Lesbók Morgunblaðsins - 29.05.1977, Page 8

Lesbók Morgunblaðsins - 29.05.1977, Page 8
Gísli Sigurðsson EFTIR MYNDLISTAR VERTÍÐ- INA Nýraunsæi; a8 sjá hlutina frá nýjum sjónarhornum. Ein mynda Hrings Jóhannessonar frá sýningu hans aS KjarvalsstöSum Eitt málverka Hauks Dórs á sýningu hans að Kjarvalsstöð- um I vetur. Hann hafði oliumyndir sfnar undir gleri og þessvegna speglast fáránlegt Ijósaverk hússins F myndinni. GóSur sýningarstaSur verSa KjarvalsstaSir ekki fyrr en búi8 er a8 rffa þetta fjarstæSukennda mannvirki ni8ur og setja þarbetri lýsingu. ! !■ $ Í-& ^ 18 ''Wmm Áhrif frá popplist og ný- raunsæi: Ein mynda GuSrúnar Svövu Svav- arsdóttur. Myndlistarsýningar hafa í megin- dráttum verið bundnar við tvær árs- tíðir; annarsvegar haustið frá septem- berbyrjun fram i desember og síðan frá miðjum febrúar og frameftir vor- inu. Það hefur verið nokkuð sam- dóma álit, að þýðingarlítið sé að efna til myndlistarsýninga um jólaleytið og eins að sumrinu, þegar fólk er út og suður. Hitt er svo annað mál, að þessar sýningarvertíðir hafa einlægt verið að lengjast í báða enda áf þeirri einföldu ástæðu að sýningum hefur fjölgað svo mjög. Það verður einnig að telja til nýmæla, að listamenn úr höfuðstaðnum eru farnir að efna til einskonar aukasýninga í kaupstöðum úti á landi og eru páskar að því er virðist eftirlætistíminn. Um síðustu páska mátti heyra af auglýsingum, að sunnanmenn höfðu hengt upp á ísa- firði, Hvammstanga og Akureyri. Það orð fór af Akureyri fyrir fáeinum ár- um, að þar þýddi ekki að sýna annað en aðgengilegar landslagsmyndir. Nú starfar hinsvegar sýningarstaðurinn Háhóll með glæsibrag og málarar eru farnir að líta Akureyri hýru auga. En víða er að þessu leyti ónumið land; fólk nýtur þess ekki sem menn hafa fram að færa, vegna þess að það hefur lítið leitt hugann að nútíma myndlist, hvað þá að það hafi fylgst með sýningum. í því sambandi kem- ur mér í hug húnverskur bóndi, sem slæddist inn á sýningu á Hvamms- tanga um páskana, þar sem þeir hengdu upp myndir Weissauer hinn þýzki og Jónas stýrimaður. Bóndi virti gaumgæfilega fyrir sér myndirnar og mælti: „Ég hef nú séð eina og eina Ijóta mynd áður, en aldrei svona margar saman". Kjarvalsstaðir og Norræna húsið éru þeir sýningarstaðir í Reykjavík sem skipta máli. Eftir því sem ég bezt veit eru þar gerðar kröfur um getu, en vera má að erfitt sé að framfylgja þeim kröfum til hins ýtrasta í landi kunningsskaparins. Bæði þessi hús eru ásetin og upppöntuð langt fram í tímann. í Bogasalnum hefur á stund- um verið slegið um of af listrænum kröfum og er naumast jafn hátt ris á honum og áður var. En þar að auki eru smærri sýningarstaðir svo sem Gallery SÚM, Sólon íslandus í Aðal- stræti, salurinn í arkitektahúsinu við Grensásveg, og Loftið við Skóla- vörðustíg. Bæði þarf þó nokkurn tíma og gífurlegan áhuga til að fylgjast með öllu því, sem upp er hengt á þessum stöðum og fleirum, sem gripið er til þegar allt um þrýtur. Ég ætla að fæstir geri það; jafnvel ekki þeir sem eru þó allir af vilja gerðir að fylgjast sem bezt með þróun myndlistarinnar og framgangi einstakra listamanna Hættan er sú, að hér komi upp eins- konar ofneyzla, sem skapar leiða og þreytu. Ég þykist hafa orðið var við þennan leiða; hann er eðlilegur og kemur upp hvar sem of mikið verður af einhverju, hvort sem það er list, matur — eða dagblöð til dæmis. Það er dálítið þversagnarkennt, en blöðin, sem hafa þá skyldu að fræða almenning um það sem gerist, eiga sinn þátt i þessari listþreytu. Þau gera þessu öllu jafn hátt undir höfði; at- hyglisverð sýning að Kjarvalsstöðum fær naumast meiri fréttaumfjöllun en

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.