Lesbók Morgunblaðsins - 14.11.1976, Blaðsíða 4

Lesbók Morgunblaðsins - 14.11.1976, Blaðsíða 4
RUDOLF VALEN TINO Elskhuginn mikli frö tímum þöglu myndanna var sjölfur heldur öheppinn i östa- mölum - og lézt fyrir aldur fram HHp ■I í'ál' Á teikningunni a8 ofan: Rudoff Valentino me8 Vilmu Banky I „Sonur sjeiksins" og til hœgri á teikningunni: I kvikmyndinni Hinn ungi Rajah". Hér a8 of- an: Rudolf Valentino og Nita Naldi I kvikmyndinni „BlóB og sandur". Fcrill Rudolphs Valcntino sem kvikmyndastjörnu stóó aðeins f sjö ár, en þó hefur það aðdráttar- afl, sem hann bjó yfir ttattnvarl konum um heim allan, lifað hann eftir dauðann, sem sótti hann fyr- ir aldur fram 1926, 31 árs j»amlan. Það er hluti af ráðgátunni Valentino, að dýrkun hans festi rætur á þeim tíma, sem þvf fór fjarri, að konur hneigðust til þess að lúta valdi nokkurs manns. Fyrstu árin eftir fyrra stríð og nær allur þriðji áratugurinn var tfmabil, sem konur sýndu það greinilega, að þær kröfðust réttar sfns til þess ð njóta lffsins að eigin vild. Það var ekki beint al- menn kvenréttindabarátta, held- ur vildu þær meira gaman, lifa frjálsara og f jörlegra Iffi. Að vera numinn á brott á slfkum tfma, liggjandi upp f loft þversum á hnakki arabfsks fursta eða dansa eggjandi tango við argentfnskan fjárhirði nauðug viljug eða f stuttu máli að vera til einungis til að vera tekin af manni, sem væri fullkomlega öruggur um rétt sinn og vald yfir konunni — það var eitthvað öfugsnúið við að halda þannig hátfðlegt frelsi og sjálf- stæði konunnar. Það eru torskildir hlutir eins og þessi, sem valda þvf, að menn velta stöðugt vöngum yfir fyrir- bærinu Valentino og þá um leið er mönnum forvitni á að vita, hvernig hans eigin kynlffi hafi verið háttað. Hann var hinn „Mikli elskugi“, látum svo vera, en hafði hann getuna til þess Ifka? Þar sem hvorugt hjóna- banda hans var fullkomnað, leik- ur grunur á, að svo hafi ekki verið. Og þar sem hann hafði alla ævi tilhneigingu til að laða til sfn konur, sem voru viljastcrkari en hann og sem höfðu óbeit á kyn- Iffi, þó að þær ynnu f kvikmynda- verunum með fólki, sem hafði orð á sér fyrir hálfgert kynæði, hefur verið látið að því liggja, að hann hafi verið kynviiltur. Það fcr þó ekki á milli mála, að fyrstu kynni hins unga Rudolphs af kvenfólki voru síður en svo uppörvandi. Þau hafði hann á dansgólfum New York borgar, en þangað kom hann sem innflytj- andi, ftalskur 18 ára piltur, f árs- lok 1913. Hann hafði tekið að sér ýmis störf og þar á meðal að vera „taxi-dancer“, ráðinn dansherra, sem varð að dansa við viðskipta- vinina f kvenkyni, hina „nýju amerfsku konu“, fyrir borgun og drykkjupcninga, og þá voru tango og maxixe f tfzku. Hann fékk snemma þjálfun f að umgangast konur herralega á al- mannafæri, en það mun hafa veitt honum sáralitla ánægju. Tengslin milli peninga og kyns hafa verið óþægileg f huga ungs manns, sem var stoltur af þjóðerni sfnu og var sér þess meðvitandi, að þau voru niðurlægjandi fyrir þann, sem átti að lcika Casanova, og þetta mun hafa jafnan setfð f Valentino. Itölsk persóna á kvik- myndat jaldinu var sama og miskunnarlaus þorpari, sem tældi konur og skildi þær eftir f óbætanlegri niðurlægingu. Hann reyndi að forðast slfk hlutverk. þegar honum buðust smáhlutverk við komu sfna til Hollywood 1917, en þá vann hann fyrir sér sem danssýningamaður á næturklúbb- um. Hann hafði getið sér nokkurt orð sem slfkur í New York, en þar hafði hann flækzt inn f leiðinda- mál. Hann var handtekinn og sat i gæzluvarðhaldi, meðan aflað var upplýsinga um „laglegan ná- unga“, sem byggi f fbúð með mönnum, sem væru ákærðir fyrir fjárkúgun. Valentino þótti skrautlega búinn, þegar hann var handtekinn, hann var með armbandsúr og fburðarmikið belti, en á þeim tfma þótti maður með armbandsúr jafnvel enn teprulegri en sá, sem væri f Iffs- stykki. En Valentino var aldrei kærður fyrir neitt, þó að honum fyndist hyggilegt að hverfa úr borginni fremur en að eiga á hættu að vera gerður útlægur. Og það var þess vegna, sem hann fór til Hollywood. Það er skýring að hluta á leynd- ardómnum um frama og vinsæld- ir Valentinos á tjaldinu, að hon- um tókst að breyta þeirri mynd, sem þá var viðtekin af „róm- verska elskhuganum" („Latin Lover“). Hann lék hann á fágaðri hátt, og hinn granni vöxtur og lipru hreyfingar atvinnudansar- ans höfðu seiðandi áhrif. Hann var alls ekki neinn ólifnaðarsegg- ur eða slæpingi. Yfirbragð hans og útlit allt var aðlaðandi og vakti þegar f stað eftirtekt. Það var eins og það væri honum uppbót fyrir að þurfa að leika endalaust hálf- vitlausa hjartaknúsara og skemmtistaða snfkjudýr. Þegar Valentino leiðir stúlku inn f einkaherbergi sitt f kvikmynd, er eins og hann ætli þar að dansa við hana en ekki tæla. Þetta var nýj- ung á tjaldinu á þeim tfma. 1 kvikmynd, sem hét „Eyes of Youth“, 1919, lék hann hlutverk, sem hann hafði ógeð á, atvinnu- flagara, sem er að fleka konu á gistihúsi uppi f sveit. En þegar kemur að hinu viðsjála atriði, eru hreyfingar Valentinos svo þokka- fullar og innilegar, að þær voru allsendis ólfkar framkomu allra annarra amerfskra leikara á þeim tima. Það er virðing og háttvísi f ótuktarskapnum. Kyntöfrar hans slá Ijóma á þann verknað, sem hann er leigður til. Valentino kom aðeins fram f hluta kvikmyndarinnar, en það var nóg til að afla honum þess hlutverks, sem gerði hann frægan samstundis — hlutverk glaum- gosans Julios í myndinni „The four horsemen of the Apocalypse**. Koma Valentinos inn f myndina er fágætlega áhrifamikil. Nokkra stund er sviðið autt, en svo birtist hann allt f einu f gervi argentfnsks kúreka, hann er með smávindil milli sterkra tannanna og blæs reyknum kröftuglega gegnum nefið eins og stóðhestur á frost- köldum morgni. Hann ákveður að skilja sundur par á dansgólfinu, hann gengur í hægðum sfnum með hendur að mjöðmum, klapp- ar laust, en undirfurðulega á öxl mannsins, Iftur á stúlkuna ótvf- ©

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.