Lesbók Morgunblaðsins - 17.05.1970, Blaðsíða 9

Lesbók Morgunblaðsins - 17.05.1970, Blaðsíða 9
lirimur Thomsen. Hann var tuttugu og eins árs, þegar myndin var tekin. og hún kom til Kristíaníu mætti hún í stórveizlu hjá borgar- stjóra með séra Thoresen. Síðan liggur leiðin til prests- setursins á Heröy á Sunnmæri. >ar bíður hennar hlutverksem kennslukona barna prófastsins. Þau eru 5 á aldrinum 3ja til 10 ára. Hið þriðja í röðinni er 6 ára telpa, Susanna, sem síðar giftist Henrik Ibsen. Þess vegna er Magdalene Thoresen ekki raunverulega tengdamóðir Ib- sens, heldur stjúpmóðir konu hans. Á prestssetrinu er hún til febrúarloka 1843. Þá hefur margt gerzt bæði í líkama og sál fröken Magdalene Kragh. Séra Thoresen og hún fara sam an um Kristíaníu til Kaup- mannahafnar, þó að þau verði að fara hina löngu landleið til Svíþjóðar og taka ferju þaðan. Það liggur á. Séra Thoresen kemur einn heim til baka mán- uði síðar og sækir þegar um prestsembætti við Krosskirkju í Bergen. Það er staðfest, að fröken Magdalene Kragh ól sveinbarn í Den kongelige Födselstift- else 16. júní 1843. 4 dögum síð- ar er það skírt Peter Axel, en síðar hlaut hann nafnið Axel Peter Jensen. Var barninu svo komið fyrir á barnaheimili, en hvorki nafn föður né móður lát ið uppi. Þá fer að vandast málið, því að nú liggur það ljóst fyrir, að Magdalene elur barn sitt 8% mánuði eftir að hún yfirgefur Kaupmannahöfn. Það ætti því að hafa verið getið sama mán- uð og hún fór frá Kaupmanna- höfn. Hún getur því ekki hafa vitað þá, hvernig komið var fyr ir henni, hvað þá aðrir. Allnokkur aðdragandi og undirbúningur hlýtur að hafa verið að því, að hún færi til Noregs til að taka að sér að kenna bömum prófastsins. Hún fer því ekki þangað vegna barns þeirra Gríms. En hvemig á því stóð, að hún tók boði prófastsins, og hver eða hverj- ir hafi þar verið milligöngu- menn, er enn ekki ljóst. En þeg ar hún hefur náð sér nægilega eftir barnsburðinn, heldur hún aftur til Noregs, og innan fjög- urra mánaða frá því, er hún ól bamið, er hún orðinn pró- fastsfrú Thoresen. Málið gerist nú allflókið og verður sízt einfaldara við það, að miðað við framvindu mála, sem enn hefur eigi verið skýrt frá, má telja það með öllu úti- lokað, að séra Thoresen gæti hafa átt barnið. Þá er það einnig sannanlegt, að Magdalene hafði ekkert samband við Grím, er hún var í Kaupmannahöfn, og sagði honum ekki frá barninu fyrr en 8 árum síðar. Það gerði hún ekki fyrr en með bréfi, sem ekki er fyrir hendi, einhvern tíma árs 1851. Nú hljóta ýmsar spurningar að koma fram í hugann. Og þá fyrst, af hverju sagði hún ekki Grími frá því, að hún bæri barn hans undir belti og reyndi þannig á viðbrögð hans? Hvaða samræmi er í því, að hann hafi „sleppt af henni takinu“, þegar samband þeirra er ekki minna náið allt fram til þess, er hún fer frá Kaupmannahöfn, en það, að hann getur verið faðir bams hennar og fær ekki að vita „sannleikann“? Hefur kona ekki helzt tak á manni í slík- um tilfellum, ef hún hefurþað nokkurn tíma? Og því taki hef- ur hún sannarlega sleppt og ekkert á það reynt. Og vegna stöðu Gríms og framavona sem og vegna hins ástríðufulla sam- bands þeirra, eins og hún lýsir því, hefði það „tak“ átt að vera meira en í meðallagi sterkt. Og hann, sem hún er enn „sann- færð um, að hefði getað veitt henni hið fullkomná ástalíf“, er látinn sleppa við að finna nokkum skapaðan hlut fyrir takinu. Hvers konar píslarvætt ishneigð kom yfir þessa konu einmitt á þessum timamótum ævinnar? Og hvenær fór hann, og hvernig veit hún það, að „svipast um eftir“ henni og komast að því, sennilega sér til mikillar undrunar", að hún væri hreint ekki nein jurt á alfara- vegi, sem hugsunarlaust mætti traðka á“? Og hvemig gat hann þá gert henni bam? Undrandi og hugsunarlaust? „Hann lét mig fara.“ Hver lét hvern fara? Hvernig kemur yf- irleitt ofangreindur bréfkafli til frú Heiberg, leikkonu, heim og saman við veruleikann? Svari því konur og menn. En höldum hugsuninni. Skyldi hún ef til vill ekki hafa viljað Grím, þótt hann hefði viljað hana? Það er mjögósenni legt, því að þrátt fyrir allt er enn ekki ástæða til að efast um hug hennar. Grímur Thom sen var með efnilegustu og glæsilegustu ungum mennta- mönnum í Danmörku á þessum tíma og var þegar orðinn fræg- ur maður fyrir gáfur og frammi stöðu í þeim greinum, sem hún einmitt mat hæst. Hún var fá- tæk stúlka, en hann gat meira að segja borið sig ríkmannlega sem námsmaður, — þegar hann las með henni. Hér er langt frá því, að öll kurl séu komin til grafar. En þegar á þessu stigi málsins er nóg komið til þess, að hægt er að fullyrða, að Grímur Thom- sen brást ekki barnsmóður sinni. Menn geta ekki brugð- izt því, sem þeir vita ekki um. Það er því eðlilegt, að það hafi runnið tvær grímur á Grím, þegar hún skrifar honum 1851 og segir honum, að hann eigi með sér 8 ára dreng. Og hann sé í Kaupmannahöfn og hafi þar allan tímann verið. Síðar verður að því vikið, hvemig Grímur brást við. En ég tel það óyggjandi, að Grím- ur hafi ekki fengið að vita um tilveru drengsins fyrr en 1851. Til er bréf frá Magdalene, sem sýnir það. Fyrir hendi eru tvö bréf á Landsbókasafninu frá Magdalene til Gríms. Að Grími látnum fól Jakobína Jónsdótt- ir, ekkja hans, Jóni Þorkels- syni, rektor, að senda bréf Magdalene til Gríms til henn- ar, svo að hún gæti gert við þau, það sem hún vildi. En hvort sem það var fyrir tilvilj- un eða ekki, þá urðu tvö bréf eftir í fórum Jakobínu og komu í ljós að henni látinni. Annað bréfið er dagsett í Bergen 22. desember 1851 og er svarbréf Magdalene við bréfi Gríms. Þar er þessi setning: „Það var seint, sem ég trúði yður fyrir þessu, og þér hafið ástæðu til að þykja það leitt (at klage herover)." Og hún heldur áfram, og taki menn vel eftir orðalaginu og efninu: „En það verður að vera svo, ég hef ekki þorað það fyrr, en kjarkur minn hefur vaxið með tímanum og traust mitt til yðar um leið. Þér hafið aldrei elskað mig, þann stutta tíma, sem kynni okkar stóðu, var ástin aðeins mín megin. Það væri ranglega skilið, ef þér tækjuð þetta sem ásökun. Það er það ekki, en á því byggist ástæðan til ótta míns og óframfærni, ég gæti persónulega hafa skýrt yður frá málavöxtum, það hefur síð- an verið orsökin fyrir þögn minni, ég gat ekki látið mér detta í hug, að yður myndi þykja vænt um litla barnið, ég ímyndaði mér alltaf, að þér mynduð líta á það sem byrði, sem þjakaði yður. Það er fyrst nýlega, eins og ég hef sagt, sem ótti minn út af þessu hefur horfið, og ég því snúið mér til yðar í fullri hreinskilni." Þetta er alldjarflega sagt. En hvort er þetta fremur skýr- ing eða afsökun? Hvað átti hún á hættu, þó að hún hefði hrein skilnislega sagt Grími, sem hún kveðst hafa elskað svo heitt, frá þessu á sínum tíma? Eftir átta ár eða nær níu reyn- ir hún, að því er mér finnst á illskilj anlegan hátt að koma sökinni, að minnsta kosti að hluta yfir á Grím. Hvernig gat hún vitað fyrir víst um við- brögð hans án þess að reyna hann? Og það eru stór orð að segjast fyrirfram hafa verið viss um tilfinningar hans gagn- vart eigin barni, — hvernig svo sem afstaða hans gagnvart henni sjálfri hefði verið eða orðið. Seinni tíma ævisöguritarar Magdalene Thoresen hafa geng ið út frá því sem gefnu, að Grímur ætti bamið, og hún hafi setið eftir með söknuðinn og þrána. Þannig flyzt það síð- an yfir í ævisögu Gríms. Glöggt dæmi um þetta eru „skýring- ar“, sem fylgja ævisögu Gríms eftir Jón Þorkelsson, sem birt- ist framan við Ljóðmæli Gríms Thomsens, útgefnum 1934. Þar segir til skýringar, að hér muni vera átt við dönsku skáldkon- una Magdalene Thoresen, en með þeim hafi tekizt góð kynni. Segir svo orðrétt, að Magdal- ene „fæddi Grími son 16. júní 1843. Þá þegar upp úr því fór hún til Noregs og gekk þar sama haust að eiga Thoresen, prófast. . . og varð honum og Magdalene ekki barna auðið. Tókst góður kunningsskapur með honum og Grími, sem hélzt, þar til Thoresen andaðist 1858. Munu þau Grímur og Magdal- ene hafa staðið í stöðugum bréfa skiptum og jafnvel hitzt á stundum, að minnsta kosti, með an Grímur var í Höfn.“ Slíkar lauslegar skýringar eru verri en engar. Eins og að framan er óyggjandi sýnt fram á, skrapp Magdalene til Kaup- mannahafnar frá Noregi til að eiga þar barn sitt &Vz mánuði eftir að hún fór frá Höfn. Og hvarf síðan aftur til Noregs. Auk þess var hjónaband þeirra Thoresens ekki barnlausara en það, að þau eignuðust fjögur börn: Söi-u, fædd 1844, Thom- as, f. 1846, Dorotheu, f. 1849 og Axel, f. 1851. Sem sagt, þau eignast barn um það bil annað hvert ár og hið síðasta, Axel, sama ár og Grímur Thomsen „eignast“ Axel Peter Jensen. (Framhald í næsta blaði). — Björn Þórleifsson FYRIR GAFL Fyrir ofan garfi fara orð prestsins í kirkjunni viltu leitast við ég trúi á guð hvað kallinn er lengi fyrir neðan garð óma sálmar tárvotar mömmur bíður veizlan heima af fremsta megni og pabbar með tóm veski útgöngusálmur gjafirnar maður guði sé lof og dýrð ný föt gestir í fullorðinna tölu gerðu svo vel góði gróði gróði ■ ■ ■ Í7. maí 1970 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 9

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.