Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 01.09.1979, Qupperneq 5

Lesbók Morgunblaðsins - 01.09.1979, Qupperneq 5
Concorde í flugtaki. Frá tæknilegu sjónarmiði má segja að hún sé hápunkturinn á farþegaþotum. Hitt er svo annað mál, hvort áherzlan á hraðann dæmir hana ekki úr leik, þegar miðað er við breytinguna á orkuverði. 76 árum eftir flug Wright-bræöra, setur rafeinda- tæknin svip sinn á nútíma potuflut og svarar utanaðkom- andi áhrifum margfalt fyrr en mannleg hugsun gæti gert. Eftir James A. Arey. tvær hjá flugyfirvöldum og eina hjá lækni flugfélagsins sjálfs. Allir veröa þeir aö nota yfir 40 tíma á ári í upprifjunarnámskeiö og hæfnipróf- anir undir ströngu eftirliti. Athugum nú aöeins vélina sjálfa. 350 tonn af verk- og tæknifræðilegri snilli — 4 þotuhreyflar (s.k. turbof- an), sem samanlagt gefa 180.000 punda þrýsting — og fimmti hreyfill- inn í stélinu, til framleiöslu á raf- magni, — 4,5 milljónir einstakra hluta — 2000 fet af rörum, — 100 mílur af rafmagnsþráðum, — 176 gluggar, — 11 dyr, — vængflötur á stærö viö Körfuboltavöll og — öll helstu stjórnkerfi þreföld, þó aöeins séu notuö tvö í senn. Handbókin yfir þessa vél er í tveimur bindum, hvoru á stærð viö símaskrá. Hér væri ógjörningur, svo mikið sem minnast á allt það, er máli skiptir, svo viö verðum aö láta okkur nægja aö minnast aöeins lítillega á nokkur aöalatriöi. Eitt er nákvæmnisflug, meö aö- stoö loftsiglingakerfis, sem nefnist INS og er eins og þaö, sem notaö var til aö fljúga Appollo-farinu til tunglsins 1969. Þaö eru þrjú INS kerfi í 747, sem sífellt senda upplýs- ingar til sjálfstýringarinnar og annara stjórntækja. Þó þrjú slík kerfi séu í vélinni, eru aöeins tvö nauðsynleg. Hiö þriöja til vara ef tæknilegir erfiöleikar koma upp, eöa til aö prófa nákvæmni hinna tveggja af og til. Þeim, sem tækni unna, er óhætt að segja, aö INS er afar flókiö og fullkomiö, bæöi fræöilega séö og aö allri byggingu. Þaö byggist á þremur ,,„gyro“-áttavitum, tveim hröðunar- mælum, sérstakri tölvu, flóknum rafeindabúnaöi og geysilegu neti rafmagnsþráöa og kostar þar aö auki 100 þús. dollara stykkiö! Ef viö reynum aö nota einfaldar samlíkingar, getum við sagt, aö INS-tækin vinni á svipuðum grund- velli og landmælingamaður, sem stingur niöur mælistrikum sínum og fikrar sig áfram eftir landinu frá einni stöng til annarrar og gerir mælingar sínar. í byrjun flugs fær kerfið nákvæma staðsetningu í breiddar- og lengdargráðum og sömuleiöis staðsetningu hverrar viömiöunar- stöövar á leiöinni. Þegar vélin er komin af staö, tekur INS viö og „stýrir" henni til áfangastaöar síns. Meöan á flugi stendur, er haft stööugt samband viö flugumferöar- stöðvar, sem staðsettar eru víöa og meö sérstakri nákvæmni, meö tilliti til flugleiða. Jarðstöövar fylgjast stöðugt með vélinni í radar, þar sem hún sendir stööugt frá sér merki um þaö hvar hún er, hraðann, sem hún flýgur meö og hæðina. Yfir grænlýstum skermum radar- tækjanna standa flugumferðarstjór- ar hálfbognir og fylgjast meö, eins og einhverjir umferðarlögreglumenn himinhvolfsins og sjá um, að vélarn- ar fylgi réttum flugleiðum, haldi sig mátulega hver frá annarri, bæöi hvaö snertir stefnu, hraöa og hæö. Eftir því sem fluginu miöar áfram, tekur hver stjórnstöö viö af annarri og „afhendir" síöan þeirri næstu vélina, en hún á þegar von á henni, vegna tölvuskýrslu, sem gerö hefur veriö um þetta flug strax í upphafi. Til dæmis aö taka, þá er flug 100 frá félaginu Pan Am, sem hefst á Kennedyvelli, fyrst í höndum flug- turnsins þar, en síöan „afhent" flugturni New York, sem er í 35 mílna fjarlægö austur af Kennedyvelli á Islip, N.Y. Samtalið milli flugmanns og turns í upphafi flugs er stutt og laggott, nákvæmt og þar úir og grúir af fjölda oröa og oröatiltækja sem vart er á færi leikmanna aö átta sig.á. Þaö gæti hljómað eitthvað á þessa leið: N.Y. flugturn: „Clipper 100!. .. haltu núverandi stefnu og hæö, Yfir landi og meöfram ströndum notar áhöfnin stuttbylgju til sam- bands viö jörð, þar sem segja má aö notagildi þeirra takmarkist af boga jarðar þ.e. sjóndeildarhring. í 35.000 feta hæö er samband á stuttbylgju nálega 265 mílur. Þegar lengra dregur frá, veröur hljóöiö ógreinilegt og truflaö. Þess vegna skiptir Clepp- er 100 yfir á langbylgju, þegar hann kemur út á hafið, út af Kanada, til aö halda góöu sambandi. Langbylgjan er þó ekki eins laus viö truflanir og stuttbylgjan, en hún nær tilskilinni vegalengd. Fyrir áhöfnina er flugiö yfir hafiö ein samfelld vaktstaöa. Stöðugt er fylgzt meö eldsneyti, talað viö stööv- ar á jöröu, farið yfir stööu óteljandi mæla, hvað eftir annaö, skoöuö veðurkort, radarskermar, aövörun- arljós, rofar og margskonar önnur tæki. Þegar vélin nálgast svo írlands- strendur, skiptir áhöfnin aftur yfir á stuttbylgjusamband, og flugum- feröastjórnin fer aö fylgjast meö vélinni inn í brezka lofthelgi, til aö nálgast Heathrow — einn aðalflug- völl farþegaflugs í Evrópu. Flest allir flugmenn, eldri sem yngri, munu vera sammála um, aö lending flugvélar sé einskonar hápunktur hverrar flugferöar. Minnstu mistök mega ekki eiga sér staö og til aö leggja áherzlu á þetta, er fariö yfir ótal atriði í 747 áður en til lendingar kemur. I flestum tilfellum má segja, aö hægt sé aö lenda sjónlendingu, þ.e. flugmaðurinn sér flugvöllinn og um- hverfi hans. Þó lenda hinar stóru þotur venjulega með aöstoð tækja- búnaðar, sem er flókinn og fullkom- inn og tryggir eins örugga lendingu og völ er á. Hvenær sem eitthvað er að veðri, er þessi tækni nauðsynleg. Hlutverk flugstjórans veröur þá aö vera einskonar tækjastjóri og sjá til þess, og fylgjast meö því, aö lend- ingartækin starfi rétt, en vera þó tilbúinn um leið til aö taka viö stjórn, ef tækin starfa ekki sem skyldi. Sem dæmi má nefna, aö aðflug og lending Clepper 100, sem viö höfum verið aö tala um, er algjörlega sjálfvirk athöfn, sem er einskonar aöalsmerki í nútíma risaþotuflugi. í 12 mílan fjarlægö frá flugbrautar- endanum eru sjálfvirkir hraöastillar settir á, hæðarmælar stilltir til að ákveöa rétt hæö í aðfluginu og aö lokum eru sjálfvirku lendingartækin stillt inn á sjálfvirkan lendingargeisla, sem sendur er út frá flugturninum í Heathrow og leiðir vélina inn á lendingarbrautina. Eldsneytisgjöfinni er stjórnað sjálf- krafa og orkan aukin og minnkuð Framhald á bls. 11. Jóhann S. Hannesson: Tvö bókkg kvœði í minningu Sigurðar skólameistara Jónas Hallgrímsson leiðréttir málfar Hall- gríms Schevings1* Ekki „til dæmis“! Dæmi er einn af átján umskiptanlegum pörtum. Dæmi er sótt og sent í skipulagt vit, sundurhólfað í krær. Ekki dæmi! Eg vil eig^ minn orðastað í ódeilanlegum geimi hugans, þar sem ekki ber fyrir augu úrval dæmigerðra einmana, heldur aðeins, til að mynda, útibarða rjúpu. Maddama Egilsen hugsar undan sænginni svar við neyðarkalli Bjarna Thorarensens21 Nei, assesor Bjarni. Ef eg hjálpa yður, hætti eg á að hleypa djöflunum inn, og eg er hrædd um að skáld eins og maðurinn minn megi tæplega við að umgangast þá, frekar en sálugi assessor Gröndal, en það er allra gróði, því miður, að djöflar, gagnslausir þeim, ásæki yður, alltöðruvísi skáld og Thorarensen. 1) ... kom þá fyrir í viðtalinu, að Scheving sagði oft „til dæmis", en Jónas leiðrétti hann í hvert sinn og sagði „til að mynda"... Dægradvöl (1965), bls. 75. 2) ... við vorum háttuð.... þá kom Bjarni Thorarensen á gluggann og kallaði: „ljúkið þér upp, maddama Egilsen! Djöflarnir eru hérna úti og ætla að taka mig“... Sama rit, bls. 15. ©

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.