Lesbók Morgunblaðsins - 17.02.1979, Side 11
Um fyrirmyndanir.
Eftir sér Kolbein Þorleifsson
FUGLINN FENIX
Á Þjóöminjasafni íslands er geymt
höfuölín frá Snóksdal. Á þessu höfuðlíni
eru tvær myndir ásaumaöar, sem eru
endurteknar 4 sinnum. Fyrri myndin er aö
gerö eins og blómkróna með fræflum í
miöju. Blómkrónan er í mynd rauðra fugla
meö kórónu á höföi, en í staö fræfla og
fræfu er eldur, sem brennir fuglinn.
Næsta mynd er aö hálfu upphleypt.
Upphleypti helmingurinn er fluga, en bak
við hana sést í vígalegan örn. Myndir
þessar lýsa báöar sömu sögunni: Dauöa
og upprisu fuglsins Fenix (Fönix). Þessi
saga haföi miklu hlutverki aö gegna í
andlegu líkingamáli miðalda, því aö hún
var notuö til útskýringar á dauöa og
upprisu Frelsarans.
Enn má leita til þeirrar þýsku reisuþók-
ar, sem herra Oddur í Skálholti þýddi fyrir
presta sína. Þar er aö finna lýsingu á
fuglinum Fenix, sem er mjög ítarleg.
Auövitaö er hún markleysa ein frá
náttúrufræöilegu sjónarmiði, en sem
líking er hún í fullu gildi. Saga þessi er
felld inn í kafla, sem nefndur er: „Reisur
drottningarinnar af Saba“.
„í Arabia finnst einnin sá fugl Phænix.
Hann hefur gylliniháls af gullgulu fiöri.
En á höfðinu hefur hann af dúfunni svo
sem eina kórónu. En um kroppinn hefur
hann purpuralit, og í peim rauöu fjöör-
um sjá menn einnig himinbláan lit. Hann
er svo stór sem einn örn. Hann lifir 540
ár. Þar eftir býr hann sér nýtt hreiöur af
alisháttuðum vellyktandi jurtum, og
sérdeilis af kanel. Og meö pví par er
mjög varmt, pá uppkveikjast þær þurru
vellyktandi greinar og jurtir af pví heita
sólskini. Og svo verður pessi fugl
Phænix uppbrenndur í sínu eigin
hreiöri. Þar eftir kemur strax af Þeirri
ösku einn nýr eða ungur Phænix, Því af
mergnum í beinunum veröur fyrst einn
lítill ormur, Þar eftir ein lítil blóðfluga,
og Þar eftir einn fugl alfiðraður.
Þetta er ein fígúra og fyrirmyndan upp
á vorn Herra Jesúm Christum, hvör að
er réttum himneskur Phænix, og hefur
einn gýlliniháls, því hann talar ekki
nema gylliniorð. Og á sínu höföi ber
hann eina kórónu, sína guðdómlegu
Majestat. Item: Svo sem einn Phænix
hefur purpuralit á sínum kroppi, svo
hefur einnin vor Herra Jesús Christus
eina purpurakápu borið, og hann var þar
með á sínum Heilaga líkama fullur af
blám og blóðugum undum og benjum.
Hann er og sá rétti blóðfugl og sem einn
ormur, hvör fyrir vorar syndir van-
megnaöist á krossins gálga Ps. 22. Item:
Sá lifandi Guðs sonur hefur vegna vorra
synda svo sem einn réttur himneskur
Phænix verið smelltur í ledi grimmdar-
reiði síns himneska föðurs, svo sem
hann klagar sjálfur þar yfir Ps. 22, aö
hans hjarta í hans lífi sé svo smellt eða
klökkt sem vax. En aö síðustu reis Guðs
sonur upp frá dauðum. Hér kemur fram
sá sundurknosaði ormur eða blóðfugl,
sem sakir vorra synda gekk í fordæming
dauðans, og reis upp aftur úr öskunni
meö forkláruöum líkama. Þetta er sá
rétti fugl, sem hefur yfirunnið syndina,
dauðann, djöfulinn og Helvíti. Og svo
sem sá nýi Phænix lifir 540 ár, hvaö að
er mjög langur tími, svo lifir Herrann
Christus enn langtum lengur, sem er um
alla eilífð.“
Þessa sögu er einnig aö finna í
Physiologus" frá því um 1200 í styttri ,4
gerö, og er hún þannig:
„Fenix m'arkar drottinn várn í eðli sínu
því, er hann brennir sig og lífgar. Svá
tók Jesus Christus sjálfráði písl á líkama
sinn og reis upp á þriðja degi, og fékk
öllum fullsælu. Því kemur fenix með ári,
þá er hann deyr sig og lífgar.“
Dæmi þetta af fuglunum Fenix sýnir,
hvernig hin andlega spektin gat haldið
lífinu í kynjasögum vegna hins andlega
táknmáls, sem bundiö var þessum sög-
um.
Á milli þessara tveggja dæma, veit ég
um þaö þriöja frá seinni hluta 14. aldar.
Þar er getið um eitt atriöi til viðbótar
þessari sögu. Þaö er ferö fuglsins Fenix til
Egyptalands:
„En Þá er sá enn fagri Fenix flýgur
upp úr Paradiso á Egyptaland og er þar
fimmtán vikur, þá safnast til hans
allskyns fuglar og syngja um hann á
hverja lund. Þá heyra menn pað, peir er
Þar eru, og fara til hans hvaöan æfa og
mæla svo: Kom heill Fenix hingað til
lands, Þú glóar allur sem gull rautt, allra
fugla ertu konungur.“
Þessi grein er tekin úr riti því, sem nefnt
hefur verið Alfræði ísiensk“. Af innihaldi
hennar sést, að fuglinn Fenix fer til
Egyptalands. Þetta hefur fræöimönnum
þótt benda til, aö saga þessi byggist á
sögunni um storkfuglinn. í Egyptalandi,
en musteri hans var í borginni On á
Egyptalandi, sem nefndist á grísku
Heliopolis („Sólarstaöur“) Þessi borg var í
Reisubók Biintings talinn aöseturstaöur
Jósefs Jakobssonar, sem var ein af
áhrifamestu fyrirmyndunum Drottins vors
Jesú Krists.
Þessi „Sólarstaður“ varö því aö eins-
konar fyrirmyndan Jerúsalemsborgar,
ellegar Guös kristni á jörðu. Og hér á
íslandi varö hann aö fyrirmyndan hinnar
íslensku kirkju. Hvernig mátti þaö veröa?
Jú, ísland átti sér skáld sem hét
Guðmundur Erlendsson og var prestur á
Felli í Sléttuhlíö, og í Grímsey. Hann var
upp á árunum 1595—1670. Hann vareinn
af fremstu kunnáttumönnum hinnar and-
legu sþektar á íslandi á 17. öld. Hann orti
meöal annars Dæmisögur Esóps í Ijóöum,
og var hluti þeirra gefinn út af Bókabúö
Æskunnar fyrir nokkrum árum í útgáfu
Gríms Helgasonar, núverandi forstööu-
manns handritadeildar Landsbókasafns.
Framhald á bls 14.
Sagan af fuglin-
um Fenix mynd-
skreytt í íslensku
handriti frá því
um 1200.
„Allegóría um
fulginn Fenix“.
Ein af seinustu
myndum
Rembrandts.
Sigrún Ástríöur
Eiríksdöttir
BÆN
Gefðu mér dropa af blóöi
og bing af beinum
færðu mér hjarta á fati
og fætur svo ég megi ganga
geföu mér kærleik í sekk
og sál í skjóðu
hafblá augu
og rósrauðar varir
færðu mér hendur og brjóst
svo ég geti faðmað og kysst
komdu með hafið
og hvíta skútu
svo ég geti siglt út í heiminn.
Snúi ég aftur
Þá færðu mér mold
sæng mína Þegar ég sofna.
FRIÐUR
Bak við rauða sólina
skein auga Þitt
og Þráði mig í fjöllunum
og hafinu
á íslandi
og ísland brosti.
Þögnin býr í sólinni
á islandi
í hafinu
í fuglasöng
í andardrætti lyngsins
og hjartað slær.
Landið mitt er lífið allt
fegurðin
og sögurnar
eilífðin
og slagæðin
sem aldrei verður skorin.
Á íslandi er auga mitt
og finnur Þitt
í fjarskanum
og kyrrðinni
í sólsetri
á íslandi.