Lesbók Morgunblaðsins - 14.11.1976, Síða 11
lætursig varða einstaklinginn. að varnir
ónæmiskerfisins fara að gefa sig löngu áður en
þeim aldri er náð, er tlðalok verða. Þar sem
L-dópa getur lengt æfiskeið músa, virðist það
seinka hrörnun ónæmiskerfisins. Enn er þó
margt á huldu um það hvort L-dópa getur
endurvakið eigin varnir líkamans i ellinni.
Ónæmiskerfið, annað meginrannsóknarefni
þeirra er fást við rannsóknir á ellihrörnun, er
einkum bundið eitlafrumunum (lymphcytes)
sem myndast af stofnfrumum I beinmerg.
Nokkrar stofnfrumur flytjast I hóstakirtilinn,
sem er undir bringubeininu og verða þar að
T-frumum. Frá hóstakirtlinum fara T-frumur út
I blóðrásina og eitlana. Þær eru varnarliðið,
sem ræðst gegn krabbameinsfrumum jafnt sem
veirum, sýklum og öðrum innrásaraðilum.
Nokkrar aðrar stofnfrumur úr beinmergnum
fara beint út (eitlakerfið sem B-frumur eða
B-eitlafrumur. Þær mynda mótefni, sem bind-
ast aðskotahlutum og gera þá óvirka. B-
frumurnar verða ekki virkar nema þær verði
fyrir einhverri örvun frá T-frumunum, en ekki
er vitað hvernig það verður. Stórar átfrumur
(macrophages) fjarlægja slðan úrgangsefni frá
varnarorrustunum, eins og hverjir aðrir sorp-
hreinsunarmenn.
Minnkandi hóstarkirtill.
Margt bendir til þess að hóstakirtillinn gegni
mikilvægu hlutverki I minnkandi ónæmisvörn-
um Kkamans. Fyrir nokkrum árum vissu menn
jafnvel ekki hverju hlutverki hóstakirtillinn
gegndi (líkamanum. Hann fer að minnka
snemma á æfinni og lengi var talið að hann
væri á einhvern hátt tengdur kynþroska. Ein-
hver tengsl virðast vera milli undirstúkunnar,
heiladingulsins og hóstarkirtilsins. Hvernig
sem þv( er háttað, virðist T-frumum fækka eftir
þvi sem hóstarkirtillinn minnkar. Afleiðing þess
er sú að eldra fólk er berskjaldaðra fyrir fjölda
sjúkdóma, allt frá krabbameini til sykursýki.
Sumir vlsindamenn eru jafnvel farnir að halda,
að hjartasjúkdómar stafi á einhvern hátt af
minnkandi vörnum ónæmiskerfisins.
Rangsnúin áhrif ónæmiskerfisins, sem kalla
mætti „sjálfsónæmi" (autoimmune response)
koma fram þegar ellin tekur að sækja á menn.
Þá ráðast eitlafrumur á eigin frumur Kkamans
eins og þær væru aðskotahlutir og valda sjúk-
dómum eins og liðagigt, einni tegund blóðleys-
is og tilteknum nýrnarsjúkdómum.
Á fjórða áratugnum rakst Kffræðingur við
Cornellháskóla, Clive McCay, á aðferð til að
lengja áhrif ónæmiskerfisins. þó að sú aðferð
nái vart almennri hylli. Hann fóðraði rotturá
mjög fitu- og kolvetnasnauðu fóðri. Rotturnar
þroskuðust seint, hrörnunarsjúkdómum ell-
innar var frestað og sum dýranna lifðu helmingi
lengur en þeim var annars eðlilegt. Það er þá
kannski ekki svo furðulegt, að (samfélögum
þar sem menn ná háum aldri, eins og i
Kákasus, Ecuador og vlðar, virðist fólk lifa á
fæði, sem gefur stundum litlu meira en
helming þeirra 2600 hitaeininga, sem taldar
eru æskilegar fyrir fullorðinn karlmann I starfi.
McCay rannsakaði ekki sérstaklega ónæmis-
kerfið I rottunum slnum, enda hefði hann ekki
orðið margs vlsari við það I þá daga. Framfarir á
sviði ónæmisrannsókna eru svo nýjar, að á
sjötta áratugnum voru eitlafrumunum eignaðar
allar ónæmisvarnir án nánari skilgreiningar.
Það var ekki fyrr en á sjöunda áratugnum að
farið var að greina eitlafrumur I tvo flokka eftir
áhrifum þeirra.
Ónæmisfræðingar, sem hafa á seinni árum
beint athygli sinni að hrörnunarsjúkdómum
ellinnar, hafa ekki aðeins beitt nýrri og betri
tækni til að rannsaka minnkandi varnir
ónæmiskerfisins, heldur hafa þeireinnig reynt
að vinna gegn breytingunni með betri og væn-
legri aðferðum en að svelta rottur. Menn eru
jafnvel farnir að tala um að stjóma ónæmis-
vörnum Kkamans.
Markmlðið er ekki að fjölga karlægu fðlki,
heldur að fjölga til muna árunum og jafnveg
áratugunum, sem maðurinn er I fullu fjöri.
Onæmi flutt milli
einstaklinga.
Á slðastliðnu ári náðist merkur áfangi.
Takashi Makinodan og samstarfsmönnum hans
tókst að flytja hóstakirtil og beinmerg úr ung-
um músum I gamlar mýs. Þeir notuðu
náskyldar mýs og þv( hafnaði llkami músanna
(græðslunni ekki. Mýsnar fengu nú báða þætti
ónæmiskerfisins endurnýjaða og virtust fara að
mynda mótefni að nýju. Nltján mánaða gamlar
mýs fengu ónæmiskerfi úr fjögurra mánaða
gömlum músum. Miðað við venjulegt æfiskeið
manna væri þetta sambærilegt við að flytja
ónæmiskerfi úr tvltugum manni I sextugan.
Við þessar tilraunir bættist það, að faraldur,
sem Sendai veira veldur I músum og svarar til
inflúensu I mönnum, braust út meðal 9000
músa I Baltimorestofnuninni. Margaraf mús-
um Makinodans, sem höfðu fengið nýtt
ónæmiskerfi, héldu lifi þó að fjöldi annarra
músa dræpust. Nokkrar þeirra lifa enn og eru
þó orðnar þriðjungi eldri en nemur venjulegu
æfiskeiði músa. þessi góði árangur hefir vakið
miklar vonir meðal vlsindamannanna við
Baltimorestofnunina. „Við getum seinkað
klukkunni," sagði Marguerite M.B. Kay, ungur
ónæmisfræðingur, sem starfar með
Makinodan. „Viðgetum látið mýs lifa lengur
en þær hafa gert."
Velheppnaður flutningur á beinmerg I börn,
sem hafa hlotið hvltblæði og aðra blóðsjúk-
dóma I arf, bendir til þess að nota megi sömu
aðferð við gamalt fólk. Nú vinna að minnsta
kosti 10 starfshópar lækna að þvl að flytja
beinmerg milli manna (beinmergsfrumum er
sprautað inn I blóðrásina) og sumir sjúkling-
anna lifa enn, sex árum eftir sllka aðgerð.
Makinodan hefir lika tekið eitlafrumur úr
ungum músum, geymt þær frystar og sprautað
þeim slðar aftur inn I sama dýr eftir að það hefir
náð háum aldri eða orðið 25 mánaða gamalt.
Hann telur að einhverntlma komi að þvl, að
yngja megi gamalt fólk méð þv( að sprauta I
það eigin eitlafrumum. sem voru teknar úr þvl á
táningsaldri.
Leitin að
dauðahormóninu
En sá möguleiki er enn fyrir hendi, að náttúr-
an sé ekki aðeins áhugalaus um langllfi ein-
staklingsins eftir að hann hefir komið afkvæm-
um á legg, eins og dvlnandi varnamáttur
ónæmiskerfisins virðist benda til, heldur gæti
hún beinllnis verið andvlg langllfi eftir það.
Þekkt eru athyglisverð dæmi um það úr náttúr-
unni, að dauði einstaklingsins sé fyrirfram
ákveðinn og verði fyrir áhrif hormóna. Til
dæmis deyr karldýr tiltekinnar ástralskrar
músategundar strax eftir mökun. Dýrið deyr
vegna mjög aukinnar myndunar heiladinguls-
hormóns (ACTH-húfubarkarvaka). Á sama hátt
„Við erum hérna
frá sjónvarpinu,
Guðmundur, í til-
efni af 130 ára af-
mælinu þfnu.
Hverju þakkarðu
nú helzt, að þú hef-
ur náð þessum háa
aldri?“