Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 17.03.1979, Qupperneq 10

Lesbók Morgunblaðsins - 17.03.1979, Qupperneq 10
Tækifærin liggja ekki á förnum vegi iefur sungið hvar >g hvenær em hún hefur veriö leðin að syngja. Á undanförnum árum hefur þú sungiö likiö opinberlega. Hvar komst þú fyrst ram? „Það var á nemendatónleikum Söng- kóla Maríu Markan í Gamla Bíói 1964. )g síðan hef ég sungið hvar og hvenær em ég hef verið beðin að syngja. Ég ief verið einsöngvari á tónleikum meö órum, viö kirkjulegar athafnir, á fé- igsfundum, árshátíöum og þjóðhátíö- m svo aö nokkuð sé nefnt. Einnig hef g sungiö inn á tvær hljómplötur með arlakórnum Þröstum“, segir Inga 1aría. Þá hefur hún sungiö í sjónvarpi og Ijóövarpi og nú seinast s.l. haust rlend lög með undirleik enska píanó- íikarans Diana Wright. í safni af söngskrám frá síöastliðnum 5 árum og blaðaúrklippum, þar sem etiö er um söng Ingu Maríu kennir missa grasa og nægir að taka þar okkur dæmi: Á fyrrnefndum nemendatónleikum ;öngskóla Maríu Markan komu fram tta af tuttugu nemendum. Um söng ígu Maríu segir svo í einu dagblaöanna á þeim tíma: „Inga María Eyjólfsdóttir, sópran, ýndi augljósa hæfileika og einurð og kilaði sínum fjórum lögum með prýði." Þegar Karlakórinn Þrestir í Hafnar- rði fór söngför til Færeyja 1973, var íga María einsöngvari með kórnum. í Ereyska blaöinu Dimmalætting var essi skemmtilega umsögn um söng ennar: „Inga María Eyjólfsdóttir vakti ndrun viö síni vökru (fögru) og góðu ödd.“ Þegar Brúðkaup Figarós var fært upp Þjóðleikhúsinu 1968, söng Inga María lutverk Báfbarínu og fékk þá umsögn ð — „Barbarína var prýðilega túlkuö æði hvaö söng og ieik snerti...“ „Hlutverkiö var aö vísu ekki stórt“ egir Inga María, „en arían sem Barbar- Á sviði Þjódleikhússins: Inga María til vinstri í hlutverki Barbar- inu í Brúðkaupi Fígarós og Sigríð- ur Ella Magnúsdóttir í hlutverki Cerubinos. tækifæri hafa þó gefist í íslensku tónlistarlífi. Ég er ekki í neinum klíku- samböndum og hef reyndar ekki sóst eftir þátttöku í þeim.“ Tónleikar að eigin frumkvæði Og nú heldur þú tónleika á eigin vegum? „Já, það er um ár síöan ég ákvað aö gera eitthvað sjálf annaö en aö sitja og bíða eftir tækifæri. Ég sótti um að halda mína fyrstu einsöngstónleika í Félags- stofnun stúdenta og beið lengi eftir svari. Þegar það kom hljóðaði það þannig aö — því miður væri ekkert laust pláss fyrir mig hjá þeirri ágætu stofnun. Þetta var mér nokkurt áfall og ég var aö því komin aö leggja árar í bát. þann 31. mars geri ég ráð fyrir að vera meö tónleika hér í mínum heimabæ, Hafnarfiröi.“ Hvað um gagnrýni? „Góð gagnrýni getur veriö lærdóms- rík. Hins vegar syng ég ekki fyrst og fremst fyrir gagnrýnendur heldur fólkið, sem margoft hefur tjáð mér þakklæti sitt á undanförnum árum.“ Klæddist peysufötum og lék prímadonnur Hvaöa tónverkum hefur þú mestar mæturá? „Ég held aö megi segja að ég sé alæta á tónlist, bæöi að_ hlusta og syngja“ segir Inga María. „Ég get nefnt sem dæmi gamla Dixieland-tónlist, Bítlana, Ellu Fitzgerald; Af klassískri tónlist eru tónverk Bachs mér himneskt fyrirbæri og óperur Verdis og Puccinis óviöjafnanlegar. Mér er mjög minnis- stætt þegar ég var unglingur og sá Tosca í Þjóðleikhúsinu með Guörúnu Á. Símonar pg Stefáni íslandi í aðalhlut- verkum. Ég hef mikla ánægju af aö hlusta á óperukynningar Guðmundar Jónssonar í útvarpinu. Ég var bara smátelpa þegar ég fór að hlusta á óperur í útvarpinu og varð gagntekin af tónlistinni og rómantíkinni í söguþræö- inum. Ég klæddi mig í peysufötin hennar mömmu, haföi svuntuna á höfðinu fyrir slæðu og lék og söng af hjartans list. í lokin dó ég, eins og prímadonnan í flestum óperum gerir." Tekur pau heimilisstörf, sem snúast um dauða hluti ekki of alvarlega Hvernig samræmist sönglistin hús- móöurstörfum og fjölskyldulífi? „Fjölskyldulífið hefur ekki orðiö fyrir neinni vanrækslu, vegna þess hvaö tónlistin er stór hluti af því. Við eyöum öll miklum tíma í æfingar: báðir dreng- irnir hafa lært að spila á píanó, þótt hlé sé á því hjá þeim eldri eins og er. En við Huldar, yngri sonur okkar, skiptumst á um afnot af píanóinu. Þegar ég æfi Alveg óvænt bauðst Ingu Maríu að syngja hlutverk Barbarinu í Brúðkaupi Fígarós. Hún hlaut lofsamlega gagnrýni og þetta átti að lofa góðu um framtíðina, — en síðan hefur hún aldrei fengið boð um að prufusyngja fyrir óperettu- eða óperuhlutverk. na syngur er eitt af fegurstu einsöngs- jgunum í óperunni og hlutverkið leik- ænt. Fyrir mig lofaði þetta tækifæri njög góðu um framtíð mína sem öngvari, ef áframhald hefði orðið í amræmi við þaö. Þetta kom mjög >vænt, þótt ég heföi reyndar veriö í >jóöleikhúskórnum. Ég átti engan þátt í >ví sjálf, fékk þara boö um aö koma og yngja fyrir Alfred Walter hljómsveitar- itjóra og Ann Margret Petterson en hún ■etti óperuna á svið. Þegar þau höfðu lustað á mig syngja, var ákveðið að ég engi hlutverkið. Síðan hef ég aldrei fengið boö um aö ■rufusyngja fyrir óperettu- eða óperu- ilutverk í Þjóðleikhúsinu. Óneitanlega iafa það orðiö mér nokkur vonbrigöi að :oma aldrei til álita viö meiri háttar öngflutning, að svo miklu leyti sem slík En þá, eins og frá upphafi á mínum söngferli, var það maðurinn minn, sem hvatti mig og studdi til þess aö gera þessa heiöarlegu tilraun, sem ég er aö framkvæma með þessum tónleikum. Ég hef undirbúiö prógrammiö meö Guörúnu Kristinsdóttur, sem er undir- leikari minn á þessum tónleikum. Söng- skrána hef ég valiö af minni bestu einlægni og hjartahlýju meö tilliti til þess áheyrendahóps, sem ég held aö hafi ánægju af aö hlusta á mig, kannske jafn mikla og ég hef af að syngja fyrir þá. Á söngskránni eru þýskir Ijóðsöngv- ar, fjögur íslensk lög, þá tvö ensk lög, skemmtileg en sjaldsungin, og aö lokum lög eftir Grieg. Fyrstu tónleikarn- ir eru á vegum Tónlistarfélags Keflavík- ur þ. 17. mars, þeir næstu á vegum Tónlistarfélags Akraness þ. 20. mars og Á pjóðhátíöarsamkomu í Hafnar- firði sumarið 1974. Inga María söng par og hér er undirleikarinn, Agnes Löve, með henni til hægri á myndinni. heima á kvöldin spilar maðurinn minn undir fyrir mig. Um heimilisstörfin gegnir öðru máli. Ég verð oft að geyma uppþvottinn og loka bara eldhúsinu. En þaö kemur sér ekkert illa fyrir mig, því mér dauðleiöast eldhúsverk. En mér finnst ágætt, þegar ég er aö æfa fyrir visst prógramm og er taugaóstyrk, að taka mér hvíld og þurrka af húsgögnun- um. Það kemur líka í vana, að taka þau heimilisstörf, sem snúast um dauða hluti, ekki of alvarlega. Ég hef alltaf unnið úti meö heimilinu og söngnum. Fyrstu árin, meöan Siguröur var viö háskólanám, vann ég allan daginn. Þegar drengirnir voru litlir, var ekki alltaf mikill tími til þess aö komast á milli staða, fara með þá í daggæslu, mæta í vinnunni og á æfingar inni í Reykjavík og komast svo heim til að sinna heimilinu þaö nauösynlegasta. En allir voru boðnir og búnir aö veita aðstoö.“ Hvað um heimilishald á meöan þið voruð í London? „Við leigðum húsiö á meðan og seldum bílinn í staö þess aö fá okkur nýjan. Drengirnir voru hjá systrum mínum á meðan við vorum í burtu. Ööruvísi gátum viö ekki framkvæmt þetta, sem okkur bæöi hafði dreymt um. Ættingjar og vinir hvöttu okkur meö ráöum og dáð, bæði í oröi og verki, synir okkar líka. Þeir komu til okkar um jólin og voru hjá okkur í London í þrjár vikur. Það varð okkur öllum mikil hátíö og stytti fjarvistartímann. Viö höföum tveggja herbergja íbúð á leigu en leigan tók svo stóran skerf af þeim gjaldeyri, sem viö fengum yfirfæröan, að stundum borðuöum við ost í alla mata, þótt við reyndum að komast hjá því um jólin. Þau hjónin taka fram að fjárstyrkir frá hafnfirskum aðilum hafi ráðiö úrslitum að Inga María gat farið til London í tónlistarnám; M.a. styrkur úr „Friöriks- sjóði", sem var stofnaöur eftir lát Friðriks Bjarnasonar, tónskálds og söngstjóra til eflingar tónlistarlífi í Hafnarfirði. „Hafnfiröingar hafa veriö mjög góðir viö mig og gert mikið til þess að ég fengi aö njóta mtn sem söngkona" segir Inga María. Aö endingu ein spurning um áhuga- mál þeirra hjóna? Sigurður Hallur: „Tónlistin hefur alltaf verið mikill og ánægjulegur þáttur í heimilislífi okkar og má segja aö sönglögin veiti mér nauösynlega hvíld frá landslögunum. Eitt mesta áhugamál mitt hefur veriö að fylgjast meö söngferli konu minnar. Ég hef reynt að leggja smálóö á þá vogarskál, aö hún fái notiö hæfileika sinna sem söngkona.“ Inga María: „Söngurinn hefur .verið svo stór þáttur í mínu lífi aö ekki hefur veriö rúm né tími fyrir mörg tómstunda- og áhugamál önnur en þau, að vera samvistum við fjölskylduna. Ég hef ánægju af útivist og gönguferðum, og um margar fallegar gönguleiöir er að velja í kringum Hafnarfjörö. Síöan á barnsárunum hef ég haft vissa þörf fyrir aö vera úti í náttúrunni og finnst ég veröa meö því ný og betri manneskja. Helst get ég líkt þeirri tilfinningu viö það, að syngja fyrir fullu húsi. í stuttu máli: Ég nýt þess að vera til og er þakklát fyrir allt það, sem mér hefur hlotnast í lífinu.“ „Ég geri mér far um að koma auga á björtu hliöarnar og þaö besta í sam- ferðafólkinu; ef til vill má telja þaö eitt af mínum áhugamálum” segir Inga María aö lokum.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.