsta kosti til morguns“. En Lovísa hélt áfram steinþegjandi, og þegar forstöðukonan hljóp á eftir henni og greip um handlegg hennar, reif hún sig lausa. „Taktu ljóskerið að minnsta kosti, manneskja“, sagði forstöðukonan loks í úrræðaleysi, og þá rétti Lovísa magra hönd sína eftir ljóskerinu. Forstöðu- ki»nan stanzaði og horfði á eftir vagg- andi ljóskerinu hverfa til skógar. „Kis, kis!“ kallaði Lovísa út í hljóð- látt myrkur skógarins. „Snælda, Pétur, Sara, Mána, — kis, kis!“ Ekki leið á löngu, þar til glytta sást í tvö augu við stíginn rétt fram undan. Hún heyrði einnig mjálm lengra burtu, og brátt straukst eitthvað mjúkt við fætur hennar. „Prins, Lotta, Perla, Mjaldur, — kis, kis!“ kallaði hún aftur. Skógarstígurinn bergmálaði rödd hennar, sem nú hafði fengið mjúkan gælutón ólíkan þeim, er hún notaði, þegar hún talaði við fólk. Skrjáfið og málmið umhverfis hana hélt áfram og jókst því lengra sem hún gekk, og svartir og hvítir og brönd- óttir kettir skutust fram og aftur í skininu frá ljóskerinu. Þeir sveifluðu skottinu og mjálmuðu og reyndu að nudda sér við fætur gömlu konunnar. Hún stanzaði tvisvar og bjóst til að telja þá, en það reyndist árangurslaust í þessari daufu og flöktandi skímu. Þegar skógarstígurinn beygði loks upp að kofanum, sá hún, hvernig þeir hlupu kátir og léttir í spori á undan henni. Ef til vill höfðu einhverjir þeirra ratað heim fyrir stundu síðan. Þarna stóð kofinn, og yfir honum hvelfdist dimmur næturhiminninn, en umhverfis hann sá hún lýsandi smá- stjörnur eins og perluröð á bandi þeg- ar kettirnir horfðu móti henni og birt- unmi frá ljóskerinu. Þegar hún hafði kveikt upp í eld- stónni og sett kaffikönnuna yfir, taldi hún kettina og tvo vantaði. En þeir mundu vissulega skila sér. Þetta voru gamlir og reyndir skógarkettir, báðir tveir, og höfðu áður komizt í kynni við refinn. Þeir gætu smogið inn í skemmuna, þegar þeir kæmu heim. Hún var ánægð að vera komin heim í kofan sinn. Þeir skyldu fá að skila henni kommóðunni á morgun. Hér ætl- •aði hún að verða kyrr. Engum skyldi takast .að narra hana héðan. Stundum fekk hún nokkrar krónur frá börnun- um, og svo komu ofurlítil ellilaunmán- aðarlega. Þetta mundi allt bjargast eftir leiðis sem hingað tiL Hún ónáðaði eng- an, og þeir gátu látið hana í friði /þarna í skóginum. Um morguninn þegar hún vaknaði og reis úr rekkju, hugsaði hún með nokkrum hvíða til kattanna tveggja, sem ekki höfðu skilað sér um kvöldið. En þegar hún opnaði útidyrnar, sat annar þeirra í sólskininu á dyraþrep- inu og sleikti sig i ró og næði eins og ekkert hefði skeð. Og um hádegisbil kom hinn labbandi upp stíginn. Hann mjálmaði, svo að ginið opnaðist aftur að eyrum, þegar hún lokkaði hann til sín. „Hún skal víst fá að hírast þarna, unz fjandinn hirðir hana og kettina hennar“, sagði hreppsnefndaroddvitinn fúll í skapi. „Henni er ekki við bjarg- öðrum, liggi hún þarna dauð einhvern daginn“. Síðan skipaði hann svo fyrir, að draslið hennar skyldi flutt til hennar aftur. Það hlutverk fékk annar öku- karL Sá fyrri hafði enga löngun til þess. Jón H .Guðmundsson þýddi Þar sem litirnir glóa FramhaLl af bls. 5 hjálmsson, arkitekt, hefur teiknað fyrir hann veglegt hús, sem nú er hátt 'í að vera fokhelt. Það stendur við Barða- voginn: þar sér norður á sundin og til Esjunnar. Þetta verður einkennilegt hús og ákaflega ólíkt venjulegum ein- Ibýlishúsum. En Kristján Davíðsson kveðst ekki láta eina húsbyggingu trufla sig. Nú sem stendur hefur hann vinnu- stofu í því húsi við Ingólfsstræti, þar sem Félagsbókbandið var lengst af til liúsa. Sjálfur heíur Kristján að undanförnu búið í nafnfrægu húsi við Garðastræti, Unuhúsi, en væntanlega verður bráðlega breyting á þvi. Það er talað um að málarar þurfi að finna sjálfa sig og sú leit kann að drag- ast á langinn. Þegar menn eru nýlega orðnir fimmtugir eins og Kristján, fara þeir ugglaust að komast að einhverri niðurstöðu. Og allavega geta þeir hugg- að sig við eitt sem ég veit ekki hvort er algilt, en sýnir sig oft: Það er að mál- arar endast vel og ná gjarnan sínu bezta í kringum sextugsaldurinn. En allavega eiga myndir Kristjáns tæran hljóm, þó hann sé aðeins fimmtugur og auðfundið er það á sýningunni í Boga- salnum að honum finnst gaman að vera til- G.S. HAFÍSÁR Framhald af bls. 7 hefur hlotið að vera svimandi há ef við miðum við þær tölur sem til eru yfir fallinn búpening á svæðinu frá Skarðs- heiði og Oki að sunnan og Gilsfjarðar að vestan, en á þessu svæði er talið að hafi fallið 136 nautgripir 26 þúsundfjár 16400 unglömb og 1300 hross. Það sem bjargaði frá algjörum fjár- felli á Norður- og Austurlandi, þar sem ég hef gleggstar frásagnir af, var að haustið 1882 var fremur gott og vetur- inn 1883 var snjóléttur og fremur mild ur. Þegar fregnir bárust til útlanda um hallærisástandið á íslandi, var víða far- ið að gangast fyrir því að safna gjöfum. í október 1882 var búið að safna í Dan- mörku 150 þúsund krónum í peningum matvöru og fóðurbæti. Skáldið Willi- am Morris og Eiríkur meistari Magn- ússon söfnuðu í Englandi 90 þúsund krónum. Eiríkur kom hingað með gjaf irnar á gufuskipi. í því voru 350 smálestir af matvöru og nokkuð af heyi. Gjafir bárust oinnig frá Þýzka- landi, Noregi og víðar að.-------- Um þetta hallærisár mætti rita heila bók, en hér verður að nema staðar vegna rúmleysis. Skylt er þó að geta þess, að afleiðingarnar af þessu fellisáru urðu meðal annars þær, að íslendingar tóku að flykkjast til Ameíku. Árið 1886 fluttust vestur um haf héðan 500 manns flestir til Kanada, og árið eftir um 2000 manns, en fleira kom þar að visu til en harðindin þótt þau ættu sinn stóra þátt í flóttanum. Veturinn 1918 Þennan vetur muna margir íslendingar enn í dag. Ég minnist þess að fádæma snjóþyngsli voru á Norðausturlandi og ílla leit út á tímabili, en vorið var gott og allt bjargaðist vel menn og skepnur. Frá þessum vetri er sagt á þessa leið: Fádæma frösthörkur um allt land. Haf ís teppir siglingar fyrir Norðurlandi Vestfjörðum og Austurlandi. 5. janúar 'I Það er Susan Þorvaldsson, sem seg ir frá því, hver er uppáhaldsmatur eiginmanns hennar, Skúla Þorvalds- sonar. Þau hjónin búa að Bogahlíð 12, ásamt fjórtán mánaða syni sínum Þorvaldi. íbúðin er afar vistleg, má vera að hún búi yfir finnsk-íslenzkum sjarma því að Susan er finnsk. Hún er frá Helsingfors og tilheyrir þeim tíu pró- sentum finnsku þjóðarinnar, sem hafa sænsku að móðurmáli. Hún réðst flugfreyja til Loftleiða 1962 og hefur því verið búsett hér á landi í sex ár, reyndar meiri hlutann af þeim tíma jafnmikið í lofti og á láði. En eftir valdi hennar á ís- lenzku máli að dæma gætu árin eins verið sex sinnum sex. Skúli maður Susan, er á kafi í próflestri, er að búa sig undir loka- próf í lögfræði. Fólk, sem stendur í próflestri þarf að borða vel af hollum mat, og það þarf engar eft ir tölur til þess, þegar Susan ber fram — Lifur í potti- % kg. svínalifur 3—6 sneiðar bacon 1—2 piparhulstur (paprika) 1 laukur 1 lítil dós sveppir Baconið er skorið í strimla, lauk- urinn sneiddur og sömuleiðis pipar- hulstrin. Þetta er steikt ó pönnu ásamt sveppunum. Síðan er það sett Hver er uppáhaldsmatur eiginmannsins ? Frú Susan Þorvaldsson svarar spurningunni í pott, gjarnan eldfastan til að bera fram í, lifrin skorin í ferninga, velt upp úr hveiti, steikt á pönnunni og sett í pottinn ásamt hinu. Soðinu af sveppunum er hellt yfir og einnig með salti, pipar og e.t.v. papriku- dufti. Látið malla í 20 mín. og bætt út í vatni, mjólk eða rjóma, eftir smekk og þörfum. Borið fram með soðnum hrísgrjónum og salati. Salat- lögurinn er hristur saman úr matar- olíu og (vín)ediki og kryddaður með ofurlitlu salti, sykri, hvítlaukssalti, sinnepi og sítrónusafa. Þennan rétt má líka laga úr dilka- lifur, en þá má ekki láta hann malla nema stutta stund. Piparhulstrin fást núorðið oft ný, en annars má nota niðursoðin piparhulstur, sem fást í flestum stærri nýlenduvöruverzlun- um. Eftirréttur er epli með karamellu sósu. Susan kallar sósuna Tjunski- sass og er það nafn rússnesk-finnskt. 3 dl. rjómi 1 matsk. síróp 4 dl. sykur Rjómi síróp og sykur er soðið sam- an á vægum straum í 30—40 mín. Eplin f reiknið eitt á mann) eru flysjuð, skorin í tvennt ef vill, kjarn húsin tekin úr og þau soðin í sykur- vatni, þar til þau eru mjúk. Kara- mellusósunni hellt yfir og rifnum möndlum stráð ofan á. gerði hörku veður af norðri með frosti og fannkomu. Hafísinn rak þá að landi á fyrrnefndum stöðum og tepptust allar siglingar gjörsamlega á þessum slóðum Gífurlegar frosthörkur Síðan ísinn lagðist að landinu hafa verið gífurlegar frosthörkur, suma daga meira en elztu menn muna. Flesta dag- ana hefur verið yfir 20 stiga frost í Reykjavik 28 stig á ísafirði, 33% á Akureyri og 36 stig á Grímsstöðum á Fjöllum. Allir innfirðir eru nú lagðir ísi Kollafjörður er ein samfelld íshella og gengt út í Engey og Viðey, og eftir frosthörkurnar var sjór svo lagður á Faxaflóa, að frá Skólavörðunni í Reykj vik sást einungis bláma af auðum sjó fyrir Seltjarnarnes. Á Reykjavíkurhöfn er ísinn orðinn svo þykkur, að skip verða naumast söguð eða höggvin út úr höfninni. Þá vaTð og mlkill kolaskortur í Reykjavík og víðar og verðið á þeim fór upp í 300-320 krónur hver smálest. Hvíta birnir gengu víða á land fyrir norðan og voru minnsta kosti sjö skotnir (Og eru til ærið spennandi frásagnir af við- ureign manna við þá) l»ann 19.2 segir svo. ísinn er nú tekinn að reka frá landi, svo að þess er vænzt, að siglingarleiðir norður um land muni brátt opnast að nýju. Kannski var hafísinn og frosthörkur- nar ekki það versta sem dundi á land- inu þetta ár. Þetta ár gaus Katla eftir 58 ára þögn og eyddi bæjum og byggð og fénaður féll vegna öskufalls. Ofan á þær hörmungar sem ýmsar sveitirliðu vegna Kötlugossins, herjaði Reykjavík skæð drepsótt (Spánska veikin) og breiddist hún víða um landið. Meirihluti Reykvíkinga fárveiktist og fjöldi manns dó úr veikinni, meðal þeirra rithöfund- urinn Jón TraustL —En mikinn fögnuð flutti þetta ár einnig, því 1. desember þetta ár fögn- uðu fslendingar fengnu fullveldi. Veturinn 1965 Það sem sagt er um þennan ísavetur er mestmegnis tekið upp úr fréttum er Morgunblaðið flutti um hafísinn og veðurfar veturinn 1965. í Morgunblaðinu 13. janúar er fyrst getið um ishröngl við Horn, sem gerði siglingaleiðina hættulega og næstu daga var ásinn a‘ð smáþéttast 19. janúar er isinn orðinn á þeim slóðum, þ.e. beggja megin við Horn, landfastur. Veður voru köld og umhleypingasamt. ísinn gerði ýmist að lóna frá eða reka að landi aft- ur 13. febrúar ísspöngin orðin samfelld frá Straumnesi að Horni, skip gátu þó siglt í gegn um ísinn eftir vökum meðan bjart var. Þann 25. febrúar segir í Mbl. fs fyrir öllu Norðurlandi, og er það talið fátítt síðustu 20-30 árin. Jóhannes 12. maí 1968 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 13

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.