Lesbók Morgunblaðsins - 06.09.1970, Page 10
Stóri-Hamar. Bærinn til hægri hlaut verðlauna grip Búnaöarsambandsins fyrir snyrtilega um-
gengni í fvrra, en Stóri-Hamar II, sem er vinstra megin á myndinni, fékk hann í ár. í næsta blaði
verða birtar fleiri myndir frá þessum framúrsk arandi fallega bæ. Handan árinnar er frægur
bær að fornu og nýju: Grund í Eyjafirði.
Snyrtimennska sem af ber
Þverá. Þar er tvibýli og íbúðarhúsin sambyggð. Bæði þau og öll gripahús og hlöður eru vel
máluð, veggir hvítir eða kannski fremur Ijósgráir, en þökin rauðmáluð. Á Þverá búa Arni Jó-
hannsson, hreppstjóri og Jón sonur hans félagsbúi á öðrum bænum en Itósa Jónsdóttir er talin
fyrir búin á hinum bænum.
Rifkeísstaðir. Myndin er tekin af klettahæð, sem verður við bæinn. íbúðarhúsið stendur nokkuð
sér, veggir málaðir í tveim litum, gulum og brúnum, en þakið raut*~ Mjög snyrtilegt er allt í
kring um bæinn. Á Rifkelsstöðum er tvíbýli og þar búa Jónas Iialldórsson og Hörður Garðarsson.
Karl Bjarnhof: K0lvands-
striber. Gyldendal.
K0benhavn 1968.
K0lvandsstriber eru þœttir
úr ævi Karls Bjarnhof. Bók-
in er þó ekki beint framhald
af fyrri endurminningabókum
hans, „Stjernene blegner“ og
„Det gode Lys“, sem íslenzk-
um lesendum eru kunnar. 1
Kþlvandsstriber lýsir Bjarn-
hof þroskajerli ungs lista-
manns, frá því hann byrjar
að hafa ofan af fyrir sér sem
organleikari í strjálbýlinu.
Síðan liggur leiðin til Kaup-
mannahafnar og Parísar og
mörgu frægu fólki kynnist
ungi listamaðurinn á þessum
árum. Bókinni lýkur í þann
mund er höfundur sendir frá
sér fyrstu bókina, þrjátíu og
fjögurra ára að aldri.
Bjarnhof einskorðar sig þó
ekki við það tímabil, sem hér
hefur verið tilgreint. Oftsinn
is ber það við, að hann fylgir
tilgreindum persónum lengra
í tímanum og lýsir mismun-
andi kynnum sínum af fólki
fyrr og síðar. Dregur hann
upp lifandi myndir af ýmsu
þekktu lista- og menntafólki
í Danmörku, en einnig ber
fyrir myndir af ónafngreind-
um samferðamönnum, sem
fyrir tiltekin atvik eða at-
hafnir hafa orðið sérstaklega
eftirminnilegir.
Kþlvandsstriber er tæpar
200 bls. að stærð. Byrjar
Bjarnhof að rekja endurminn
ingar sínar, er hann yfirgef-
ur blindraheimilið árið 1916
og bókinni lýkur á minning-
um um Knut Hamsun síðla
árs 1949.
Vladimir Nabokov:
Min europæiske ungdom.
Gyldendal. Kpbenhavn
1969.
Min europœiske ungdom er
áttunda bók Vladimirs Nabo-
kovs sem kemur út í Dan-
mörku. Eins og nafniö ber
með sér, er bókin sjálfsævi-
saga, sem lýsir æviskeiði höf-
undarins í Evrópu. Hefst lýs-
ingin fyrir u.þ.b. sjötíu árum
í Rússlandi, þar sem Vladimir
Nabokov naut bernskuáranna
í þeirri tryggu v'eröld, sem
aðallinn í Pétursborg gat bú-
ið afkomendum sínum á Zar-
Bækur
Organ-
leikarinn,
konan
og firring
/
í
kommúnista-
ríkjunum
Karl Bjarnhof.
Adam Schaff.
10 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
6. aept. H970