Lesbók Morgunblaðsins - 07.07.1979, Page 8
Á hverju sumri fara margir
ferðahópar á vegum Útivistar til
Hornstranda, staersta friölands
Þar, sem byggð hefur verið, en er
nú í eyði. Þar eru yfir 40 eyðibýli,
sum Þeírra eru rústir einar, en é
öðrum er húsum haldið við.
Hornstrandír geyma minjar um
merkan pátt í byggðasögu lands-
ins. Þar vitna grónar götur og
gamlir fjallvegjr um vegferð kyn-
slóðanna allt frá Geirmundi helj-
arskinni, sem átti Þar 4 bú. — Um
Hestsskarð var hægt aö fara með
hesta, um Kýrskarö var haagt aö
fara með kýr. —
Friðland Hornstranda býr yffír
sérstæðri náttúru og stórbrotinni
fegurð. Það býður upp á óteljandi
möguleika til útivistar.
Á Hornströndum er ísland elst.
Blágrýtið er 20 milljón ára gamalt.
Þar eru elstu menjar, sem Þekkj-
ast um skóg í landinu. Þar er
fjölskrúðugt dýralíf: Um 40 varp-
fuglategundir. Refur og minkur
eiga par bú og hvítabirnir ganga
par oft á land á vorin, pegar hafís
er við ströndina. Landselur er par
algengur og mjög spakur, en Þar
hafa allar aðrar íslenskar selateg-
undir sóst. i ám og vötnum er
silungur og lax, en gnægð af fiski í
víkum og fjörðum. i friðlandinu
vaxa á Þriðja hundrað blómplönt-
ur og byrkningar. Sumar Þeirra
eru meðal sjaldgæfustu plantna
landsins. í hlíöinni undir Rekavík-
urfjalli vex hvítt blágresi. Síðsum-
ars svignar lyngið undan safarík-
um berjum, bláberjum, aðalblá-
berjum, krækiberjum og skolla-
berjum.
Við erum stödd í Hornvík, höf-
um slegið tjöldum undir Hamrin-
um í Höfn. Hér bjó síðast Sumar-
liðí Betúelsson, en á undan hon-
um faðir hans Betúel Betúelsson.
Austan víkurinnar ris Horn-
bjarg, en að vestan Hælavíkur-
bjarg. Þessi tvö tröllauknu björg
eru frægustu fuglabjörg á íslandi,
ásamt Látrabjargi, en Hornbjarg
er Þó stærsta og kunnasta fugla-
bjarg landsins.
Fjallahringur Hornvíkur er stór-
brotinn og mjög sköröóttur. Á
' ’• - - ■ ' • — * » r t. *£■v *
Fjörurnar hreinsaöar af nælonnetadræsum, en þær eru verstu dauöagildrur fyrir fugla, en hins vegar besta uppkveikja.
bakvið víkina eru Hafnarskarð,
Tindaskörö, Ranglaskarð og
Breiðaskarð við Snók.
I víkina falla margar ár og lækir.
Helstu árnar talið frá Höfn eru:
Víðisá, Torfdalsá, Selá, Gljúfurá,
Kýrá og Drífandi eða Bunulækur. í
öllum Þessum ám eru fallegir
fossar. Árnar sameinast j eitt
vatnsfall á láglendinu og heitir
Það Hafnarós, og er hann nokkuð
mikið vatnsfall og breiðir úr sór,
er nær dregur sjónum.
Gamall bogadreginn marbakki
liggur fyrir botni víkurínnar.
Framar, um miðbik hennar, hefur
hlaðist upp mikil foksandsbunga,
sem heitir Háimelur. Sandurinn er
nokkuö vaxinn melgrasi. Milli
melhólanna læðast refir, sem eru
svo spakir, að peir horfast í augu
við gestina á nokkurra metra færi.
UTIVIST A
HORN-
STRÖNDUM
Myndir og texti: Jón I. Bjarnason
Við rúst bæjarins í Smiöjuvík. Um Guðmund bónda í Smiöjuvík og Jón Hvannadalur frá Rekavíkurfjalli, meö útsýn til Hælavíkurbjargs. Eitt af einkennum
Guðmundsson í Bjarnarnesi var sagt, aö þeir væru hinir einu vísindamenn á Hornstranda er þokan, sem er ýmist hafgjúa, sjólæöa eða dalalæða.
Hornströndum, annar héldi Þjóðólf, hinn væri í Þjóövinafélaginu.