Lesbók Morgunblaðsins - 17.02.1979, Page 9
stig á daginn, en niöur í 10—15 stig á
nóttunni.
Yfirleitt reyna erlendar konur og börn
að yfirgefa Ahwaz yfir sumarmánuöina í
júní, júlí og ágúst, en þá er frí í skólum.
Eiginmenn reyna einnig aö taka sín frí á
þessum tíma. Þaö er mjög erfitt aö lifa í
þessum hita; álagiö á líkamann er mjög
mikiö og heilsunnar veröur aö gæta vel.
Auðvelt er aö kvefast þegar maður
kemur kófsveittur úr hitanum inn í kæld
hús, og er þá mjög hætt við lungna-
bólgu, — einnig er algengt aö menn fái
sólsting. Börnunum líöur verst og finna
þau meira en fullorönir fyrir því aö vera
lokuð inni í húsi mánuöum saman, —
því ekki er hægt aö leika sér úti í
forsælunni; jafnvel þar er 50 stiga hiti.
Þeir, sem eru búnir aö vera á víö og
dreif um heiminn viö framkvæmdir á
vegum stórfyrirtækja segja að Ahwaz
mannmörg, og þá innan veggja
heimilisins. Ef fariö er út, eru þaö
aðeins karlmennirnir, oft í hópum, en
konur sitja heima. Útlendingarnir reyna
því aö halda saman; mikiö er um
heimboð þeirra á meöal, einnig hafa
verið stofnaðir klúbbar og þaö eru
einkum konurnar sem framtakssamar
hafa reynst á því sviði, því þær hafa
meiri tíma.
Fyrst í staö fannst mér mjög erfitt aö
vera þarna. Ég var í nokkurskonar
stofufangelsi, þangað til aöstæöur fóru
aö venjast og kunningjahópurinn aö
stækka. Erfiöast af öllu var þó aö finna,
hvaö kona er hjálparvana í þessu
þjóöfélagi. Þarna er algjört karlmanna-
samfélag og kemur þaö fram á öllum
sviöum. Ekki þykir ráölegt, aö konur
útlendinga séu mikiö á ferli og helst
ekki einar. Ég var því háö því aö fá
ökumann eiginmannsins, ef ég þurfti aö
fara eitthvaö. Ekki er taliö ráðlegt, aö
útlendingar aki sjálfir. í fyrsta lagi er
umferöin ægileg og ef einhverjar reglur
eru til, þá fer aö minnsta kosti enginn
eftir þeim. Séu þrjár samhliöa
akgreinar, eru þar venjulega sex raöir
af bílum og mikiö um árekstra eins og
nærri má geta.
Sjálfsagt þykir að hafa bílstjóra; þaö
getur til dæmis komiö sér vel ef
umferðaróhapp veröur og ekki aö vita,
hvort útlendingur nær þá rétti sínum, né
yfirhöfuð hvaöa afleiðingar þaö gæti
haft fyrir hann. Menn ná rétti sínum og
reka erindi meö borgun. Viö köllum þaö
mútur, en þeir líta þesskonar greiöslur
öörum augum, og er þetta fastur liöur í
þeirra viöskiptakerfi. Þó vita þeir hvaöa
álit útlendingar hafa á þessu og ekki er
víst aö írani taki vö greiðslu undir
boröiö af útlendingi; allt slíkt viröist
þurfa aö ganga á milli þeirra sjálfra.
Þarna ríkir sem sagt önnur siöfræöi en
viö erum vön.
í Ahwaz er starfandi stór kvenna-
klúbbur: International Womens Club. Á
hans vegum eru haldin ýmis námskeiö,
matarnámskeið, föndurnámskeiö, leik-
fimi og fieira, og fer starfsemin fram
fyrir hádegi. Þessi félagsskapur er alveg
nauösynlegur því annars fara konur
ekki út fyrir húsagarðinn hjá sér. Ég fór
þó ekki þá leiðina aö leita mér
afþreyingar í þessum alþjóðlega
kvennaklúbbi. Meiri áhuga hafði ég á aö
notfæra mér þaö, sem ég haföi lært, —
en meö tilliti til stööu konunnar í íran er
þaö allt annaö en auövelt. Ég fékk þó
stööu viö háskólann í Ahwaz, eins og ég
sagöi áöur, en vert er aö taka fram, aö í
þessu dæmigeröa karlmannaþjóðfélagi,
Til vinstri: Kofínn á miöri mynd — ef hægt er aö kalla Þennan rusiabing bví nafni, hefur Þann tilgang aö hýsa „varömann", sem tekur að sér fyrir borgun aö gæta nærstandandi
húsa fyrir innbrotspjófum.
Til hægri: Landiö er hvorki fagurt né frítt, en aö verulegu leyti gulbrún eyðimörk meö frumstæöum smáporpum líkt og sést á myndinni. Vatn verður að sækja á ösnum langar ieiðir.
sé meö erfiðari stööum, sem þeir hafi
dvaliö á. Einn ítalinn, kunningi okkar,
kallaöi staðinn Inferno — víti. Ekki
skapaðist það nafn eingöngu vegna
hitans heldur og vegna almennra
aöstæöna: erfiöleika í framkvæmdum
og fábreytilegs lífs eftir vinnu. Allflestir
Vesturlandabúar þarna eru í ábyrgðar-
stööum og vinna mjög mikið. Vinnu-
vikan er 6 dagar og unniö fram á kvöld.
Mikla þolinmæöi þarf við framkvæmdir
því ekkert gengur; allt viröist taka
margfalt meiri tíma þarna en gengur og
gerist í Evrópu til dæmis. Þarna er svo
til ekkert menningarlíf á okkar mæli-
kvaröa. Leikhús er ekki til, kvikmynda-
hús er aö vísu á staönum en aöeins sótt
af írönskum karlmönnum og sýndar
djarfar myndir, — segja þeir sjálfir, aö
þetta sé eini staöurinn, þar sem þeir
geti öðlast kynferðislega fræöslu fyrir
hjónabandiö. Bókasöfn eru til, en mjög
fátæk af vestrænum bókmenntum. í
Ahwaz var nýtekið til starfa eitt
diskótek en þaö var svo brennt í sumar,
þegar andstaöa gegn stjórninni fór
vaxandi. Einnig voru þrjú eöa fjögur
veitingahús meö evrópsku sniöi en þau
voru einnig brennd vegna vínveitinga. í
Teheran er þetta ekki eins slæmt, —
Teheran er höfuðborg og heimsborg,
þótt að vísu beri hún sín írönsku
séreinkenni.
Skemmtanir írana yfirleitt viröast fara
fram í fjölskyldunni, sem oftast er
Guömundur Karl Pétursson rafmagnsverkfræöingur og Þóröur, sonur
Guömundar og Rögnu, eru Þarna aö heilsa uppá einn „innfæddan“, sem
stundum hefur veriö nefndur Skip eyöimerkurinnar.
sem íran er, er kennsla eitt af fáu, sem
kona getur unniö viö og haldiö viröingu
sinni.
Þrátt fyrir tilslakanir í frjálsræðisátt
uppá síökastiö, ber margt fyrir augu og
eyru, sem heyrir til einræöi. Ritskoöun
viröist vera á aösendum bréfum til
landsins og þau bréf, sem skrifuö eru á
sjaldgæfum tungumálum eins og ís-
lenzku, komast oft alls ekki til skila.
Einnig er síminn hleraöur og slitnar
jafnvel sambandiö, ef talað er um „viss“
mál, einnig komast telexskeyti sem
skýra frá ástandinu oft ekki eöa þá
brengluð á áfangastaö. íslendingar
þurfa einir Noröurlandaþjóöa vega-
bréfsáritun til aö komast inn í landið —
og eins til að komast út úr því aftur og
þá þarf aö leggja fram skattavottorö ef
viökomandi hefur starfaö í landinu.“
Þetta vissu Þau ekki um, Ragna og
Guömundur, Þegar Þau ætluðu heim
til íslands síöastliöiö sumar. Viö
síöustu passaskoðun var Þeim snúiö
viö og Þaö taföi pau um Þrjá daga. Séu
verkföll hjá Þeim embættismönnum,
sem gefa úr áðurnefnd vottorö, er
maður Þar með strandaöur, — og
Sjá nœstu I
síðu /Cd