Lesbók Morgunblaðsins - 07.12.1975, Side 8
Myndirnar tók Olafur K. Magnússon ö útifundi kvenna
24. oktöber
Þessi bjarti og fagri haustdagur verður
áreiðanlega I minnum hafður. Það sem
mesta athygli vakti var samstaðan sem
náðist, enda vakti hún mikla athygli viða
erlendis og var þvi slegið föstu, að erfitt
eða ómögulegt yrði að ná slíkri samstöðu
þar. Hvort dagurinn, friið og ræðurnar
hafa einhverju áorkað i jafnréttisátt, á svo
eftir að koma i Ijós. Áhugafólk um jafn-
réttismál er þó sammála um, að það sem
fram fór 24. október hafi án efa verið
gagnlegt fyrir máistaðinn. Hér eru ýmsar
svipmyndir af fólki, sem tók þátt i útifund-
inum og myndin i miðju til hægri ætti að
gefa dágóða hugmynd um mannfjöldann,
sem þarna kom saman.